Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Valinn af Andrew Lloyd Webber í hlutverk Óperudraugsins

Garðar Thór Cortes hefur ekki verið mikið í fréttum á Íslandi und­an­farin ár en það þýðir þó engan veg­inn að hann hafi setið auðum höndum. Hann hefur verið að syngja aðal­hlut­verkið í söng­leik Andrews Lloyd Webber, Love Never Dies, víða um Evrópu og túrað með söng­leiknum um Banda­ríkin. Og það sem meira er, Lloyd Webber hand­valdi hann sjálfur í hlut­verkið.

Valinn af Andrew Lloyd Webber í hlutverk Óperudraugsins
||||

Nú er Garðar Thór kom­inn heim, búinn að kaupa hús í Vest­ur­bænum og mun syngja hlut­vek Alfredos í upp­færslu Íslensku óper­unnar á La Traviata í vor. „Ég er ekki dug­legur að aug­lýsa sjálfan mig, svo það vita fáir af þessu hér heima,“ segir Garðar Thór, hóg­værðin upp­máluð, spurður út í hlut­verk hans í Love Never Dies. „En ég hef verið í burtu núna í þrjú ár. Fyrst var ég í Hamborg í ár að syngja í fram­hald­inu af Óperu­draugnum eftir Andrew Lloyd Webber sem hann samdi fyrir um tíu árum. Verkið á að ger­ast tíu árum eftir að Óperu­draugnum lýkur og heitir Love Never Dies.“

Til­drögin að því hvernig Garðar Thór fékk hlut­verkið eru skemmti­leg og segja mikið um það álit sem hann nýtur utan land­stein­anna. Það var eng­inn annar en Andrew Lloyd Webber sjálfur sem heimt­aði að hann tæki að sér þetta hlut­verk.

„Já, hann sá mig syngja aðal­lag Óperu­draugs­ins á tón­leikum til heið­urs Elaine Paige í Royal Albert Hall tveimur árum fyrr og þá var Lloyd Webber í salnum, ásamt Cameron Mackintosh og Tim Rice og öllum þessum mönnum sem stjórna söng­leikja­brans­anum á heims­vísu. Þegar Lloyd Webber fór bak­sviðs eftir sýn­ing­una greip hann í umboðs­mann­inn minn og spurði hver þessi maður væri eig­in­lega, hann hefði aldrei heyrt mig eða séð fyrr en hann vildi bóka mig strax, áður en Cameron Mackintosh krækti í mig. Og upp úr því spratt þetta tæki­færi að ég fór til Ham­borgar og söng þar í ár.“

Eldsvoði í stíl við söguna

Eftir að sýn­ingum lauk í Hamborg var Garðar Thór ráð­inn, að frum­kvæði Lloyd Webbers, til að syngja hlut­verkið í upp­færslu á Óperu­draugnum í París. Það ævin­týri fékk þó svip­legan endi.

Garðar Thór við­ur­kennir að það hafi verið mik­ill heiður fyrir hann að þurfa ekki að mæta í neinar prufur heldur vera hand­val­inn af Andrew Lloyd Webber.

„Þetta var í leik­húsi alveg við Garnier-óper­una, þar sem Óperu­draug­ur­inn ger­ist, og það var svaka­lega mikið lagt í þessa sýn­ingu,“ segir Garðar Thór. „Þetta var á þrjá­tíu ára afmæli Óperu­draugs­ins en hann hafði aldrei verið settur upp í París, hvað þá á frönsku þótt sagan sé auð­vitað frönsk. Ein aðal­söng­leikja­stjarnan á Broadway, Sierra Boggess, var fengin til að syngja á móti mér og við æfðum stíft í nokkrar vikur.

Æfing­arnar gengu vel en viku fyrir frum­sýn­ingu kvikn­aði í leik­hús­inu og sviðið brann, sem er mjög við­eig­andi því í sög­unni kveikir draug­ur­inn í Garnier-óper­unni. En þetta varð til þess að ekk­ert varð úr sýn­ing­unni en það er þó enn draumur hjá Andrew að setja hana upp í París. Það verður þó varla alveg á næst­unni.“

Bruninn í leik­hús­inu olli því að Garðar Thór kom heim og tók að sér ýmis verk sem umboðs­maður hans fann með stuttum fyr­ir­vara. En óperu­draug­sæv­in­týrið var þó ekki á enda því gengið hafði verið frá samn­ingum um að hann myndi syngja hlut­verkið í sýn­inga­ferð með Love Never Dies um Banda­ríkin og þangað fór hann í upp­hafi árs 2017.

„Lloyd Webber hefur sagt að Love Never Dies sé hans besta verk, að hann haldi mest upp á það  og það er hans ástríða að gera það sýni­legt sem víð­ast eftir að frum­sýn­ing þess í London fyrir tíu árum féll,“ útskýrir Garðar Thór.

„En Banda­ríkja­ferðin var vel heppnuð og sem sagt; ég er búinn að vera að syngja Óperu­draug­inn, bæði í upp­runa­lega verk­inu og Love Never Dies, und­an­farin þrjú ár.“

Garðar Thór við­ur­kennir að það hafi verið mik­ill heiður fyrir hann að þurfa ekki að mæta í neinar prufur heldur vera hand­val­inn af höf­und­inum. Hann verður meira að segja hálf­feim­inn þegar hann ljóstrar því upp að Andrew Lloyd Webber hafi sagt að ekki væri til betri Óperu­draugur en Garðar Thór.

Ég hefði svo sem getað sagt við Friðrik Ómar að Andrew Lloyd Webber vildi fá mig á sama tíma, en ég er bara ekki þannig mann­eskja.

„Ég veit ekki hvort það er rétt hjá honum,“ segir hann. „En það er vissu­lega gaman að fá þessa umsögn frá honum sjálfum. Það var svo hringt í mig og ég beð­inn um að koma fram á sýn­ingu þar sem sett eru saman atriði úr öllum söng­leikjum Lloyd Webbers í til­efni af því að sjálfsævi­saga hans er að koma út. En þá var ég búinn að bóka mig hjá Friðriki Ómari til að syngja með honum á jólatón­leik­unum hans hérna heima svo ég neit­aði. Ég hefði svo sem getað sagt við Friðrik Ómar að Andrew Lloyd Webber vildi fá mig á sama tíma, en ég er bara ekki þannig mann­eskja. Ef maður er búinn að bóka sig í eitt­hvað þá á maður að standa við það.“

Opnaði ekki munninn í þrjá mánuði

Garðar Thór hefur verið heima síðan í lok sum­ars og seg­ist hafa ákveðið að taka sér gott frí eftir törn­ina.

„Ég hef verið stans­laust að í þrjú ár og þegar maður er í söng­leikjum þá eru sýn­ingar sex sinnum í viku og Love Never Dies-hlut­verkið er sko tífalt þyngra en hlut­verk draugs­ins í Óperu­draugnum, hann er á svið­inu nán­ast allan tím­ann. Svo bætt­ist auð­vitað Amer­íkut­úr­inn ofan á, maður var að syngja kvöld eftir kvöld og ferð­ast á frí­dög­unum og ný her­bergi, ný hótel, ný rúm og nýtt lofts­lag tekur rosa­lega á bæði radd­lega og lík­am­lega, þannig að ég ákvað að þegar ég kæmi heim myndi ég ekki opna munn­inn í nokkra mán­uði.

Maður var að syngja kvöld eftir kvöld og ferð­ast á frí­dög­unum og ný her­bergi, ný hótel, ný rúm og nýtt lofts­lag tekur rosa­lega á bæði radd­lega og lík­am­lega.

Það er í raun­inni bara mjög hollt. Þegar maður er að gera svona mikið verður maður að hugsa um rödd­ina því hún verður að halda áfram. En ég er kom­inn á flug aftur og þótt það sé alltaf gott að vera í fríi er enn betra að byrja aftur.“

Garðar Thór býr með Elvu Dögg Melsteð og á einn son og þrjú stjúp­börn, tekur það ekki mikið á fjöl­skyldu­lífið að vera á þessu stöðuga flakki?

„Jú, það gerir það,“ segir hann ein­lægur. „Það er erfitt að vera svona lengi í burtu, sér­stak­lega þegar maður er svona mik­ill fjöl­skyldu­maður eins og ég er. Þetta er allt í lagi þegar maður fer í ein­hverja stutta túra eða er í verk­efni í nokkrar vikur eða mán­uði ein­hvers staðar. Þá getur fjöl­skyldan komið út og tekið þátt. En þessi túr sem ég var í var ansi langur. Ég hef aldrei túrað svona áður en þetta var auð­vitað „once in a lifetime“-tæki­færi.

Það er erfitt að vera svona lengi í burtu, sér­stak­lega þegar maður er svona mik­ill fjöl­skyldu­maður eins og ég er.

Þegar Andrew Lloyd Webber biður mann að syngja í Banda­ríkj­unum þá segir maður ekki nei. Það er svona svipað og ef Stephen Spi­el­berg bæði mann að leika í bíó­mynd hjá sér. Þannig að ég sé alls ekki eftir því, en ég hef líka á sama tíma lært að þetta er eitt­hvað sem ég get ekki gert aftur, að vera svona lengi í burtu einn. Ann­að­hvort fer fjöl­skyldan öll eða eng­inn í svona langan tíma.“

„Þegar Andrew Lloyd Webber biður mann að syngja í Banda­ríkj­unum þá segir maður ekki nei. Það er svona svipað og ef Stephen Spi­el­berg bæði mann að leika í bíó­mynd hjá sér.“

Bruninn í leik­hús­inu í París var reyndar lán í óláni, að sögn Garðars Thórs, því þá komst hann heim, ann­ars hefði hann verið í burtu sam­fleytt í þrjú ár.

„Ég var með góðar trygg­ingar svo þetta varð ekki fjár­hags­legur skaði og ég gat verið heima um tíma og sungið héðan. Ham­borg­ar­árið og Banda­ríkja­árið voru vissu­lega flókið púslu­spil, en fjöl­skyldan kom oft út og ég samdi um það í báðum samn­ingum að ég gæti kom­ist heim og þau út. Elva er auð­vitað í vinnu hér heima og getur ekki verið í burtu nema tak­mark­aðan tíma í einu, en hún kom út eins oft og hún gat, svo þetta bless­að­ist nú allt saman. Maður þarf oft að leggja ýmis­legt á sig til að láta góða hluti ganga upp og við vorum alveg til­búin til þess og vissum út í hvað við vorum að fara.“

Dvölin styttist vegna krabbameins

Álagið jókst enn þegar Elva Dögg greind­ist með krabba­mein og Garðar Thór játar fús­lega að það hafi verið óskap­lega erfitt að geta ekki verið heima á þeim tíma.

„Að vera að syngja sex sinnum í viku, á eilífum ferða­lögum milli staða og vera með betri helm­ing­inn veikan heima, það var ekki gott,“ við­ur­kennir hann. „Ég fékk meira að segja að stytta aðeins dvöl mína úti vegna aðstæðn­anna heima og sem betur fer var fullur skiln­ingur á því. Nú er hún laus við krabba­meinið og allt gengur vel, en auð­vitað er fólk alltaf lengi að ná sér eftir svona. En hún er byrjuð að vinna aftur og við erum mjög bjart­sýn.“

Nú er hún laus við krabba­meinið og allt gengur vel, en auð­vitað er fólk alltaf lengi að ná sér eftir svona.

Nýlega festi fjöl­skyldan kaup á bláu húsi í Vest­ur­bænum og er í óða önn að lag­færa það og koma sér fyrir þegar við­talið fer fram skömmu fyrir jól. Garðar Thór á varla orð til að lýsa því hve ánægður hann er með það.

„Við erum hér alveg í himna­ríki,“ segir hann og hlær. „Það er að vísu raf­virki enn að vinna hérna og mál­ar­arnir eru ekki alveg búnir, en þetta er dásam­legt. Við keyptum í ágúst og fluttum inn nokkrum vikum seinna og þurftum auð­vitað að laga ýmis­legt eins og alltaf þegar maður flytur á nýjan stað. Við erum smátt og smátt að gera húsið að okkar en það er ekki alveg komið. Elva er með betra auga fyrir inn­an­húss­hönnun en ég og ég geri mér fulla grein fyrir því en það kemur samt fyrir að ég get komið með góða punkta. Og nú er þetta orðið ægi­lega fal­legt og voða­lega mikið okkar.“

Aðdáendur Nonna mæta á sýningar um allan heim

Hvað er svo fram undan hjá Garðari Thór?

„Eftir að jóla­törn­inni lýkur fer ég að æfa í La Traviata hjá Íslensku óper­unni,“ segir hann. „Svo er ýmis­legt í bígerð sem ég get ekki talað um enn en það er nóg að gera. Mér finnst líka hvergi betra að vera en á sviði að syngja og leika fyrir áhorf­endur. Leik­list­ar­bakt­er­ían greip mig ungan og ég hef aldrei losnað við hana síðan.“

Þar vísar Garðar Thór til hlut­verks síns sem Nonna í sjón­varps­þátta­röð­inni Nonni og Manni þegar hann var fjórtán ára. Þætt­irnir hafa notið gríð­ar­legra vin­sælda í Evrópu og nú er einmitt verið að end­ur­sýna þá á RÚV. Hefur hann horft á þætt­ina eftir að hann varð full­orð­inn?

Garðar Thór segir að vissu­lega sé til fólk sem hafi fylgst með honum alveg síðan hann lék í þátt­unum Nonna og Manna og hann fái enn skila­boð og tölvu­pósta frá fólki sem er hrifið af þátt­unum.

„Nei, en ég hef séð þá,“ segir hann. „Ég sá þá auð­vitað þegar þeir voru frum­sýndir og ég man hvað ég var stress­aður en fannst það um leið mjög gaman. Ég er mjög stoltur af þessu og við Einar og Jói, sem vorum Nonni og Manni og Júlli smali, erum enn bestu vinir í dag.“

Spurður hvort fólk kann­ist enn við hann sem Nonna úr þátt­unum segir Garðar Thór að vissu­lega sé til fólk sem hafi fylgst með honum alveg síðan þá og hann fái enn skila­boð og tölvu­pósta frá fólki sem er hrifið af þátt­unum.

„Nú eru nátt­úr­lega ekki lengur send aðdá­enda­bréf í pósti en ég á enn nokkur síðan í gamla daga en það koma enn þá skila­boð og vina­beiðnir og ein­hvers konar kontakt á Netinu varð­andi það að fólk man eftir mér úr Nonna og Manna og er aðdá­endur. Til dæmis var ég um dag­inn að syngja í Salnum í Kópavogi og þá var þar kona sem hafði flogið til Íslands frá Þýska­landi gagn­gert til að sjá mig á þessum tón­leikum af því að hún sá mig fyrst í Nonna og Manna og hefur síðan fylgst með mínum ferli, kom til Ham­borgar til að sjá mig og flaug alla leið til Kali­forníu til að sjá mig syngja í Love Never Dies þar. Meira að segja var hún búin að kaupa flug­miða til að sjá mig syngja í París. Það voru reyndar margir sem gerðu það en svo brann leik­húsið og ekk­ert varð af því, eins og áður sagði. Hún er reyndar ekki sú eina, það eru margir sem fljúga út um allan heim til að sjá mig syngja af því að þeir sáu mig fyrst í Nonna og Manna. Mér þykir voða­lega vænt um það.“

Einn á hótelherbergi um jólin

Nú eru ára­mótin yfir­vof­andi og við hnýtum slaufu á við­talið með spurn­ing­unni hvort Garðar Thór sé mik­ill ára­móta­maður og hvaða hefðir fjöl­skyldan hafi í ára­móta­haldi.

„Ég er mik­ill jóla­maður,“ segir hann ákveð­inn. „Jólin eru upp­á­halds­tím­inn minn og í raun­inni þá líka ára­mótin. Ég verð bara oft svo meyr um ára­mótin. Þá er árið liðið í ald­anna skaut og aldrei það kemur til baka, eins og segir í ljóð­inu. Sá texti snertir mig alltaf og ég klökkna. En samt er það líka jákvætt að nýtt ár sé að byrja og allt fram undan mjög spenn­andi. Ég hef alltaf verið mun meira fyrir jólin enda eru hátíð­irnar mik­ill fjöl­skyldu­tími sem skiptir mig miklu máli. Um síð­ustu jól var ég til dæmis einn uppi á hót­el­her­bergi í New York og á gaml­árs­dag og nýárs­dag var ég að syngja sýn­ingar, ég man ekki einu sinni í hvaða borg í Banda­ríkj­unum við vorum akkúrat þá. Í Hamborg var ég líka einn, sat einn í sófa í íbúð­inni minni og horfði á vídeó. Ég hef svo oft verið í burtu einn um jól og ára­mót og það vil ég aldrei gera aftur. Fjöl­skyldan er alltaf númer eitt, tvö og þrjú hjá mér og ég hlakka alveg óskap­lega til að verja hátíð­unum með henni í þetta sinn.“

Um síð­ustu jól var ég til dæmis einn uppi á hót­el­her­bergi í New York og á gaml­árs­dag og nýárs­dag var ég að syngja sýn­ingar.

En hvernig leggst nýja árið í þig?

„Mjög vel. Ég reyni nú alltaf að vera jákvæður og líta björtum augum til fram­tíðar og það ger­ist sem ger­ist. Það er alltaf ein­hver sem hugsar um okkur og leiðir okkur áfram og ef maður hefur það að leið­ar­ljósi þarf ekki að hafa neinar áhyggjur.“

„Fjöl­skyldan er alltaf númer eitt, tvö og þrjú hjá mér og ég hlakka alveg óskap­lega til að verja hátíð­unum með henni í þetta sinn.“

Ertu mjög trú­aður?

„Já, ég er trú­aður,“ segir Garðar Thór. „Ég er sjö­unda dags aðvent­isti, við erum það öll fjöl­skyldan. Sumir halda að það sé ein­hver sér­trú­ar­söfn­uður en það er í raun­inni bara eins og önnur kristin trú, eini mun­ur­inn er sá að við förum í kirkju á laug­ar­dögum, ekki sunnu­dögum. Laug­ar­dag­ur­inn er sjö­undi dagur vik­unnar svo þaðan kemur nafnið á söfn­uð­inum, sem mörgum finnst svo óskilj­an­legt. Þetta er auð­vitað flokkað sem sér­trú­ar­söfn­uður af því þetta er ekki þjóð­kirkjan, en við trúum bara á það sem stendur í Bibl­í­unni eins og annað kristið fólk. Guð hjálpar mér alltaf og leiðir mig og ef maður treystir honum þá leys­ist allt þótt eitt­hvað komi upp á. Það virkar alla vega þannig fyrir mig.“

Guð hjálpar mér alltaf og leiðir mig og ef maður treystir honum þá leys­ist allt þótt eitt­hvað komi upp á.

Æfingar á La Traviata hefj­ast fljót­lega eftir ára­mótin og frum­sýn­ingin verður í mars. Garðar Thór mun þó ekki syngja Alfredo á frum­sýn­ing­unni heldur Elmar Gil­berts­son. Hvers vegna er það?

„Við Elmar skiptum hlut­verki Alfredos á milli okkar, hann fær fyrstu þrjár sýn­ing­arnar og ég fæ síð­ustu þrjár,“ útskýrir Garðar Thór. „Svo verður sýn­ingin tekin upp fyrir sjón­varp og ég mun syngja í þeirri upp­töku. Það getur vel verið að ég fari eitt­hvert út að syngja í byrjun árs, það er alltaf eitt­hvað sem kemur upp með stuttum fyr­ir­vara, eins og þetta dæmi með Andrew Lloyd Webber sem hringdi tveimur vikum áður en sýn­ingin átti að vera. Það er nú reyndar bara hann.

Ég er reyndar ekki mjög góður í því að láta vita af mér, sam­an­ber að ég hef verið að syngja Óperu­draug­inn í þrjá ár án þess að eig­in­lega nokkur vissi af því.

Hann getur leyft sér allt sem hann vill og fólk stekkur bara til og losar sig úr öðrum verk­efnum. Þannig að það er aldrei að vita hvað verður á nýju ári. Það standa yfir ýmsar samn­inga­við­ræður hjá fólk­inu sem vinnur fyrir mig í Englandi og Banda­ríkj­unum og ég treysti því full­kom­lega fyrir því að finna eitt­hvað gott. Þið fréttið eflaust af því þegar þar að kemur. Ég er reyndar ekki mjög góður í því að láta vita af mér, sam­an­ber að ég hef verið að syngja Óperu­draug­inn í þrjá ár án þess að eig­in­lega nokkur vissi af því. Ég veit að maður á að láta vita meira af sér en mér finnst það sem ég er að gera ekk­ert merki­legra en það sem aðrir gera og sé ekki ástæðu til að troða mínum afrekum upp á fólk. En þið fréttið af mér, ég lofa því.“

Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina