Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Besta bókin mín alltaf sú næsta“

Glæpa­sögum Ragnars Jón­as­sonar hefur verið vel tekið og þær komið út víða um heim. Einn erlendi útgef­and inn vildi skrifa nýjan endi við eina bók Ragnars, honum fannst svo leið­in­legt þegar aðal­sögu­per­sónan dó. Nýlega sendi Ragnar frá sér sína tíundu bók, svo­lítið drauga­lega spennu­sögu.

„Besta bókin mín alltaf sú næsta“
Ragnar Jónasson Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Þorpið stendur bara ein og sér og er ekki hluti af syrpu,“ segir Ragnar þegar hann er beð­inn um að lýsa nýju bók­inni. „Sagan kom bara til mín,“ bætir hann við. „Í mínum huga er þetta spennu­saga með smá­vegis drauga­gangi en það þarf eng­inn að ótt­ast að draug­ur­inn myrði, það eru rök­réttar skýr­ingar á öllum glæp­unum í bók­inni.“

Bókin segir frá Unu, kenn­ara sem flytur í afskekkt þorp þar sem aðeins tíu manns búa, þar af tvö börn. Með tím­anum fer hana að gruna að þorps­búar búi yfir stóru leynd­ar­máli og hún fær á til­finn­ing­una að hún sé allt annað en vel­komin. Sögu­sviðið eru Skálar á Langa­nesi, en þorpið þar fór í eyði um miðja
síð­ustu öld. Bók Ragnars ger­ist árið 1985 og tekur hann sér þar það skálda­leyfi að halda svæð­inu í byggð lengur en raunin var.

Mörgum brá vissu­lega þegar Hulda dó … og einn útgef­andi minn erlendis tók því svo illa að hann skrif­aði nýjan endi þar sem hún dó ekki.

„Það var gott að fá svig­rúm til að skrifa eitt­hvað allt annað eftir að bók­unum um Huldu lauk.“ Aumingja Huldu sem Ragnar „drap“ með köldu blóði alveg óvænt, ekki við mikla gleði margra les­enda. „Ég er mjög ánægður ef fólk kvartar yfir örlögum sögu­per­sónu, þá veit ég að bókin eða per­sónan hefur haft áhrif og hrist upp í les­and­anum,“ segir Ragnar.

„Mörgum brá vissu­lega þegar Hulda dó … og einn útgef­andi minn erlendis tók því svo illa að hann skrif­aði nýjan endi þar sem hún dó ekki. Svo var ég beð­inn um sam­þykki fyrir því en það kom aldrei til greina.“

Mikill aðdáandi Agöthu

Ragnar las mikið í æsku og þegar hann var í tólf ára fór hann að lesa bækur Agöthu Christie. Úrvalið af þýddum bókum eftir hana var ekki mikið svo ef hann lang­aði að lesa meira varð hann að lesa þær á frum­mál­inu og það gerði hann.

„Það var mjög gott að byrja á Agöthu því hún skrifar frekar ein­falt mál og ég veit að margir velja bækur hennar þegar þeir byrja að lesa á ensku. Ég tók upp á því að þýða nokkrar smá­sögur eftir hana fyrir Vikuna úr ensku á ung­lings­ár­unum, en þegar ég var 17 ára, enn ekki kom­inn með bíl­próf, keyrði mamma mig til Björns Eiríks­sonar, útgef­anda hjá Skjald­borg, en hann gaf Agöthu Christie­bæk­urnar út. Ég sagði honum að mig lang­aði til að spreyta mig á því að þýða heila skáld­sögu. Björn sem kann­að­ist við mig sem strák­inn sem hringdi reglu­lega til að spyrja hvenær næsta bók kæmi út og hvaða bók það yrði, tók mér vel og sam­þykkti að ég þýddi fyrir sig. Ég valdi bók­ina Endless Night sem var stysta bókin sem ég átti eftir Agöthu. Næstu 15 árin þýddi ég bækur hennar fyrir Skjald­borg og síðar Uglu útgáfu, alls 14 skáld­sögur. Þegar sú síð­asta sem ég þýddi kom út, árið 2009, kom jafn­framt út mín fyrsta skáld­saga, Fölsk nóta.“

Ragnar gat ekki bæði skrifað eigin glæpa­sögur og þýtt bækur Agöthu og varð að velja. Við les­endur höf um heldur betur grætt á því og ný bók eftir hann komið út á hverju ári. Upp­á­halds­bók Agöthu­bók Ragnars er Murder on the Links. „Ég nefni hana alltaf þegar ég fæ þessa spurn­ingu, en hún kom fyrst út á íslensku á fimmta ára­tug síð­ustu aldar undir nafn­inu Dul­ar­fullur atburður. Hún var algjör­lega ófá­an­leg í bóka­söfnum og bóka­búðum svo ég fór með pabba á Lands­bóka­safnið til að lesa hana þegar ég var eflaust ekki nema tólf eða þrettán ára. Bókin er mjög skemmti­leg saka­mála­saga, ein af þeim fyrstu sem Agatha Christie skrif­aði, og var síðar end­ur­út­gefin á íslensku og hét þá Opna gröfin.“

Ragnar hafði ekki verið búsettur í ensku­mæl­andi landi en taldi sig þó geta þýtt skáld­sögu. „Ég held að lyk­ill­inn að þýð­ingum sé ekki síst tungu­málið sem maður þýðir yfir á, og mér fannst alltaf gaman að skrifa og vinna með íslensk­una, en þarna þegar ég var sautján ára hafði ég líka lesið mikið á ensku,“ segir Ragnar. „Ég átti líka góða að, pabbi og mamma lásu yfir þýð­ing­arnar og sömu­leiðis amma og afi, allt saman mikið íslensku­fólk.“

Iceland Noir í Iðnó

Fyrr í nóv­em­ber á þessu ári var haldin glæpa­sagna hátíð í Iðnó, þriggja daga hátíð sem Ragnar skipu lagði ásamt þremur félögum sínum úr glæpa sagna heim inum, Yrsu Sig­urð­ar­dóttur, Lilju Sig urð ar dóttur og Óskari Guð­munds­syni.

„Árið 2013 vor um við Yrsa á glæpa­sagna­há­tíð í Bret­landi, ásamt Quentin Bates, rit­höf­undi og þýð anda, en hann þýddi síðar bækur eftir mig yfir á ensku. Þar vorum við spurð hvort slík hátíð væri haldin á Íslandi og þá kvikn­aði hug­myndin. Sex mán­uðum síðar var fyrsta Iceland Noir­hátíðin haldin og þar voru þau Ann Cleeves, höf­undur bókanna um lög­reglu­for­ingj­ann Veru, og Arnaldur Ind­riða­son heið­urs­gestir. Vinir okkar að utan, hinir ýmsu rit­höf­undar, skráðu sig og auð­vitað Íslend­ingar líka, og svo var hátíðin haldin aftur á næsta ári. Peter James var einn heið­urs­gesta þá og tveimur árum seinna voru þau Sara Blædel og Val MacDermid heið­urs­gestir hátíð­ar­innar. Í ár kom m.a. Shari Lapena, höf­undur met­sölu­bók­ar­innar Hjónin við hlið­ina, en auk hennar voru heið­urs­gestir Sjón, Eliza Reid og Katrín Jak­obs­dóttir.“

Sjá einnig: Tækifæri til að kom­ast í nálægð við glæpa­sagna­höf­unda

Hátíðir á borð við þessa eru öllum opnar en þá fara fram pall­borðsum­ræður um hin ýmsu efni og höf­unda og setið er fyrir svörum. Í ár voru meðal ann­ars umræður sem for­sæt­is­ráð­herr­ann okkar, Katrín Jak­obs­dóttir, stjórn­aði en Ragnar, Ármann Jak­obs­son pró­fessor sem er með sína eigin glæpa­sögu í ár og Martin Edwards rit­höf­undur sátu hjá henni uppi á sviði og umræðu­efnið var Agatha Christie og bækur hennar. Þarna er ein­stakt tæki­færi fyrir fólk að hitta mögu­lega upp­á­halds­rit­höf­und­inn sinn erlendis frá. Hægt er að kaupa helg­arpassa en að sögn Ragnars er sniðugra fyrir land­ann að kaupa aðgang að þeim við­burði sem mest lokkar, eða við­burðum, og það kostar lítið, en hátíðin er unnin í sjálf­boða­vinnu og reynt að hafa hana aðgengi­lega fyrir alla.

Okkur dreymir um að gera hátíð­ina að árlegum við­burði.

„Næsta hátíð verður árið 2020 og við erum komin með þrjá heið­urs­gesti, þau Ann Cleeves, Ian Rankin og Louse Penny en hún er vin­sæl­asti glæpa­sagna­höf­undur Kanada og með þeim vin­sælli í Banda­ríkj­unum líka. Okkur dreymir um að gera hátíð­ina að árlegum við­burði. Í ár héldum við ball þar sem hljóm­sveit skipuð breskum glæpa­sagna­höf­undum lék fyrir dansi. Svo var Ísnálin veitt fyrir bestu þýð­ing­una. Bjarni Gunn­ars­son þýð­andi og Jo Nesbø rit­höf­undur hrepptu Ísnálina að þessu sinni fyrir glæpa­sög­una Sonurinn, og tók Bjarni við verð­launum fyrir hönd þeirra tveggja.“

Pressan sem þufti

Ragnar fær hug­myndir alls staðar að, meðal ann­ars úr blaða­greinum.

Glæpa­sögur njóta mik­illa vin­sælda um heim­inn og á Íslandi eru ekki mörg ár síðan erlendir krimmar í kiljum fóru að koma út allan árs­ins hring og selj­ast eins og heitar lummur. Íslenska glæpa­sagan er heldur ekki mjög gömul því lengi vel þóttu slíkar bækur ekki nógu trú­verð­ugar á litla Íslandi. Ragnar hóf feril sinn á svo­lítið óvenju­legan hátt, eða tók þátt í sam­keppni. Hann vissi fyr­ir­fram að bókin hans myndi ekki sigra en sendi hana samt inn.

„Bóka­út­gáfan Bjartur aug­lýsti eftir hinum íslenska Dan Brown, eða bók í anda Browns, árið 2008. Ég var með bók í huga, ekki í þessum anda en not­aði tæki­færið og sendi hana inn. Þetta var pressan sem ég þurfti til að klára bók­ina og konan mín ýtti á eftir mér svo að ég skil­aði hand­rit­inu á réttum tíma. Enginn íslenskur Dan Brown fannst en Veröld, syst­ur­for­lag Bjarts, gaf bók­ina mína út og bað um aðra að ári. Þannig að Fölsk nóta sá dags­ins ljós og allt fór af stað,“ segir Ragnar og bætir við að fyrsta glæpa­saga Lilju Sig­urð­ar­dóttur hafi einnig sprottið upp úr þess­ari Dan Brown­sam­keppni.

Ragnar fær hug­myndir alls staðar að. „Blaða­greinar sem ég les geta kveikt hug­mynd, þarf oft ekki nema eitt orð, einnig fréttir, sam­töl þar sem fólk segir mér sögur en það fólk myndi þó aldrei þekkja þær sögur í bókum mínum, enda kveikja þær yfir­leitt ein­fald­lega hug­myndir að ein­hverju allt öðru,“ segir Ragnar og brosir en hverja af bókum sínum heldur hann mest upp á? „Upp­á­halds­bókin mín er yfir­leitt alltaf sú nýjasta … og besta bókin alltaf sú næsta.“

Blaða­greinar sem ég les geta kveikt hug­mynd, þarf oft ekki nema eitt orð.

Nýr karakter

Ragnar, áminntur um sann­sögli, ertu byrj­aður á næstu bók og ætlar þú að leyfa aðal­per­són­unni að tóra eitt­hvað áfram? „Já, já, ég er byrj­aður á nýrri bók og þar er nýr aðal­karakter, lög­reglu­maður sem fær að lifa,“ lofar Ragnar og bætir við: „Ari lög­reglu maður úr fyrstu bók­unum er nátt­úr­lega enn á lífi og ég á til einn fjórða úr bók um hann sem ég klára ein­hvern dag­inn. Ég er búinn að hugsa þá sögu alveg til enda en hef ekki enn haft tíma til að skrifa hana.“ Ragnar byrjar alltaf á nýrri bók í sept­em­ber, hann þarf að skila hand­rit­inu til útgef­and­ans að vori. Það er lesið yfir um sum­arið og gerðar athuga­semdir, ef þarf. Hann segir að athuga­semdum hafi fækkað með hverri bók, ferlið sé mjög lær­dóms­ríkt og hægt að læra af mis­tökum sínum.

„Ég myndi aldrei senda frá mér bók nema hún fari í gegnum svona nál­ar­auga, þetta er kannski ekki skemmti­leg­asti tím­inn, það eru skrifin sjálf, en hann er býsna mik­il­vægur. Una hét t.d. stundum Hulda í nýju bók­inni en það var auð­vitað lagað í yfir­lestri,“ segir Ragnar og hlær.

Hann vinnur sem lög­maður á dag­inn og þá er það sam­veran með fjöl­skyld­unni. Um tíu­leytið á kvöldin, þegar allt er komið í ró, sest hann við tölv­una og galdrar fram alls kyns plott og per­sónur. Hefði hann trúað því þegar hann sat í háskóla og lærði lög­fræð­ina að ekki svo mörgum árum seinna yrði hann virtur og vin­sæll glæpa­sagna­rit­höf­undur? „Ég sá aldrei sjálfan mig fyrir mér sem rit­höf­und, ég ætl­aði aldrei að skrifa skáld­sögur, ég mikl­aði það fyrir mér en þetta var alltaf draum­ur­inn,“ segir Ragnar ein­lægur. „Ég ólst upp við bækur, Ólafur Ragn­ars­son bóka­út­gef­andi var föð­ur­bróðir minn, og faðir minn, Jónas Ragn­ars­son, hefur skrifað bækur, m.a. Daga Íslands og Jóla­minn­ingar. Afi skrif­aði bækur um Siglu­fjörð og ekki má gleyma mömmu sem er lækna­rit­ari, hún hefur verið mjög dug­leg að lesa bæk­urnar mínar yfir.“

Gott skipulag galdurinn

Minnstu mun­aði að Ragnar færi í íslensku í háskóla en hann valdi lög­fræð­ina og hefur aldrei séð eftir því. Starfið segir hann vera mjög skemmti­legt, en hann sýslar með fjár­fest­ing­ar­sjóði hjá fjár­mála­fyr­ir­tæk­inu Gamma. „Lög­fræði­starfið er mjög fjöl­breyti­legt en mér finnst gott að hafa þetta tvennt alveg aðskilið, ég reyni til dæmis að hafa sem fæsta lög­fræð­inga í bók­unum mínum.“

Ragnar segir að gott skipu­lag sé gald­ur­inn við að skrifa bækur. „Best er að hugsa um bók­ina í nokkur ár, skipu­leggja sig vel og setj­ast við skriftir þegar maður sér fyrir sög­una, að minnsta kosti aðal­at­riði hennar, það virkar best fyrir mig. Ég skrifa enda­laust niður hug­myndir í minn­is­bækur eða sendi sjálfum mér tölvu­póst með hug­myndum, og svo renna þær oft saman í eina bók.“

Lög­fræði­starfið er mjög fjöl­breyti­legt en mér finnst gott að hafa þetta tvennt alveg aðskilið.

Ragnar er giftur Maríu Margréti Jóhanns­dóttur sem vinnur sem almanna­teng­ill hjá Wow air, mest í tengslum við mark­aði félags­ins í Banda­ríkj­unum og Bret­landi. Þau eiga dæt­urnar Kiru, átta ára, og Natalíu, fjög­urra ára. Spurning hvort rit­höf­und­ur­inn segi dætr­unum ekki spenn­andi sögur á kvöldin? „Jú, ég segi þeim oft sögur en skrifa þær ekki niður. Ég var eitt sinn með hug­mynd að barna­bók en ég verð að við­ur­kenna að ég ver alltaf öllum þeim tíma sem ég gef mér til skrifta í glæpa­sög­urnar.“

Jólin hjá Ragnari og fjöl­skyldu eru hefð­bundin. „Við verðum heima og með ham­borg­ar­hrygg í mat­inn að vanda. Eft­ir­rétt­ur­inn er sjaldn­ast sá sami en við erum alltaf með möndlu­graut í for­rétt. Dæturnar fá möndl­una ótrú­lega oft,“ dæsir Ragnar bros­andi og segir að þegar komi að því að kaupa jóla­tré kaupi hann helst stærra jóla­tré en kom­ist fyrir í stof­unni.

„Skemmti­leg­ast er að þurfa að saga það aðeins til svo það passi akkúrat. Fyrir tveimur árum skar ég reynd ar næstum af mér fing­ur­inn við þær æfingar. Svo horfi ég nú oft á sömu gömlu jóla­mynd irnar á aðvent­unni, mæli sér­stak­lega með Die Hard I og II, og The Man who Came to Dinner frá 1942. Já, svo eru jóla­kveðj­urnar á Rás 1 ómissandi á Þor­láks­messu og útvarps­messan á aðfanga­dags­kvöld, bara allt þetta klass­íska íslenska,“ segir Ragnar að lokum.

Mynd/ Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina