Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Dóra leitar föður síns án árangurs: „Mig langar bara að vita hver pabbi minn er”

Dóra leitar föður síns án árangurs: „Mig langar bara að vita hver pabbi minn er”
|||

„Ég er orðin svo­lítið buguð út af þessu. Kannski er hann dáinn? Kannski var hann að halda fram­hjá og vill ekki að konan sín kom­ist að þessu. Ég bara hrein­lega veit það ekki, en mér finnst skrýtið að eng­inn kann­ist við þetta,” segir Borg­hildur Dóra Björns­dóttir, oft­ast kölluð Dóra.

Dóra veit ekki hver blóð­faðir hennar er, en hefur langað að vita það síðan hún man eftir sér. Fyrir ári síðan aug­lýsti hún, ef svo má segja, eftir honum á Facebook og skrifað var um leit hennar í fjöl­miðlum, til að mynda DV. Nú, ári síðar, hefur hvorki gengið né rekið hjá Dóru sem leitar enn pabba síns.

Dóra vill ekk­ert frá pabba sínum. Hún vill bara hitta hann.

„Mér hefur orðið lítið ágengt í þess­ari leit. Það voru þrír menn sem höfðu sam­band á sínum tíma og héldu að þeir væru pabbi minn. Einn þeirra var alveg viss í sinni sök og hafði sam­band við mig á Facebook í kjöl­far frétt­ar­innar í DV. Hann skrif­aði svo stöðu­upp­færslu á Facebook og sagði að mamma mín hefði ekki viljað að hann færi í DNA próf til að sanna fað­ernið og sagð­ist oft hafa talað við mig í síma. Mamma kann­að­ist við mann­inn en sagði af og frá að hann væri pabbi minn. Þetta var orðið hálf óþægi­legt þannig að ég lok­aði á hann á Facebook. En hann lang­aði alla­vega mikið til að vera pabbi minn,” segir Dóra í sam­tali við blaða­mann Mannlífs.

Enginn passar við lýsinguna

Dóra kom undir í Atlavík árið 1983, nánar til­tekið á sunnu­dags­kvöldið á úti­há­tíð­inni. Það sem hún veit um föður sinn sem hún hefur leitað svo lengi er að hann er rauð­hærður, en var með litað dökkt hár. Hann sagð­ist heita Jónas Haukur Sveins­son, en vera kall­aður Haukur Sveins­son. Hann sagði móður Dóru, sem kölluð var Dæda, að hann væri smiður og að hann ætti fimm ára dóttur sem héti Hulda. Þegar að Dæda og þessi maður stungu saman nefjum var hann víst í svörtum Adidas skóm, bláum galla­buxum og ljós­grárri lopa­peysu með svörtu og hvítu munstri. Þegar Dóra aug­lýsti eftir mann­inum á Facebook lét hún mynd af móður sinni á hátíð­inni fylgja með, í von um að finna föður sinn. Dóra hefur ekki fundið mann­inn sem passar við lýs­ing­una, né mann með þessu nafn, og segir að hann hafi aldrei haft sam­band aftur við móður hennar eftir þetta örlaga­ríka kvöld.

Hér er myndin af Dædu úr Atlavík.

„Hún og afi reyndu að hafa uppá honum þegar hún var ólétt,” segir Dóra og bætir við að sú leit hafi ekki borið árangur. Þegar Dóra kom í heim­inn kom Björn, afi hennar henni í föð­ur­stað og því ber hún föð­ur­nafnið hans í dag.

„Við bjuggum hjá ömmu og afa þar til ég varð sex ára og afi var mikið með mig. Hann gerði allt þetta pabba­stöff með mér og gekk mér í föð­ur­stað. Ég missti mikið þegar hann dó,” segir Dóra, en Björn afi hennar lést árið 2014. Áður en hann lést tók Dóra föð­ur­nafnið hans, en það gekk ekki þrauta­laust fyrir sig.

„Þegar ég tal­aði við Þjóðskrá og sagð­ist vilja taka nafn afa míns þá var mér sagt að pabbi minn yrði að sam­þykkja það,” segir Dóra og hlær. „Ég sagði þá bara: Þið látið mig vita þegar þið finnið hann.”

„Ætli ég eigi systkini þarna úti?”

Dóra segir í raun ekki hafa þurft á föður að halda sökum þess hve mikil föð­urí­mynd afi hennar var henni. Þó tog­aði alltaf í hana að leita að upp­runa sínum.

„Ég hafði alltaf afa en mig lang­aði að vita hver ætti hinn helm­ing­inn í mér. Ég er ekk­ert lík mömmu minni, en hún er búin að segja að ég sé hávaxin eins og pabbi og með sömu augn­um­gjörð,” segir Dóra og bætir við að hana langi einnig að finna föður sinn uppá að finna jafn­vel systk­ini sín.

„Ég á engin systk­ini en væri alveg til í það. Mig hefur alltaf langað til að eiga fjöl­skyldu sem er náin og legg mig mikið fram við að vera góð móðir barn­anna minna. Ætli ég eigi systk­ini þarna úti?”

Pældi í því hvort kærastinn væri bróðir hennar

Sæt mynd af Dóru og Birni afa hennar, sem lést fyrir fjórum árum.

Dóra er 34 ára, þriggja barna móðir í dag og er í sam­búð. Hún hefur reynt ýmis­legt til að hafa uppá föður sínum í gegnum tíð­ina en svo virð­ist sem mað­ur­inn hafi hrein­lega gufað upp. Henni hafa borist ýmsar ábend­ingar í gegnum Facebook og haugur af myndum af hátíð­inni í Atlavík en ekk­ert hefur gengið í leit­inni. Það finnst henni skrýtið.

„Mér finnst skrýtið að maður hittir hell­ing af fólki sem mann langar ekki að hitta á hverjum degi því Ísland er svo lítið. En af hverju ekki hann? Ég pældi oft í því þegar ég var ung­lingur og var að byrja með strák að hann gæti verið bróðir minn. Ég spurði meira að segja kærast­ann minn sér­stak­lega hvort pabbi hans hefði nokkuð verið í Atlavík árið 1983,” segir hún og brosir.

Langar bara að hitta hann

Dóra veit ekki hve lengi hún ætlar að halda leit­inni til streitu, enda bara rek­ist á veggi síð­ustu ár. En hvað ef dag­ur­inn kemur loks­ins að hún hittir föður sinn? Er hún búin að ákveða hvað hún ætlar að segja við hann?

„Mig langar bara að hitta hann. Ég er ekki að fara fram á neitt frá honum. Ef hann vill ekk­ert með mig hafa þá verður bara að hafa það. En mig langar alla­vega að sjá hann og von­andi vilja börnin hans kynn­ast mér og minni fjöl­skyldu. Það er leið­in­legt að þurfa að taka það fram en ég er ekki að fara fram á pen­inga frá honum eða neitt svo­leiðis. Mig langar bara að vita hver pabbi minn er.”

Hér fyrir neðan má sjá aug­lýs­ing­una svoköll­uðu sem Dóra birti á Facebook, en henni hefur verið deilt rúm­lega þús­und sinnum:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina