Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Heillandi og glæsileg hæð á eftirsóknaverðum stað

Við Klapp­ar­stíg 29 á eft­ir­sóttum stað í 101 Reykja­vík er þessi glæsi­lega hæð, stað­sett í húsi sem til­heyrir gamla tím­anum.

Heillandi og glæsileg hæð á eftirsóknaverðum stað
||||

Valdimar Poulsen, danskur járn­steypu­meist­ari, lét byggja húsið árið 1928 og er það hið virðu­leg­asta. Hönnuður húss­ins var Guð­mundur H. Þor­láks­son bygg­inga­meist­ari. Húsið er stein­steypt þriggja hæða hús með risi og fal­legum boga­dregnum svölum og gluggum í miðj­unni. Klapp­ar­stígur er blönduð gata. Þar hefur lengi ægt saman alls konar iðn­aði og verslun í bland við íbúa­byggð. Við Klapp­ar­stíg­inn hófu starf­semi sína á fyrri hluta ald­ar­innar margir af braut­ryðj­endum íslensks iðn­aðar.

Iðandi mann­líf og menn­ing
Eignin er stað­sett við Klapp­ar­stíg á milli Hverf­is­götu og Lauga­vegar, sem hafa verið í mik­illi end­ur­upp­bygg­ingu síð­ustu ár, til móts við Hljóma­lind­ar­reit­inn sem hefur tekið stór­kost­legum breyt­ingum og laðar að fólk. End­ur­bæt­urnar styðja betur við verslun og þjón­ustu sem veitt er á svæð­inu, auk þess að krydda mann­lífið. Lauga­veg­ur­inn er ein helsta versl­un­ar­gata Reykja­víkur og við nær­liggj­andi götur er fjöldi versl­ana, kaffi­húsa, veit­inga­staða, gall­ería og önnur starf­semi sem hvetur til iðandi mann­lífs og menn­ingar.

Hvítlakk­aðar fuln­inga­hurðir og gluggaum­gjörðir upp­runa­legar
Hæðin hefur fengið að halda upp­runa­legu skipu­lagi og útliti sem gerir hana virðu­legri og rýmið er opið og skemmti­legt. Hvítlakk­aðar fuln­inga­hurðir og gluggaum­gjörðir eru allar upp­runa­legar og gefa ákveðna upp­lifun til for­tíðar. Gips­listar og rósettur prýða loftin og sveipa hæð­ina róm­an­tík. Hæðin er einkar rúm­góð og vel skipu­lögð. Stórt hol tengir saman rými hæð­ar­innar sem er vel skipu­lagt. Á hæð­inni eru þrjár, stórar og bjartar sam­liggj­andi stofur. Stof­urnar eru í sinni upp­runa­legu mynd og hurð­irnar fegra rýmið enn frekar. Óhætt er að segja að stof­urnar séu djásn eign­ar­innar og bjóða upp á fjöl­marga mögu­leika. Rósettur og gips­listar setja fal­legan svip á rýmið og und­ir­strika glæsi­leika stof­anna. Miðju­stofan er með boga­dregnum gluggum sem eru sér­stak­lega fal­legir, bæði innan sem utan og gera rýmið að inn­an­verðu skemmti­legra. Gengið er inn í allar stof­urnar frá holi.

Róm­an­tískt frá gamla tím­anum
Eldhúsið er gam­al­dags með róm­an­tísku ívafi, hvítar inn­rétt­ingar eru í for­grunni á móti ljós­bláum lit á veggjum og inn af eld­húsi er geymsla sem áður var stigi á efri hæð og þaðan er útgengt á snotrar svalir. Svarti og hvíti lit­ur­inn er í for­grunni á bað­her­berg­inu sem er vandað. Fallegar hvítar og svartar flísar með hreyf­ingu prýða bað­her­bergið sem tóna vel saman.

Hæðinni fylgja þrjú rúm­góð, björt og huggu­leg svefn­her­bergi, sem öll liggja saman á hæð­inni. Ein­fald­leik­inn ræður þar ríkjum og nota­gildið til staðar. Það má með sanni segja að eignin bjóði upp á fjöl­breytta mögu­leika hvort sem það fyrir heim­ili eða atvinnu­tengda starf­semi því að stað­setn­ingin er frá­bær fyrir þá sem eru heill­aðir að 101 Reykja­vík.

Eignin er til sölu á Híbýli fast­eigna­sölu á 93 millj­ónir og hún er 189,7 fer­metrar að stærð. Nánari upp­lýs­ingar eru veittar á skrif­stofu Híbýla í síma 585-8800 eða gegnum net­fangið: [email protected]. Einnig veita Ólafur Már Ólafsson, lög­giltur fast­eigna­sali s. 865-8515, net­fang: [email protected] og Ingi­björg Þórð­ar­dóttir, lög­giltur fast­eigna­sali s. 864-8800, net­fang: [email protected]. Sjón er sann­ar­lega sögu rík­ari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina