Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ekki hægt að bjóða þingmönnum upp á samstarf við þetta fólk

Ekki hægt að bjóða þingmönnum upp á samstarf við þetta fólk
|Helga Vala Helga­dóttir. Mynd / Skjáskot Hring­braut||

And­rúms­loft á Alþingi er lævi blandið þessa dag­ana eftir birt­ingar á ýmsum miður fögrum ummælum þing­mann­anna sex í Klaust­urs­hópnum um sam­starfs­fólk sitt. Mannlífi lék for­vitni á að vita hvað öðrum þing­mönnum fynd­ist um hátt­semi þeirra og hvort þeir gætu hugsað sér að þurfa að vinna með þessu fólki dag­lega.

Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, er ómyrk í máli þegar hún er spurð hvort hún treysti sér til að vinna með Klaust­urs­fólki.

„Eina spurn­ingin sem ég set fram er hvort þetta fólk sé fært um að sinna starfi sínu,“ segir Helga Vala. „Þau eiga til dæmis að veita ráð­herrum aðhald með fyr­ir­spurnum, þau eiga að sitja nefnd­ar­fundi og þing­fundi en þau komu fram með þeim hætti, bæði með orðum sínum og athafna­leysi, að það er ekki hægt að bjóða ákveðnum ráð­herrum og ákveðnum þing­mönnum upp á það að eiga í nokkrum ein­ustu sam­skiptum við þetta fólk. Og það er heldur ekki hægt að bjóða gestum, sem starfs síns vegna koma á nefnd­ar­fundi, upp á að þurfa að vinna með þeim vegna þess að þeir eru ýmist málsvarar þeirra sem níðst var á eða urðu per­sónu­lega fyrir barð­inu á þeim.“

Viltu þá meina að Alþingi verði óstarf­hæft ef þessir þing­menn sitja áfram?

„Það er allt hálf­lamað hérna nú þegar,“ segir Helga Vala. „Við vöknum með þetta í höfð­inu á morgn­ana og sofnum með þetta á kvöldin á sama tíma og maður er að reyna að styðja góða félaga sína og koma í veg fyrir að þeir fari í leyfi. Rétt­læt­is­kennd minni er mjög mis­boðið og ég sé ekki að hægt sé að starfa með fólki sem kemur svona fram.“

Mjög óþægileg tilhugsun að deila vinnustað með þeim

Halldóra Mogensen, þing­maður Pírata, er ekki eins afdrátt­ar­laus í svörum og spurð hvort hún taki mark á því þegar þing­menn­irnir sem um ræðir segj­ast skamm­ast sín og að þeir muni læra af þessum mis­tökum verður hún hálf­part­inn véfrétt­ar­leg.

„Ég efast ekki um að þeir þing­menn sem hafa getu til að skamm­ast sín skammist sín og mun sú skömm vissu­lega fela í sér lær­dóm,“ segir hún.

Varðandi það hvort hún per­sónu­lega treysti sér til að vinna með við­kom­andi þing­mönnum segir hún að það sé vissu­lega óþægi­leg til­hugsun.

„Mér finnst til­hugs­unin um að þurfa að deila vinnu­stað með þessum þing­mönnum mjög óþægi­leg,“ segir Halldóra en vill ekki fara nánar út í það.

Ekki stætt á að sitja áfram

Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­maður Við­reisnar, seg­ist trúa því að þing­menn­irnir marg­um­ræddu skammist sín, en hvert fram­haldið verður treystir hún sér ekki til að spá um.

„Ég á erfitt með að ímynda mér annað en að umræddir þing­menn skammist sín dug­lega,“ segir hún. „Ég treysti mér hins vegar ekki til að full­yrða neitt um önnur við­brögð þeirra. Tíminn mun leiða þau í ljós.“

Spurð hvort hún geti hugsað sér að halda áfram að starfa með þessu fólki, seg­ist hún hafa lýst þeirri skoðun sinni að sér þyki sá blettur sem þau hafa sett á sig sjálf, rudda­skap­ur­inn sem þau hafa sýnt til­teknum sam­þing­mönnum og sú mynd sem þau hafa að ósekju gefið af starf­inu á Alþingi sé svo alvar­leg að þeim sé ekki stætt á því að sitja áfram. „Jafn­framt geri ég mér grein fyrir því að eng­inn tekur þá ákvörðun nema þing­menn­irnir sjálfir, og þannig vil ég hafa það.

Ég mun ekki láta þetta ljóta mál aftra mér frá því að sinna starfi mínu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Klausturmálið

FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina