Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Jaðarhópar í samfélaginu fá rödd á leiksviðinu

Jaðarhópar í samfélaginu fá rödd á leiksviðinu
|||

„Leik­fé­lagið Óríon er fyrir alla þá sem hafa áhuga á leik­list og vinn­una í kringum hana. Allir hjálp­ast að, þeir reynd­ari hjálpa og styðja reynslu­minni með­lim­ina,” segir Eygló Ýr Hrafns­dóttir, mark­aðs­stjóri leik­fé­lags­ins Óríon.

Leik­fé­lagið var stofnað árið 2012 af hópi ung­menna sem vildu stunda leik­list utan veggja mennta­skóla. Fyrsta sýn­ing félags­ins, Hvað held­uru að ég sé?, var sett upp í Gafl­ara­leik­hús­inu í Hafn­ar­firði í kjöl­far stofn­unar hóps­ins, en höf­undur þess var Anna Íris Pét­urs­dóttir, leik­stjóri, sem jafn­framt er ein af stofn­endum hóps­ins. Síðan þá hefur Óríón sett upp að minnsta kosti eina sýn­ingu á ári og hafa þær allar átt það sam­eig­in­legt að vera verk eftir skap­andi ung­menni.

Hinsegin karakterar ekki nógu sýnilegir

Eygló Ýr.

Eygló segir að hóp­ur­inn hafi tekið þá ákvörðun fyrir stuttu að leggja ríka áherslu á að fjalla um jað­ar­hópa í sam­fé­lag­inu sem oft gleym­ast í hefð­bundnu leik­húsi og í fjöl­miðlum.

„Þetta er stefna sem hefur alltaf ein­kennt hóp­inn en í ár tókum við þá ákvörðun að gera hana að opin­beru leið­ar­ljósi félags­ins. Ástæðan fyrir þessu er að hinsegin karakt­erar eru alls ekki nógu sýni­legir í nútíma leik­húsi. Þegar þeir koma fram er það oft­ast sam­kyn­heigður cis karl­maður, iðju­lega byggður á staðalí­myndum, auk þess að sýni­leiki ann­arra lita regn­bog­ans er ekki nærri því eins mik­ill,” segir Eygló, en lýs­ing­ar­orðið cis, eða sís, er notað um fólk sem upp­lifir sig á þann hátt að það til­heyri því kyni sem því var úthlutað við fæð­ingu.

„Okkur finnst líka vanta að það sé venju­legt að vera hinsegin á sviði,” bætir Eygló við. „Að karakter sé á ein­hvern hátt hinsegin getur bara verið partur af karakt­ernum, en ekki endi­leg aðal­at­riðið. Gott dæmi er þegar við vorum að vinna með sýn­ingu um barn sem átti venju­leg­ustu, og leið­in­leg­ustu í augum barns­ins, for­eldra í heimi, en ákvörðun var tekin um að það væru tveir feður. Þetta er eitt­hvað sem fólk yfir höfuð pælir kannski ekki mikið í,” segir hún. Þá segir hún einnig að hóp­ur­inn hafi í fyrsta sinn íslenskra leik­hópa verið með eikyn­hneigða per­sónu á sviði, í leik­rit­inu Leigu­morðið, sem er nýjasta verk Óríon sem sett var upp fyrir stuttu. Hugtakið eikyn­hneigð er notað til að lýsa fólki sem lað­ast aldrei, eða nær aldrei, kyn­ferð­is­lega að öðru fólki.

Ekki skilyrði að vera hinsegin

Eygló segir að margir innan hóps­ins séu á ein­hvern hátt hinsegin og því séu heima­tökin hæg þegar fjalla á um hópana undir LGBTIQ+ regn­hlíf­inni.

„Innan okkar raða er fólk alls staðar að úr regn­bog­anum; les­b­íur, pan­sexual, BDSM-hneigðir, fjöl­kærir og fleiri. Þá sjáum við vel hvar mætti gera betur í þessum efnum. Það er samt ekk­ert skil­yrði að vera hinsegin til að vera í leik­fé­lag­inu. Við erum líka með cis gagn­kyn­hneigt fólk í hópnum, sem er ekk­ert verra fyrir það.”
Mynd úr sýn­ing­unni Kart­öflu­dagar.

Telur Eygló það þarft að fjalla um þessa jað­ar­hópa á leik­svið­inu?

„Það er mjög mik­il­vægt að fjalla um jað­ar­hópa. Því meira sem fjallað er um þá ein­stak­linga sem þykja afbrigði­legir, ekki bara vegna kyn­hneigðar sinnar heldur af hvaða ástæðu sem er, og sýna þá í sem venju­leg­asta ljósi, því minni eru for­dóm­arnir og meiri skiln­ingur. Fordómar eiga oft rætur í þekk­ing­ar­leysi, jafn­vel hræðslu, sem á sér upp­tök í fáfræði. Lista­fólk hefur gríð­ar­leg áhrif á menn­ing­una og þar með sam­fé­lagið. Við höfum tæki­færi til að sýna fólki annan heim, heim sem það þekkir ekki endi­lega, en er dag­legt brauð fyrir svo marga. Margir telja sig þekkja til, en sjá eitt­hvað nýtt í okkar verkum eða eitt­hvað gam­alt í nýju ljósi og átta sig þá kannski betur á hlut­unum,” segir Eygló.

Opin fyrir alls konar möguleikum

Úr leik­rit­inu Hvað held­uru að ég sé?

Leik­hóp­ur­inn Óríon er opinn öllum sem hafa áhuga á ein­hvers konar vinnu í leik­húsi og segir Eygló að með­limir leik­fé­lags­ins fagni því að sjá ný and­lit. Meðlimir hóps­ins eru á aldr­inum 16 til 30 ára, en Eygló segir að áhuga­samir þurfi að vera búnir að ná 14 ára aldri til að spreyta sig í félags­skapnum. Hópurinn er byrj­aður að und­ir­búa nýtt verk­efni og er lögð mikil áhersla á að allir með­limir fái að láta ljós sitt skína.

„Mark­miðið er að koma að minnsta kosti einu verk­efni í gang á hverju leik­ári þar sem allir geta fengið að spreyta sig og taka þátt. Við erum opin fyrir alls konar mögu­leikum í leik­húsi og leggjum áherslu á að gefa leik­urum, leik­stjórum, tón­smiðum og höf­undum, sem ekki endi­lega hafa auð­velda leið að leik­húsi, séns á að sanna sig. Þar með eru verkin okkar oft­ast frum­samin. Við erum byrjuð að und­ir­búa næsta verk­efni, en það byrj­aði á sum­ar­nám­skeiði. Við getum ekki látið neitt nákvæmt í ljós eins og er, en mark­miðið er að setja upp sýn­ingu sem hóp­ur­inn ákveður í sam­starfi við leið­bein­endur og leik­stjóra, hvort sem það verður eftir hand­riti eða samið af hópnum,” segir Eygló.

Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér hóp­inn betur er bent á Facebook-síðu hóps­ins. Einnig er hægt að senda tölvu­póst á net­fangið [email protected].

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina