Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Önnur konan af þremur stígur fram

Önnur konan af þremur stígur fram
14. tbl. 2018

Kiana Sif Limehouse prýðir for­síðu 14. tölu­blaðs Mannlífs sem kemur út á morgun, föstu­dag­inn 8. júní. Kiana var barn þegar brotið var ítrekað á henni kyn­ferð­is­lega, að hennar sögn. Meintur ger­andi var þáver­andi stjúp­faðir hennar, sá hinn sami og Helga Elín sagði í 12. tölu­blaði Mannlífs hafa mis­notað sig kyn­ferð­is­lega í sum­ar­bú­stað þegar hún var tíu ára gömul. Kiana og Helga eru tvær af þremur stúlkum sem sök­uðu mann­inn, sem er lög­reglu­maður, um kyn­ferð­is­brot en málin voru felld niður. Maðurinn starfar enn í lög­regl­unni.

Sjá einnig: „Rík­is­lög­reglu­stjóri brást dóttur minni“.

„Ímynda ég mér stundum hvernig lífið hefði verið öðru­vísi ef þetta hefði ekki gerst? Já, algjör­lega. En maður lifir bara með því sem hendir mann. Föð­ur­ættin mín er mjög trúuð og hefur föð­ur­amma mín talað um að Guð sendi ein­ungis það til manns sem maður getur tek­ist á við. Ég er ekki eins trúuð og hún og get því miður ekki fundið neina rétt­læt­ingu á því sem gerð­ist,“ segir Kiana. Hún á banda­rískan föður og íslenska móður sem skildu þegar hún var þriggja ára gömul. Þá byrj­aði móðir hennar að vera með manni sem Kiana segir að hafi brotið á sér kyn­ferð­is­lega.

„Ég svaf alltaf uppi í rúmi hjá mömmu þegar hann var að vinna. Þegar hann færði mig á milli rúma man ég eftir að hann byrj­aði að þukla brjóstin á mér. Ég var vak­andi en lét sem ég svæfi. Ég vissi að þetta var ekki rétt en ég sagði ekki neitt. Ég var lítil og hafði ekki vit á því að þetta væri óeðli­legt.

Síðan fór þetta að vinda upp á sig. Hann bauð mér að smakka áfengi og ein­hverju síðar man ég eftir honum stand­andi í dyr­unum á her­berg­inu mínu þegar ég var sof­andi. Þá hafði hann verið að drekka og þukl­aði á sjálfum sér. Eitt kvöldið tók hann það skref að koma inn í her­bergið mitt og snerta mig,“ segir Kiana.

Þjökuð af samviskubiti

Mæðgurnar Helga Elín og Halldóra Bald­urs­dóttir sögðu, eins og fyrr segir, sögu sína í 12. tölu­blaði Mannlífs. Þær sögðu frá meintri mis­notkun á Helgu Elínu sem átti sér stað í sum­ar­bú­stað­ar­ferð, að þeirra sögn. Sum­ar­bú­stað­ar­ferð sem Kiana, ein af hennar bestu vin­konum, hafði boðið henni í. Í kjöl­far ferð­ar­innar slitn­aði upp úr vin­skapnum en fyrir nokkrum árum náðu þær að dusta rykið af kunn­ings­skapnum. Kiana var lengi vel þjökuð af sam­visku­biti yfir því sem gerð­ist í sum­ar­bú­staða­ferð­inni en skilur í dag að atburð­ar­rásin þar var ekki henni að kenna.

Kiönu blöskrar að meintur ger­andi sinn vinni enn innan veggja lög­regl­unnar. Lesa má nánar um málið í Mannlífi á morgun og hér á vefnum.

Sjá einnig: „Hann sýndi að mínu mati ekki kjark og þor til að standa með barn­inu mínu“.

Málið í hnotskurn

Lög­reglu­mað­ur­inn sem þrjár stúlkur sök­uðu um kyn­ferð­is­brot starf­aði áfram meðan á rann­sókn allra mál­anna þriggja stóð. Málin voru ekki rann­sökuð saman. Eftir að málin voru felld niður hélt lög­reglu­mað­ur­inn starf­inu. Í máli Helgu Elínar liggja fyrir skýrslur frá sér­fræð­ingum í Barna­húsi sem stað­festu að Helga Elín hefði orðið fyrir miklum skaða í umtal­aðri sum­ar­bú­stað­ar­ferð.

Eins og hefur komið fram voru vinur lög­reglu­manns­ins, sem er hátt­settur emb­ætt­is­maður hjá hinu opin­bera, og eig­in­kona hans með í sum­ar­bú­stað­ar­ferð­inni. Að sögn Halldóru Bald­urs­dóttur, móður Helgu Elínar, tók skýrslu­taka yfir vina­hjón­unum aðeins örfáar mín­útur og fór fram á skrif­stofu emb­ætt­is­manns­ins. Þau hjónin og eig­in­kona sak­born­ings báru fyrir sig minnis­leysi vegna áfeng­is­drykkju og nið­ur­fell­ing máls­ins var meðal ann­ars byggð á þeirra vitn­is­burði. Við rann­sókn máls­ins kom fram að klám­efni hafði verið haft fyrir börn­unum í umræddri sum­ar­bú­staða­ferð. Umrædd vina­hjón voru aldrei spurð út í klám­mynda­á­horfið og tölva sak­born­ings var ekki skoðuð. Þegar lög­regla skoð­aði sum­ar­bú­stað­inn fór hinn meinti kyn­ferð­is­af­brota­maður með á vett­vang.

Sjá einnig: Segist ekki hafa brugð­ist dóttur Halldóru.

Að sögn Halldóru kemur fram í rann­sókn­ar­gögnum að lög­reglu­mað­ur­inn hafi sakað stelp­urnar þrjár um sam­særi gegn sér og að ekk­ert hafi verið gert til að hrekja slíkt. Halldóra hefur óskað eftir því við Nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu að máls­með­ferðin verði skoðuð. Eitt að því sem hún gagn­rýndi harð­lega var að þrátt fyrir að þrjár stúlkur hefðu kært lög­reglu­mann­inn hefðu málin ekki verið rann­sökuð saman og ekk­ert brugð­ist við full­yrð­ingum lög­reglu­manns­ins um að stúlk­urnar þrjár hefðu uppi sam­særi gegn sér.

Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi