Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Uppsöfnuð óánægja finnur sér farveg

Uppsöfnuð óánægja finnur sér farveg
Mannlíf/Hákon

Háværar deilur innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Vest­manna­eyjum um röðun á fram­boðs­lista urðu til þess að flokk­ur­inn klofn­aði skömmu fyrir kosn­ingar. H-list­inn spratt fram og náði ásamt E-list­anum að fella meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þótt ekki hafi munað nema fimm atkvæðum. Skyndi­lega stóð Elliði Vign­is­son á kross­götum. Bæj­ar­stjóra­stóll­inn var far­inn og í fyrsta skipti í 14 ár var hann ekki lengur bæj­ar­full­trúi í Vest­manna­eyjum. Elliði var horf­inn úr for­ystu Vest­manna­eyja­bæjar og fram undan voru stórar per­sónu­legar ákvarð­anir.

Þótt deil­urnar innan flokks­ins hafi opin­ber­lega snú­ist um hvaða leið ætti að fara við röðun á fram­boðs­lista telur Elliði að dýpri ástæður hafi legið þar að baki. „Það var eng­inn mál­efna­legur ágrein­ingur en á móti kemur að við vorum búin að vera við stjórn­völ­inn í tólf ár og höfðum gengið þannig fram að auð­vitað höfum við valdið trufl­unum í við­tækjum ein­hverra á þessum tíma. Við fundum það mjög að ákveðnir hópar voru að leita sér að far­vegi fyrir per­sónu­lega óánægju frekar en eitt­hvað annað. Það var kannski byggt hús of nálægt einum, aðrir töldu sig ekki hafa fengið nægi­leg verk­efni í útboðum á vegum Vest­manna­eyja­bæjar, fólk hafði ekki fengið vinnu sem það sótti um hjá bænum eða jafn­vel misst vinn­una og taldi sig þess vegna eiga eitt­hvað sök­ótt við bæj­ar­fé­lagið og svo fram­vegis. Þessi óánægja fann sér far­veg í þessum svo­kall­aða H-lista sem náði því sem til þurfti. Þótt Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé eftir sem áður með eitt mesta fylgi á land­inu í Eyjum þá dugði fylgi H-list­ans til að fella meiri­hlut­ann og það verður ekki af þeim tekið.“

Deil­urnar mögn­uð­ust enn frekar eftir að nið­ur­staða kosn­ing­anna varð ljós og beind­ist reiði sjálf­stæð­is­manna fyrst og fremst að Páli Magn­ús­syni, þing­manni flokks­ins í kjör­dæm­inu. Hann var sak­aður um að hafa stutt fram­boð H-list­ans á bak­við tjöldin og þannig unnið mark­visst gegn eigin flokki í bænum. Fór svo að Páll var rek­inn úr full­trúa­ráði flokks­ins í Vest­mann­eyjum vegna „for­dæma­lausrar fram­göngu“ hans í kosn­ing­unum, eins og það var orðað í ályktun. Elliði er fljótur til svara þegar hann er spurður út í fram­göngu Páls. „Ég ætla ekki að tjá mig um Pál Magn­ús­son í þessu við­tali. Ég ætla ekki að falla í þá gryfju að ræða þetta út frá ein­stökum per­sónum. Það er til sál­fræði­hug­tak sem heitir stóra eign­un­ar­villan og hún er kölluð það af því að hún er svo algeng. Hún felst í því að ætla per­sónum of stórt hlut­verk. Oftast nær liggur skýr­ingin í ein­hverju öðru en ein­stökum per­sónum. Við eignum ein­stökum per­sónum árangur og eignum ein­stökum per­sónum líka árang­urs­leysi þegar allt aðrir þættir geta legið að baki. Þannig að mér finnst það hvorki sann­gjarnt gagn­vart mér né Páli Magn­ús­syni að ég fari að ræða um meintar per­sónu­legar deilur á milli okkar.“

Rætt er ítar­lega við Elliða í Mannlífi sem kom út í gær.

Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina