Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Höfundur Terminator á leið til landsins

Kvik­mynda­fram­leið­and­inn Gale Anne Hurd verður hátíð­ar­gestur á alþjóð­legu kvik­mynda­há­tíð­inni Northern Wave (Norð­an­áttin) sem fer fram í Frysti­klef­anum á Rifi í Snæ­fellsbæ í 11. sinn helg­ina 26.-28. októ­ber. Dögg Mós­es­dóttir, sem er stofn­andi og stjórn­andi hátíð­ar­innar, segir heiður að fá þessa goð­sögn til lands­ins.

Höfundur Terminator á leið til landsins
||
Dögg Mós­es­dóttir, sem er stofn­andi og stjórn­andi hátíð­ar­innar, segir heiður að fá þessa goð­sögn til lands­ins.

„Gale er algjör goð­sögn og frum­kvöð­ull í kvik­mynda­heim­inum og mik­il­væg fyr­ir­mynd fyrir kvik­mynda-gerð­ar­fólk sem er að stíga sín fyrstu skref, eins og margir af gestum hátíð­ar­innar eru að gera. Við höfum aldrei áður fengið svona stóran fram­leið­anda frá Hollywood til okkar og ef ég á að vera hrein­skilin þá erum við að far­ast úr spenn­ingi,“ segir Dögg, spurð að því hvernig sé að fá þessa kanónu á hátíð­ina.

Nafn­giftin kanóna er svo sann­ar­lega ekki úr lausi lofti gripin því Hurd á að baki langan og glæstan feril í kvik­mynda­heim­inum. Hún var til dæmis með­höf­undur og fram­leið­andi kvik­mynd­ar­innar The Term­inator og hefur fram­leitt stór­myndir eins og Aliens, Hulk, Arma­geddon og The Abyss, en í dag á hún og rekur fyr­ir­tækið Valhalla Enterta­in­ment sem fram­leiðir meðal ann­ars hina vin­sælu sjón­varps­þætti The Walking Dead.

Á hátíð­inni verður nýjasta heim­ilda­mynd Hurd, MANKILLER, sýnd en hún fjallar um fyrsta kven­kyns Cherokee-höfð­ingj­ann sem barð­ist fyrir rétt­indum frum­byggja í Banda­ríkj­unum. Þá mun leik­konan Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir stýra sér­stöku meist­ara­spjalli þar sem fram­leið­and­inn situr fyrir svörum. Mun þetta vera í fyrsta sinn sem Hurd kemur til lands­ins og seg­ist Dögg vita til þess að hún hlakki mikið til heim­sókn­ar­innar.

„Við höfum aldrei áður fengið svona stóran fram­leið­anda frá Hollywood til okkar og ef ég á að vera hrein­skilin þá erum við að far­ast úr spenn­ingi.“

„Reyndar var ég hissa á að Gale sam­þykkti að koma á litla stutt­mynda­há­tíð í smábæ á Íslandi og ítrek­aði fyrir henni um hvað málið snérist en hún sló samt til. Ég held að hún sé spennt­ust fyrir nátt­úr­unni og líti á þetta sem tæki­færi til að kom­ast loks­ins hingað. Þetta er auð­vitað eina stutt­mynda­há­tíðin í heimi sem er haldin í gömlu frysti­húsi undir jökli, eftir því sem ég best veit, þannig að eflaust lítur hún á þetta sem ævin­týri.“

Dögg segir þátt­töku Hurd almennt rýma vel við dag­skrá og til­gang Northern Wave. Hátíðin hafi í gegnum tíð­ina ekki aðeins varpað ljósi á þá hluta kvik­mynda­gerðar sem eru svo­lítið á bak við tjöldin, eins og fram­leiðsla, klipp­ing, hljóð­setn­ing o.fl., heldur líka vakið athygli á fram­lagi kvenna til kvik­mynda­gerðar m.a. svo að ungar kvik­mynda­gerð­ar­konur geti speglað sig í flottum fyr­ir­myndum. Hurd sé sann­ar­lega ein slík.

En hvað fleira verður á boðstólum á hátíð­inni í ár? „Við ætlum að sýna allt sem stutt­mynda­formið hefur upp á að bjóða, allt frá tón­list­ar­mynd­böndum til teikni­mynda. Svo verða tón­leikar og fisk­rétta­keppni, sem er orðin að einum vin­sælasta við­burði hátíð­ar­innar,“ svarar Dögg hress og hvetur lista­menn og tón­list­ar­fólk til að mæta á hátíð­ina, ekki síst á óform­lega hádeg­is­fundi sem séu kjör­inn vett­vangur til að hitta kvik­mynda­gerð­ar­fólk og kanna grund­völl fyrir sam­starfi. En nánar megi lesa sér til um hátíð­ina á .

Sú kvik­mynd sem kom Hurd end­an­lega á kortið var Aliens (1985), fram­hald geim­hryll­ings­mynd­ar­innar Alien (1979). En sumum aðdá­endum þykir Aliens vera hápunktur þess­arar vin­sælu og lang­lífu skrímsla­seríu.

Frum­kvöð­ull í gerð vís­inda­skáld­sagna
Banda­ríski fram­leið­and­inn Gale Anne Hurd (f. 1955) er gjarnan kölluð „The first lady of Sci-Fi“ eða for­ystu­kona Sci fi-kvik­mynda í heim­inum vegna aðkomu sinnar að gerð fjölda kvik­mynda í vís­inda­sagna­stíl, kvik­mynda sem ekki aðeins hafa notið mik­illa vin­sælda heldur þykja af ýmsum sökum hafa brotið blað í gerð slíkra mynd.

Hurd hóf feril sinn sem aðstoð­ar­kona B-hryll­ings­mynda­kóngs­ins Roger Corman hjá fyr­ir­tæki hans New World Pictures og þar vann hún sig jafnt og þétt upp met­orða­stig­ann þar til hún var farin að taka virkan þátt í fram­leiðslu á verk­efnum fyr­ir­tæk­is­ins.

Árið 1982 stofn­aði Hurd eigið fram­leiðslu­fyr­ir­tæki, Pacific Western Productions, sem fram­leiddu stór­virki á borð við The Term­inator (1984), Aliens (1986) og The Abyss (1989), myndum sem öllum var leik­stýrt af þáver­andi eig­in­manni hennar, James Cameron, og rök­uðu mynd­irnar inn pen­ingum í miða­sölu um allan heim.

Síðan þá hefur Hurd notið mik­illar vel­gengi sem fram­leið­andi í Hollywood. Meðal ann­arra mynda sem hún hefur fram­leitt má nefna Term­inator 2 (1991) og 3 (2003), Arma­geddon (1998) og Hulk (2003), en af öðrum verk­efnum á fer­il­skránni má nefna þætti byggða á teikni­mynda­sög­unni Aeon Flux sem eru nú í vinnslu.

Á löngum og glæstum ferli hefur Hurd unnið til fjölda verð­launa fyrir verk­efni sín og nýtur virð­ingar innan banda­ríska kvik­mynda­brans­ans. Auk þess að eiga og reka eigið fram­leiðslu­fyr­ir­tæki er hún hátt­sett innan sam­tak­anna Producers Guild of America, sem eru sam­tök fram­leið­enda í Banda­ríkj­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina