Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Bára Huld lýsir samskiptum sínum við Ágúst Ólaf: „Ekki bara mis­heppnuð við­reynsla, heldur ítrekuð áreitni og nið­ur­læg­ing“

Bára Huld lýsir samskiptum sínum við Ágúst Ólaf: „Ekki bara mis­heppnuð við­reynsla, heldur ítrekuð áreitni og nið­ur­læg­ing“
Ágúst Ólafur.

Bára Huld Beck, blaða­maður á Kjarn­anum, greinir frá sam­skiptum sínum við Ágúst Ólaf Ágústs­son, þing­mann Sam­fylk­ing­ar­innar. Hún segir yfir­lýs­ingu hans, þar sem hann til­kynnti að hann ætl­aði að taka sér 2 mán­aða frí frá þing­störfum vegna kyn­ferð­is­legrar áreitni, hafa gert mjög lítið úr því sem fram fór umrætt kvöld.

Trún­að­ar­ráð Sam­fylk­ing­ar­innar áminnti Ágúst Ólaf eftir að Bára Huld til­kynnti málið til þess. Í kjöl­farið sendi Ágúst Ólafur frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann sagð­ist miður sín vegna máls­ins og hann hyggð­ist taka sér 2 mán­aða frí frá þing­störfum á meðan hann skoð­aði sín mál. Í yfir­lýs­ing­unni sagð­ist Ágúst Ólafur hafa í tvígang reynt að kyssa Báru og látið ljót orð falla þegar hún neit­aði.

Bára Huld stígur í fyrsta skipti fram í tengslum við málið í yfir­lýs­ingu sem hún birt­ist á vef Kjarnans. Ágúst Ólafur var áður hlut­hafi í Kjarn­anum. Segist hún í yfir­lýs­ing­unni ekki hafa ætlað að stíga fram en í ljósi þess hversu lítið henni þótti Ágúst Ólafur gera úr umræddum atburði hafi hún kosið að tjá sína hlið á mál­inu.

Forsaga máls­ins er sú að þau Ágúst Ólafur og Bára Huld tóku saman tal á skemmti­stað í mið­borg Reykja­víkur snemma sum­ars þar sem þau voru ásamt hópi fólks. Þaðan fóru þau á skrif­stofu Kjarnans neðst á Lauga­vegi. Stóð Bára Huld í þeirri trú að þar myndu þau halda áfram sam­ræðum en Ágúst Ólafur hafi mis­skilið aðstæður.

„Ágúst Ólafur reyndi ekki að kyssa mig tví­vegis heldur ítrek­að. Hann reyndi það aftur og aftur þrátt fyrir að ég hefði neitað honum og sett skýr mörk. Í hvert sinn sem ég neit­aði honum þá nið­ur­lægði hann mig með ýmsum hætti. Ágúst Ólafur yfir­gaf ekki skrif­stof­una þegar ég bað hann um það. Ég fylgdi honum á end­anum ákveðin út með þeim orðum að ég treysti mér ekki til að vera í sama rými og hann. Hann lét samt ekki segj­ast og hélt þving­andi áreitni sinni áfram í lyft­unni á leið­inni út.“

Segist Bára Huld hafa upp­lifað algjört varn­ar­leysi vegna þessa. Lýsir hún upp­lif­inu sinni þannig að hún hafi verið „algjör­lega nið­ur­lægð og gjör­sam­lega mis­boðið vegna ítrek­aðra ummæla hans“ um vits­muni hennar og útlit.

„Næstu dagar voru mér erf­ið­ir. Ég fann fyrir kvíða og van­líðan og ég ótt­að­ist áfram að atvikið gæti haft áhrif á starfs­ör­yggi mitt. Meðal ann­ars fyllt­ist ég mik­illi van­líðan þegar ég sá hann í fjöl­miðlum eða mynd af honum á net­inu. Eins kveið ég fyrir því að rekast á hann á förnum vegi eða að þurfa starfa minna vegna að sjá eða hitta hann á þing­inu. Þetta átti eftir að vara næstu mán­uði og gerir í raun enn að vissu leyti.“

Yfirlýsing þingmannsins skrumskæld

Henni hafi fund­ist að hún þyrfti að skila afleið­ing­unum til ger­and­ans og í því skyni sent Ágústi Ólafi tölvu­póst þar sem hún lýsti upp­lifun sinni af sam­skiptum þeirra. Níu dögum síðar, eftir ítrek­anir, hafi hann hringt og beðist afsök­unar. Síð­sum­ars hafi þau enn fremur hist í vitna við­ur­vist þar sem hann rengdi ekki frá sögn Báru Huldar og aftur beðið hana afsök­unar. Hins vegar hafi henni orðið ljóst að hann ætl­aði ekki að segja öðrum frá því hvað gerst hefði og þess vegna hafi hún leitað til Loga Ein­ars­sonar, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, sem hafi bent henni á að til­kynna málið til trún­að­ar­nefndar Sam­fylk­ing­ar­innar, sem og hún gerði. Trún­að­ar­ráðið veitti Ágústi Ólafi áminn­ingu þann 27. nóv­em­ber. Hún hafi ætlað að láta þar við sitja en yfir­lýs­ing Ágústs Ólafs um málið hafi verið þess eðlis að hún hafi orðið að stíga fram.

„Það er ábyrgð­ar­hlutur að senda frá sér yfir­lýs­ingu um mál sem þessi, eins og Ágúst Ólafur gerði. En ef slík yfir­lýs­ing er skrum­skæld á ein­hvern hátt er hætt við að röng og jafn­vel var­huga­verð skila­boð séu send út í sam­fé­lag­ið. Yfir­lýs­ing Ágústar Ólafs er ekki í sam­ræmi við mála­vexti. Hún gerir mun minna úr því sem átti sér stað en til­efni var til. Þetta var ekki bara mis­heppnuð við­reynsla, heldur ítrekuð áreitni og nið­ur­læg­ing.“

Yfir­lýs­ingu Báru Huldar í heild má lesa hér.

Uppfært 12:21:

Stjórn og stjórn­endur Kjarnans hafa lýst yfir fullum stuðn­ingi við Báru Huld. Í yfir­lýs­ingu segir að hegðun Ágústs Ólafs hafi verið niðr­andi, óboð­leg og hafi haft víð­tækar afleið­ingar fyrir Báru Huld, bæði per­sónu­legar of fag­legar.

„Stjórn og stjórn­endur Kjarn­ans gerðu þol­anda ljóst frá upp­hafi að hann réði ferð­inni í þessu máli og til hvaða aðgerða hann taldi rétt­ast að grípa. Eftir að fyrir lá við­ur­kenn­ing ger­anda á því sem átti sér stað, en eng­inn sýni­legur vilji til að bregð­ast við hegðun sinni með öðrum hætti, þá ákvað þol­andi að koma vit­neskju um áreitn­ina á fram­færi við stjórn­mála­flokk­inn sem ger­and­inn situr á þingi fyr­ir. Þar var mál­inu beint í far­veg nýstofn­aðrar trún­að­ar­nefnd­ar.“

Loks segir í yfir­lýs­ing­unni, sem stjórn­ar­for­mað­ur­inn Hjálmar Gíslason und­ir­ritar, að þol­and­inn í mál­inu hafi fullan rétt á því hvort, hvenær og hvernig hann tjáir sig um umrætt atvik.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við