Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Líkt og eiga margar kærustur í einu sem eiga allar sama afmælisdaginn“

Hljóm­sveitin Lights on the highway kemur saman eftir nokk­urra ára hlé og heldur tvenna tón­leika milli jóla og nýj­árs. Við heyrðum í Krist­ó­fer Jenssyni, söngv­ara bands­ins, og hann sagði okkur meðal ann­ars frá upp­runa bands­ins.

„Líkt og eiga margar kærustur í einu sem eiga allar sama afmælisdaginn“

„Bandið varð til síð­sum­ars 2003 þegar ég og Agnar Eldberg gít­ar­leik­ari hitt­umst á Menn­ing­arnótt en við höfðum þekkst frá ung­lings­aldri. Ég hafði lánað honum Nirvana-vín­yl­plötu mörgum árum áður, Come as you are-smá­skíf­una minnir mig, og það bar meðal ann­ars á góma þetta kvöld,“ segir Krist­ó­fer. „Við vorum báðir á þeim tíma­punkti í tón­list­inni að við vorum að leita eftir nýjum verk­efnum. Á þeim tíma hafði ég afnot af stúd­íói hjá Skara og Junior, vinum mínum í Hafn­ar­firði, og stakk upp á að við mundum hitt­ast og taka upp nokkur lög þar sem þeir voru að spila í útlöndum og plássið laust til afnota.“

Fundu trommara á Hróarskeldu

Agnar og Krist­ó­fer tóku upp fimm lög á tveimur kvöldum, þar á meðal þrjú ný lög sem urðu nán­ast til að staðnum. Þessi lög röt­uðu svo öll á fyrstu plötu hljóm­sveit­ar­innar. Skömmu síðar gekk svo Karl Daði Lúð­víks­son bassa­leik­ari til liðs við þá og þeir byrj­uðu að taka upp og spila sem acoustic-tríó undir nafn­inu Lights on the highway. „Hljóm­sveitin starf­aði í tals­verðan tíma þannig, ég og Aggi báðir á gítar og í söng og Kalli á bass­ann; alltaf óraf­magnað. Við spil­uðum á pínu­litlum kaffi­húsum út um alla Reykja­vík og þá hafði mynd­ast skemmti­legur hópur af tón­list­ar­fólki sem var á svip­aðri línu og spil­aði oft saman á þessum tíma, Tenderfoot, Indigo, Pétur Ben, Moody Company og fleiri. Við vorum alltaf með í bak­hönd­inni að finna okkur trommara og hann fannst fyrir til­viljun á Hróa­skeldu­há­tíð­inni í Danmörku 2004 þar sem ég og Halli lentum saman í tjald­búðum,“ segir Krist­ó­fer og er hér að tala um Þórhall Reyni Stef­áns­son. „Eftir að heim var komið var stungið í sam­band og Halli kom­inn á bak við trommu­settið í band­inu. Rúmu hálfu ári síðar vorum við komnir í Stúdíó Grjót­námuna fyrir til­stilli Eiríks Rósberg Eiríks­sonar stór­vinar okkar en þar var fyrsta platan okkar tekin upp á mjög skömmum tíma. Við upp­tökur á plöt­unni bætt­ist síðan Gunn­laugur Lárusson í hóp­inn en við fengum hann „að láni“ frá vinum okkar í Brain Police. Gulli skil­aði sér reyndar ekki aftur til þeirra fyrr en ein­hverjum árum síðar.“

Ást, togstreita, fíflaskapur

Stefán Gunn­laugs­son hljóm­borðs­leik­ari bætt­ist svo í hljóm­sveit­ina en einnig hafa gít­ar­leik­ar­arnir Konráð Bartch og Bjarni Þór Jensson komið að band­inu á ein­hverjum tíma­punkti. Krist­ó­fer segir að erfitt sé að skil­greina teg­und tón­list­ar­innar sem þeir spila en hipparokk kom­ist kannski næst því. Þeir hafa sent frá sér tvær plötur, Lights on the Highway (2005) og Amanita Muscaria (2009) auk nokk­urra útvarps­smá­skífa, þar á meðal lagið Leiðin Heim sem er senni­lega þekktasta lagið þeirra og það eina á íslensku. „Við höfum spilað út um allar trissur, allt frá pöbbum í Breið­holti til London Astoria og The Marquee á Englandi. Við spil­uðum mikið á Dillon, Gauknum, Grand Rock og þessum helstu tón­leika­stöðum á sínum tíma þar sem nándin og hávað­inn var alls­ráð­andi. Við vorum einnig þess heið­urs aðnjót­andi að fá að spila í Silf­ur­bergi á Opn­un­ar­há­tíð Hörpu ásamt fleiri frá­bærum íslenskum hljóm­sveitum. Árið 2012 ákváðum við að setja hljóm­sveit­ina til hliðar þar sem Aggi var að flytja til Banda­ríkj­anna, og héldum þá tón­leika undir nafn­inu „Afsakið Hlé“. Hljóm­sveitin hefur þó aldrei hætt, enda stór partur af okkur öllum.“

„Við höfum spilað út um allar trissur, allt frá pöbbum í Breið­holti til London Astoria og The Marquee á England.“

Hvað er minn­is­stæð­ast? Ást, vin­átta, tog­streita, sköp­un­ar­gleði, rifr­ildi, ferða­lög og fífla­skapur. Það heitir víst að vera í hljóm­sveit. Líklega er þetta eins og að eiga margar kærustur í einu sem eiga allar sama afmæl­is­dag­inn. Að hafa skapað eitt­hvað saman sem við getum verið stoltir af stendur þó alltaf upp úr, það er bara þannig.“

Furðuleg sjálfhverfa

Hljóm­sveitin kom síð­ast saman 2015 og þá tóku þeir eins konar míni-tour og spil­uðu meðal ann­ars á Quest, Dillon, KEX, Húrra, Græna hatt­inum og Eistna­flugi. „Það er í raun Stefáni Magn­ús­syni að þakka að við höfum látið verða af þessu bæði þá og núna en við ætlum að halda tvenna tón­leika á Hard Rock 29. og 30. des­em­ber næst­kom­andi. Miða­salan er í fullum gangi á tix.is og gengur vonum framar, við erum reyndar alveg orð­lausir yfir við­brögð­unum sem við höfum fengið. Við hlökkum allir mikið til að hitt­ast og fá að spila saman aftur þessi tvö skipti opin­ber­lega. Vonandi fáum við að smita sem flesta á þeim stutta tíma af þess­ari furðu­legu sjálf­hverfu sem hljóm­sveitin er.“

Mynd / Aðsend

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina