Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Vitum við eitthvað um ójöfnuð?

Vitum við eitthvað um ójöfnuð?
Konráð S. Guð­jóns­son.

Lífið væri tals­vert auð­veld­ara ef hið rétta væri alltaf aug­ljóst og aldrei án tog­streitu milli ýmissa þátta. Þannig myndi Facebook eflaust loga mun sjaldnar, stjórn­mál fengju minni athygli og margir fræði­menn myndu missa vinn­una svo fátt eitt sé nefnt. Við gætum sett tærnar upp í loftið og leyft lit­lausu líf­inu að líða áfram.

Efna­hags­legur ójöfn­uður og túlkun á þróun, umfangi og áhrifum hans kemur upp í hug­ann í þessu sam­hengi. Það vill vænt­an­lega eng­inn að allir þén­uðu og ættu jafn­mikið. Til hvers að taka áhættu og leggja sig almennt fram ef svo er í pott­inn búið? Líklega yrði lítið eftir til skipt­anna. Það vill heldur eng­inn að fáir fái notið alls þess sem líf í auð­ugu landi hefur upp á að bjóða. Sann­leik­ur­inn liggur ein­hvers staðar á milli og til að finna hann er fyrsta spurn­ingin: Vitum við hvernig ójöfn­uður þró­ast?

Svarið fer eftir því hvern þú spyrð. Mjög oft heyr­ist að ójöfn­uður fari vax­andi. Sé því mót­mælt, t.d. ef tekjur þeirra tekju­lægstu hækka um fleiri pró­sentu­stig en ann­arra, heyr­ist að eng­inn lifi á pró­sentum eða að krónu­tölu­hækk­anir tekna séu meiri hjá þeim tekju­hærri, svo að ójöfn­uður sé að aukast.

Játning: Ég lifi á prósentum

Þó að eng­inn lifi tækni­lega séð á pró­sentum, þá er það engu að síður þannig að ef kaup­máttur ein­hvers eykst um 10% getur við­kom­andi keypt 10% meira af öllu því sem hann eða hún keypti áður. Krónu­tölu­hækk­anir eru vissu­lega meiri hjá þeim sem eiga meira eða hafa meiri tekjur og slíkur sam­an­burður getur verið gagn­legur. En ólíkt því sem oft er haldið fram er rangt að ójöfn­uður auk­ist við það eitt að þeir tekju­hæstu fái meiri hækkun í krónum talið.

Tökum dæmi: Jón er með 300 þús. kr. á mán­uði og Gunna er með 900 þús. kr. Segjum að Jón hækki um 10% í tekjum á ári en Gunna um 5%. Gunna hækkar fyrst meira í krónum talið en á end­anum þurrkast bilið út og eftir 24 ár er Jón kom­inn með hærri tekjur en Gunna og ójöfn­uð­ur­inn nær horf­inn. Hægt er að gera ótal útfærslur af þessu dæmi en nið­ur­staðan er alltaf sú sama. Það er því stærð­fræði­leg stað­reynd að jöfn­uður eykst, ef hlutur þeirra í lægstu þrep­unum vex hlut­falls­lega hraðar en þeirra í efri þrep­unum. Um þetta er ekki hægt að deila.

Hvað með ójöfnuð á Íslandi?

Tekju­jöfn­uður á Íslandi mæld­ist árið 2016 sá mesti í Evrópu (miðað við GINI-stuð­ul­inn). Fyrir utan fjár­málakrepp­una og aðdrag­anda hennar hefur jöfn­uður hald­ist stöð­ugur og var árið 2016 sá nákvæm­lega sami og 2004. Nýjustu tölur um tekjur ein­stak­linga árið 2017 benda svo ein­dregið til þess að tekju­jöfn­uður hafi auk­ist, einmitt þar sem lægstu tekju­hóp­arnir hækk­uðu áber­andi mest.

Eigna­ó­jöfnuð er erf­ið­ara að full­yrða um einkum þar sem gögn úr skatt­fram­tölum taka ekki til­lit til líf­eyr­is­rétt­inda (sýna meiri ójöfnuð) og verð­bréf eru eign­færð á nafn­virði (sýna minni ójöfnuð). Þrátt fyrir þessa ann­marka heyr­ist oft margt full­yrt um eigna­ó­jöfnuð, þar með talið að eigna­ó­jöfn­uður fari vax­andi. Ekki einu sinni þau gögn sem liggja fyrir styðja þá full­yrð­ingu. Hlut­deild efstu 5%, 1% og 0,1% í eigin fé lands­manna hefur í öllum til­vikum lækkað hvert ein­asta ár frá 2010 til 2016. Það þýðir að virði hreinna eigna þeirra hefur vaxið hægar en ann­arra, sem bendir til þess að eigna­jöfn­uður fari vax­andi.

Röng sjúkdómsgreining – rangar lausnir

Vaxandi ójöfn­uði er stundum kennt um ýmis­legt sem aflaga fer í sam­fé­lag­inu. Það er þó eilítið eins og að setja plástur á sár sem er gróið að ráð­ast í aðgerðir gegn ójöfn­uði þegar hann er einmitt að minnka frekar en aukast. Það sem jafn­vel er verra er að slíkar aðgerðir geta gert alla lands­menn jafn­ari gagn­vart heim­inum, eða með öðrum orðum, fátæk­ari.

Heim­ildir:

https://www.althingi.is/altext/148/s/0041.html

http://appsso.eurostat.ec.europa.eu/nui/show.do?dataset=ilc_di12

http://px.hagstofa.is/pxis/pxweb/is/Samfelag/Samfelag__launogtekjur__3_tekjur__2_tekjur_silc/LIF01110.px/

https://vi.is/malefnastarf/utgafa/stadreyndir/tekjujofnudur-stadreynd/

Konráð S. Guð­jóns­son er hag­fræð­ingur Við­skipta­ráðs. Greinin birt­ist fyrst í Mannlífi 21. sept­em­ber, 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina