Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Ég tek þetta á þrjóskunni“

Hákon Atli Bjarka­son ætlar heilt mara­þon, 42 kíló­metra, í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu í hjóla­stól.

„Ég tek þetta á þrjóskunni“
|
Óhætt er að segja að Hákon Atli Bjarka­son, rekstra­stjóri Pizzunnar, sé sann­kall­aður orku­bolti, en fyrir utan að ætla að fara heilt mara­þon, 42 kíló­metra í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu á morgun, þá æfir hann borð­tennis og er Íslands­meist­ari fatl­aðra í borð­tennis.

Hákon Atli Bjarka­son lenti í alvar­legu bíl­veltu árið 2009 þegar hann sofn­aði undir stýri með þeim afleið­ingum að hann hlaut var­an­legan mænu­skaða. Hákon seg­ist þó aldrei hafa látið mænu­skað­ann stöðva sig, þvert á móti og á morgun ætlar hann að gera sér lítið fyrir og fara heilt mara­þon í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu, 42 kíló­metra hvorki meira né minna, sem er það mesta sem hann hefur farið.

„Ég hef tekið þátt síð­ustu 4 ár, tvisvar tíu kíló­metra og tvisvar 21 kíló­metra. Fyrst tók ég 10 kíló­metrana til að sjá hvort ég gæti það, svo tókst mér að fara hálft mara­þon og eftir það hef ég alltaf verið með það á plani að fara 42 kíló­metra, en ég hef ekki lagt í það fyrr en nú. Ég vill bara sanna fyrir sjálfum mér að ég geti þetta og ef þess þarf þá tek ég þetta á þrjósk­unni,“ segir hann ákveð­inn.

Hann við­ur­kennir þó að hafa ekki æft sig mikið, í raun hafi hann bara tekið tvær æfingar. „Í þeirri fyrstu tók ég 28 kíló­metra. Hún var ógeðs­lega erfið en miðað við tempóið sem ég náði þá ætti ég að ná mark­mið­inu sem er undir fjórum tímum. Seinni æfingin gekk ekki síður vel þannig að ég er bjartýnn á að mér gangi vel á morgun.“

Lætur lítið stoppa sig

Talið berst að slys­inu örlaga­ríka og Hákon segir að það sé nokkuð sem líði sér seint úr minni. „Ég sofn­aði undir stýri og velti bílnum. Rétt hjá Skála­fellsaf­leggjara í Mos­fells­dalnum, á leið­inni til Reykja­vikur. Stoppaði hjá afleggjar­anum þar sem ég fann fyrir þreytu, lagði mig i kortér og þegar ég fer af stað er ég greini­lega hálf­sofnadi því kíló­meter seinna vakna ég upp það við að bíll­inn er að velta,“ lýsir hann alvar­legur.

Í kjöl­far slyss­ins var Hákon fluttur með hraði á bráða­mót­tök­una á Land­spít­al­anum í Fossvogi og var í viku á gjör­gæslu. Við tók ströng end­ur­hæf­ing á Grensás þar sem hann var á legu­deild frá júlí til des­em­ber. Hann við­ur­kennir að þetta hafi verið erf­iður tími. Slysið hafi haft þau áhrif að aðstæður hans gjör­breytt­ust og það hafi tekið tíma að byggja upp þrek og styrk og kom­ast á þann stað sem hann er í dag.

„Ég vill bara sanna fyrir sjálfum mér að ég geti þetta og ef þess þarf þá tek ég þetta á þrjósk­unni,“

„En maður aðlag­ast bara breyttum aðstæðum og ég er mjög sáttur við líf mitt í dag. Ég er í góðri vinnu og á kafi í íþróttum, hef lík­leg aldrei verið dug­legri að hreyfa mig,“ segir hann og nefnir í því sam­hengi að árið 2012 hafi hann end­ur­vakið hjóla­stóla­körfu­bolt­ann sem hafði þá legið í dvala síðan 1997. Þess utan æfi hann svo borð­tennis og sé, sem stendur, Íslands­meist­ari fatl­aðra í íþrótt­inni.

„Ég læt voða­lega lítið stoppa mig,“ segir hann og hlær þegar blaða­maður spyr hvar hann fái alla þessa orku. „Og mér finnst mik­il­vægt að ýta undir þann hugs­un­ar­hátt hjá öðrum,“ flýtir hann sér að bæta við. „Þess vegna hef ég til dæmis haldið nám­skeið um notkun hjóla­stóla í dag­legu lífi bæði hér heima og úti, núna síð­ast á end­ur­hæf­ing­ar­nám­skeiði í Svíþjóði. Þannig að kannski má segja að ég sé frekar orku­mik­ill. Ég hef alla vega nóg að gera. Og ef eitt­hvað er finnst mér bara vanta fleiri tíma í sól­ar­hring­inn.“

Ætlar að ná takmarkinu

Spurður hvort hann sé bjart­sýnn á að ná tak­mark­inu í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu á morgun, að fara það á undir fjórum klukku­stundum, seg­ist Hákon vera það. Svo fram­ar­lega sem veð­ur­spáin bregð­ist ekki og það fari að rigna. „Ef það ger­ist, ef það verður grenj­andi rign­ing þá verður gripið ekki mikið á dekkj­unum,“ útskýrir hann, „sem þýðir að það verður þrefalt erf­ið­ara að ýta sér áfram og ná góðu tempói. Við þannig aðstæður fær maður fljótt sár á hend­urnar ætli maður að ná almenni­legri keyrsl-u.“

Hann seg­ist vita að þetta séu háleit mark­mið en það vinni með honum að vera dríf­andi að eðl­is­fari og í góðu formi. Auk þess sé hann búinn að fá góða hvatn­ingu frá vinum og vanda­mönnum og öllum þeim sem hafa þegar heitið á hann í mara­þon­inu en eins og áður sagði, ætlar hann að taka þátt til styrktar SEM, Samtökum end­ur­hæfðra mænu­skadd­aðra á Íslandi. „Það er frá­bært að fá þessa góðu hvatn­ingu,“ segir hann glaður bragði. „Ég er mjög ánægður með hana, þetta á eftir að gefa manni auk­inn styrk á morgun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina