Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Skrýtið og skemmtilegt að sjá sjálfa sig á hvíta tjaldinu“

Halla Þórð­ar­dóttir fer með hlut­verk í kvik­mynd­inni Suspiria sem var frum­sýnd í Bíó Paradís í vik­unni. Þetta er fyrsta hlut­verk hennar á hvíta tjald­inu og segir Halla sem fer með hlut­verk dans­ara að það hafi verið lær­dóms­ríkt að leika á móti stjörnum eins og Tildu Swinton og Dakotu Johnson.

„Skrýtið og skemmtilegt að sjá sjálfa sig á hvíta tjaldinu“
Mynd/Saga Sig

„Ég hafði nú engar fyr­ir­fram­gefnar hug­myndir um þær en eftir að hafa kynnst þeim get ég sagt að þær eru báðar hlýjar og skemmti­legar. Fag­mann­eskjur fram í fing­ur­góma sem brenna fyrir list sinni og vilja taka þátt í því að færa sköp­un­ar­verkið upp á hærra plan,“ segir Halla þegar blaða­maður byrjar á því að spyrja hvernig hafi eig­in­lega verið að leika á móti stjörnum eins og Tildu Swinton og Dakotu Johnson.

Hún er upp­á­halds­leik­konan mín og mér finnst hún stór­kost­lega áhuga­verð lista­kona.

Halla játar að þegar hún fékk til­boð um að taka þátt í gerð mynd­ar­innar hafi hjartað strax farið að slá örar þegar hún komst að því að Tilda léki í mynd­inni. „Hún er upp­á­halds­leik­konan mín og mér finnst hún stór­kost­lega áhuga­verð lista­kona. Sú skoðun breytt­ist ekki við gerð mynd­ar­innar. Það var magnað að fylgj­ast með henni vinna á töku­stað. Fag­mennskan skein alveg í gegn.“

Hún segir að Dakota hafi síðan verið mikið á æfingum með sér og hinum dönsurun. „Bæði til þess að til­einka sér kóreógraf­í­una sem er notuð í mynd­inni og eins til að fylgj­ast með því hvernig dans­arar hita upp og hegða sér þegar þeir læra efni og þegar verið er að bíða í stúd­íó­inu,“ útskýrir hún og brosir.

Út fyrir þægindarammann

Spurð hvernig hafi komið til að hún land­aði hlut­verki í mynd­inni svarar Halla því til að árið 2015 hafi dans­höf­undur mynd­ar­innar, Damien Jalet, sett upp verk sitt Les Medusées í sam­starfi við Íslenska dans­flokk­inn og Halla sem er með­limur í flokknum, hafi dansað í því. Þegar leik­stjóri Suspiriu, Luca Guadag­nio, bað Damien um skapa dans­heim mynd­ar­innar ári síðar hafi Damien haft sam­band og fengið sig til að vera með. „Ég er ein fimm aðstoð­ar­dans­höf­unda mynd­ar­innar sem komu inn í ferlið á und­ir­bún­ings­stigi og svo aðstoð­aði ég Damien við að setja hina dans­ar­ana inn í verk hans, Les Medusées sem er notað sem grunnur að aðal­dans­senu mynd­ar­innar, Volk,“ lýsir hún.

Þar seg­ist Halla hafa verið á heima­velli en að öðru leyti hafi starfs­um­hverfið verið mjög ólíkt því sem hún á að venj­ast úr leik­hús­inu. Töku­dag­arnir hafi t.d. teygst upp í allt að sextán klukku­stundir sem hafi ekki verið neitt grín þar sem allar tökur hafi farið fram á ein­angr­uðum stað, í yfir­gefnu hót­eli uppi á fjallstindi. Stundum hafi dans­ar­arnir aðeins fengið fimm mín­útna fyr­ir­vara á tökum eftir að hafa þurft að bíða í allt að tíu tíma og þá þurft að hita upp í hvelli fyrir dans­senu sem var tekin upp aftur og aftur á níst­ingsköldu setti.

Ég var svo heppin að fá boð á frum­sýn­ing­una á Kvik­mynda­há­tíð­inni í Feneyjum.

Halla kveðst ekki fara með stórt hlut­verk í mynd­inni en þó er auð­heyrt að mikil vinna liggur að baki. „Þetta var vel út fyrir þæg­ind­ara­mmann,“ við­ur­kennir hún fús­lega. „Það getur auð­vitað verið erfitt en er alltaf gott og hollt.“

Frumsýningin í Feneyjum mikil upplifun

Spurð hvernig sam­starfið við leik­stjór­ann hafi gengið og hvort hann hafi verið sáttur við hennar hlut seg­ist Halla vita til þess að Guadag­nio hafi verið mjög ánægður með dans­ar­ana og dans­inn í mynd­inni. Sjálf sé hún til­tölu­lega sátt við útkom­una. „Ég var svo heppin að fá boð á frum­sýn­ing­una á Kvik­mynda­há­tíð­inni í Feneyjum. Það var mikil upp­lifun út af fyrir sig og mjög skrýtið og skemmti­legt að sjá sjálfa sig á hvíta tjald­inu. Ég sat með önd­ina í háls­inum og fylgd­ist gagn­rýnin með allan tím­ann sem ég sést í mynd­inni,“ segir hún hlæj­andi og seg­ist vera spennt að sjá Suspiriu aftur og geta mögu­lega notið þess aðeins betur.

Þegar talið best að mögu­legum fram­tíð­ar­verk­efnum í kvik­mynda­brans­anum seg­ist hún ekki vera með neina stóra drauma á því sviði. „Það verður bara að koma í ljós hvað ger­ist í því sam­hengi,“ segir hún róleg. „Per­sónu­lega hef ég mestan áhuga á að taka þátt í verk­efnum sem eru gef­andi og vekja for­vitni mína og þar sem ég geti sjálf gefið eitt­hvað af mér til baka. Ég tek engu sem gefnu og öll þau verk­efni sem ég tek mér fyrir hendur, stærri eða minni, eru mér jafn­mik­il­væg. Eins og sakir standa er ég í fæð­ing­ar­or­lofi með ynd­is­legum dreng og er ekki mikið að spá í fram­tíð­ina heldur bara njóta tím­ans sem ég á með honum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina