Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sigrar og ósigrar Björgólfs

Það þóttu heldur betur tíð­indi þegar Björgólfur Jóhann­es­son hætti í vik­unni sem for­stjóri Icelandair Group eftir ára­tug í starfi.

Í til­kynn­ingu til Kaup­hall­ar­innar er haft eftir honum að ákvarð­anir sem teknar hafi verið á hans vakt hafi valdið félag­inu fjár­hags­legu tjóni og beri hann ábyrgð á því gagn­vart stjórn og hlut­höfum. Við gerð síð­ustu afkomu­spár hafi enn verið gert ráð fyrir því að með­al­far­gjöld á sein­ustu mán­uðum árs­ins myndu hækka, m.a. í sam­ræmi við kostn­að­ar­hækk­anir flug­fé­laga. Nú sé talið að þessar hækk­anir muni ekki skila sér ekki fyrr en á næsta ári. Þá hafi breyt­ingar á sölu- og mark­aðs­starfi félags­ins sem voru inn­leiddar í upp­hafi sum­ars 2017 ekki gengið sem skyldi og breyt­ingar á leiða­kerfi félags­ins í byrjun árs valdið misvægi á milli fram­boðs flugs til Evrópu ann­ars vegar og Norður-Ameríku hins vegar.

„Áhrif þess­arar ákvörð­unar munu vafa­laust ná víðar en til fyr­ir­tækja, sem skráð eru á mark­aði.“

Bæði Björgólfur og stjórn­ar­for­maður Icelandair, Úlfar Stein­dórs­son, segja reyndar að aðgerðir í sölu- og mark­aðs­málum hafi verið vel úthugs­aðar og góðar en ekki verið fylgt nógu vel eftir. Hins vegar hefur hvor­ugur þeirra gert ítar­lega grein fyrir því að hvaða leyti þær hafi verið vel úthugs­aðar, með hvaða hætti eft­ir­fylgnin hafi klikkað og hvað hefði betur mátt gera.

Bogi Nils Bogason, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála félags­ins, mun gegna stöðu for­stjóra tíma­bundið, þar til ráðið hefur verið í stöð­una. Verður Björgólfur félag­inu innan handar að beiðni stjórnar.

Ferill Björgólfs: „Ég er stoltur af þeirri stöðu sem félagið er í núna.“

1 Björgólfur er ráð­inn for­stjóri Icelandair Group árið 2008. Áður hafði hann einkum starfað í sjáv­ar­út­vegi. Fjórum árum síðar er Björgólfur valin við­skipta­maður árs­ins af Við­skipta­blað­inu og Frétta­blað­inu. Í Frétta­blað­inu er m.a. tekið fram að „hryggjar­stykki félags­ins“, Icelandair, hafi aukið sæta­fram­boð og flutt tvær millj­ónir far­þega á árinu sem sé met. Það ráði m.a. val­inu. Í við­tali við blaðið seg­ist Björgólfur líta á þetta sem „við­ur­kenn­ingu fyrir starfs­fólkið“. Í sama við­tali hnýtir hann í ferða­þjón­ust­una á Íslandi með því segja hana skorta stefnu­mótun.

2 Icelandair fær­ist undir Icelandair Group og Björgólfur tekur við stöðu for­stjóra Icelandair í nóv­em­ber 2017. Í til­kynn­ingu frá stjórn eru boð­aðar breyt­ingar á stjórn­un­ar­háttum sam­stæð­unnar sem lúta að rekstri og fjár­málum. Tals­verðar breyt­ingar verða á stjórn­enda­teymi Icelandair þar sem nýir menn leysa reynslu­bolta af hólmi. Birkir Hólm Guðnason sem hafði verið fram­kvæmda­stjóri Icelandair frá árinu 2008, lætur þannig af störfum í nóv­em­ber 2017.

3 Á síð­asta ári sendir félagið frá sér tvær afkomu­við­var­anir þar sem fram kemur að rekstr­ar­nið­ur­staða þess verði lak­ari en búist hafði verið við. Í júlí á þessu ári er birt upp­færð afkomu­spá þar sem hún er lækkuð um 30 pró­sent. Björgólfur segir töl­urnar vera „tals­verð von­brigði“. Í kjöl­far þess lækkar hluta­bréfa­verð félags­ins um fjórð­ung á einum degi. Þótt gengi bréf­anna hríð­falli heyr­ist lítið opin­ber­lega í for­svars­mönnum íslensku líf­eyr­is­sjóð­anna, sem eru meiri­hluta­eig­endur hluta­fjár Icelandair. Sögu­sagnir fara á kreik um að Björgólfur íhugi upp­sögn.

4 Björgólfur lætur af störfum sem for­stjóri á mánu­dag og dag­inn eftir hrynur virði Icelandair enn einu sinni. Mark­aðsvirði félags­ins hefur því fallið skarpt und­an­farna mán­uði og afkoma þess er tals­vert slak­ari en spár gerðu ráð fyrir. Því vekur athygli að í Kast­ljós­svið­tali á þriðju­dag lét Björgólfur eft­ir­far­andi ummæli falla í lok þáttar: „Ég er stoltur af þeirri stöðu sem félagið er í núna.“

Markaðsvirði Icelandair hrunið

2016 Mark­aðsvirði Icelandair náði hæstu hæðum í apríl 2016, þegar það var 189 millj­arðar króna. Eigið fé félags­ins var 57 millj­arðar króna um mitt þetta ár.

2018 Mark­aðsvirði Icelandair hefur hrunið und­an­farna mán­uði og er nú um 40 millj­arðar. Það þýðir að á tveimur árum hafa tæp­lega 150 millj­arðar króna af mark­aðs­geng­inu þurrkast út.

Fleyg orð um ákvörðun Björgólfs að hætta

„Hann leiddi fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu þess og hefur alla tíð lagt áherslu á ábyrgan rekstur og að vöxtur félagssins sé arð­bær til lengri tíma litið. Hann skilur við fjár­hags­lega sterkt félag, Icelandair Group var með 251 milljón USD í hand­bæru fé við lok ann­ars árs­fjórð­ungs og 530 millj­ónir USD í eigin fé.“– Úlfar Stein­dórs­son, stjórn­ar­for­maður Icelandair.

„Allt í einu fékk fras­inn „Þeir fá svona há laun af því að þeir bera svo mikla ábyrgð“–skyndi­lega fékk hann inni­hald og merk­ingu.“– Karl Th. Birg­is­son, rit­stjóri Herðu­breiðar.

„Áhrif þess­arar ákvörð­unar munu vafa­laust ná víðar en til fyr­ir­tækja, sem skráð eru á mark­aði. Líklegt er að þau muni líka ná til stærri óskráðra fyr­ir­tækja og t.d líf­eyr­is­sjóða, þegar árangur af rekstri þeirra stenzt ekki vænt­ingar. Allt stuðlar þetta að heil­brigð­ara við­skipta­lífi. Raunar mættu áhrifin verða víð­tæk­ari, þ.e. að ný við­mið af þessu tagi nái líka til ann­arra þátta sam­fé­lags­ins svo sem til stjórn­mála. Þar er sið­venjan sú að menn hamist við að axla ekki ábyrgð.“– Styrmir Gunn­ars­son á styrmir.is.

Mynd: Skjáskot af RÚV

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina