Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

19 ára New York-búi gerir heimildarmynd um íslenska sauðfjárbændur

19 ára New York-búi gerir heimildarmynd um íslenska sauðfjárbændur
||

„Það sem veitir mér inn­blástur eru mál sem snerta venju­legt fólk, hvort sem það býr í stríðs­hrjáðum löndum, er heim­il­is­laust í New York eða þarf að bregð­ast við breyttu lands­lagi í sauð­fjár­bú­skap á Íslandi,“ segir nem­inn, ljós­mynd­ar­inn og kvik­mynda­gerð­ar­mað­ur­inn Erik Kantar. Erik er nítján ára gam­all og vinnur nú að heim­ild­ar­mynd um íslenska sauð­fjár­bændur. Hann féll fyrir landi og þjóð í fyrra og ákvað í kjöl­farið að kafa ofan í heim fjár­bænda.

Fór á puttanum um Ísland

Erik við störf í íslenskri nátt­úru.

„Mig hafði alltaf dreymt um að fara til Íslands þannig að í fyrra lét ég hvat­vísi ráða för og pant­aði sextán daga ferð og kom til lands­ins án þess að vera með hótel bókað. Ég var svo spenntur að koma á stað­inn. Ég fór á putt­anum um landið og varð ást­fang­inn af öllu við Ísland. Alveg síðan þá hefur hjarta mitt sagt mér að kom aftur. Ég þurfti að finna mér verk­efni svo ég gæti gert eitt­hvað stærra en bara heim­sækja landið,“ segir Erik og brosir.

„Ég valdi að gera heim­ild­ar­mynd um sauð­fjár­bændur því iðn­að­ur­inn er að deyja á smærri býlum. Yfirvöld hafa gert þessum bændum erfitt fyrir að lifa af starf­inu eins og þeir gerðu áður fyrr. Þessi iðn­aður er að breyt­ast hratt og myndin mun fjalla um það.“

Í anda Vice

Hann segir að myndin verði í anda heim­ild­ar­þátta frá Vice Media.

„Markmið mynd­ar­innar er mjög hnit­miðað. Myndin fjallar um hið geysistóra vanda­mál sem sauð­fjár­bændur standa frammi fyrir í dag, sem í raun neyðir þá til að hætta búskap, og hvernig ein fjöl­skylda er að kljást við þetta vanda­mál. Í stuttu máli er mark­mið mynd­ar­innar að sýna þessar breyt­ingar í bús­skapnum í gegnum líf einnar fjöl­skyldu.“

Erik er nýsnú­inn aftur til Banda­ríkj­anna eftir að hafa eytt tíma hér á landi við tökur. Hann fékk gist­ingu hjá bænd­unum á Hólum í Búðardal, sem reka einnig lít­inn hús­dýra­garð sem er opinn á sumrin og lík­aði dvölin vel.

„Fjöl­skyldan hafði frá­bæra sögu að segja fyrir mynd­ina,“ segir Erik dulur og vill ekki gefa of mikið upp um það. Erik snýr svo aftur til Íslands í réttir í haust til að taka upp meira efni og klárar mynd­ina í kjöl­farið. Hægt verður að horfa á mynd­ina á heima­síðu hans, erik­k­ant­ar­photo.com en hægt er að fylgj­ast með fram­gang mynd­ar­innar á Instagram síðu hans undir nafn­inu @erikkantar.

En hvað tekur svo við hjá Erik?

„Ég get ekki sagt til um það strax. En Ísland er alltaf í hjarta mínu þegar ég leita að sögu.“

Byggðastofnun skoðaði dreifingu sauðfjár á Íslandi árið 2016 miðað við ásetning það ár. Þá kom fram að …

… fjöldi sauð­fjár­búa hér á landi væri 2481 tals­ins
… búunum hafði fækkað um sautján bú frá árinu áður
… lang­flest búin töldu 199 eða færri kindur, eða 63,5%
… stærstu búin sem héldu 600 kindur eða fleiri væru aðeins 125 tals­ins

Meeee!
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina