Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Eineltið versnaði þegar Eva varð ólétt í 9. bekk: „Þá fékk ég fyrst að kynnast líkamlegu ofbeldi“

Eineltið versnaði þegar Eva varð ólétt í 9. bekk: „Þá fékk ég fyrst að kynnast líkamlegu ofbeldi“
|

„Ég varð rosa­lega þung­lyndi, þjáð­ist af miklum kvíða og sér­stak­lega félags­fælni. Ég á til dæmis mjög erfitt með að svara sím­anum, tala við fólk sem ég þekki ekki, fara í Kringl­una eða Smára­lind­ina og hvað þá að láta sjá mig í Hafn­ar­firði,“ segir Eva Rún Haf­steins­dóttir, blogg­ari á maedur.com, í sam­tali við Mannlíf.

Eva byrj­aði skóla­göngu sína í Reykja­vík og var lögð í ein­elti frá 1. til 4. bekk, eða allt þar til hún flutti með fjöl­skyldu sinni á Selfoss.

„Ég upp­lifði mikið and­legt ein­elti. Ég var þybb­inn krakki og fékk sko aldeilis að heyra það. Við mæðgur vorum ekki vað­andi í pen­ingum og ég átti ekki nýj­ustu fötin eins og hinir krakk­arnir,“ segir Eva, sem lenti einnig í að vera mis­notuð að unga aldri.

„Ég var mis­notuð af eldri strák sem var með mér í skóla og hann mont­aði sig af því. Eftir það var ég alltaf litla feita druslan.“

Ráðist á hana tvisvar því hún var ólétt

Eva er búin að vinna mikið í sér sjálfri.

Eva segir betri til­veru hafa tekið við á Selfossi.

„Þar var ég ekki dæmd fyrir útlitið mitt. Þar áttu krakk­arnir ekki nýj­ustu fötin né dæmdu þig fyrir að vera öðru­vísi. Við vorum öll jöfn,“ segir Eva. Um miðjan sjö­unda bekk flutti hún síðan til Hafn­ar­fjarðar og byrj­aði í Víði­staða­skóla. Hún náði að sam­lag­ast vel og eign­ast góðar vin­konur. En þegar hún byrj­aði í níunda bekk eftir sum­ar­frí dundi áfall yfir Evu – hún var með barni.

„Mér leið skelfi­lega, það er varla hægt að lýsa til­finn­ing­unni. Mér leið eins og partur af mér hefði horfið,“ segir Eva og bætir við að við­horf sam­nem­enda sinna hafi breyst mikið við þessar fréttir.

„Þegar ég til­kynnti ólétt­una mína, þá var þetta svo­lítið eins og ég hefði kastað ban­vænum sjúk­dómi inn í skóla­stofu og lokað hurð­inni. Það þorði eng­inn að tala við mig, fólk pískraði sín á milli í stað­inn. Og þá fékk ég fyrst að kynn­ast lík­am­legu ofbeldi, en það var í tvígang ráð­ist á mig og ég kýld „því það var ógeðs­legt að vera ólétt 14 ára“. Ég hafði ekki hug­mynd um að krakkar gætu orðið svona vondir. Eggjum var kastað í húsið mitt, það var kúkað í poka og hann settur í skáp­inn minn, krakkar gerðu símaat í mér, ég var elt heim úr skól­anum, niðr­andi orð voru látin falla um mig, ég fann fyrir miklu áreiti á inter­net­inu og svo fram­vegis.“

Það vita allir hver ég er

En hvernig var að verða móðir bara fjórtán ára gömul?

„Það var drullu­erfitt, ég ætla alls ekk­ert að skafa af því. Mér hefði aldrei grunað að þetta ætti eftir að verða svona erfitt. Ég upp­lifði mikla for­dóma, sér­stak­lega vegna ald­urs­mun­inum á mér og barns­föður mínum, en hann er fimm árum eldri en ég. Í dag á ég 2 börn og því­líkur munur að eign­ast barn 14 ára og 22 ára,“ segir Eva. Hún seg­ist enn finna fyrir því að fólk pískri um hana og hennar aðstæður.

„Það vita allir hver ég er. Ég vill ekki meina að fólk í dag dæmi mig fyrir að vera ung móðir, en ég veit að fólk hneyksl­ast enn þá yfir því.“

Eva segir það hjálpa sér mikið að opna á þetta ein­elti sem hún hefur þurft að þola nán­ast allt sitt líf og hefur unnið mikið í sér sjálfri síð­ustu ár.

„Ég vakna á hverjum morgni og segi við sjálfa mig að í dag verði góður dagur. Það hefur virki­lega hjálpað mér svo ég detti ekki í sjálfs­vorkun.“

Einelti drepur

En hvað vill Eva segja við þá sem eru í sömu sporum og hún var, það er þolendur ein­eltis?

„Stattu upp fyrir sjálfum þér. Ég er ótrú­lega reið út í sjálfa mig fyrir að hafa ekki staðið með sjálfri mér, því ég átti þetta ekki skilið. Það á eng­inn skilið að vera lagður í ein­elti,“ segir Eva. Ekki stendur á svör­unum þegar ég spyr hvað hún vill segja við þá sem leggja í ein­elti.

„Hættu því strax! Það hefur sýnt sig og sannað að ein­elti drepur, ef ekki þá skilur það eftir djúp sár. Ef þú hefur lagt í ein­elti og ert að lesa þetta, farðu þá og biddu mann­eskj­una afsök­unar, það er besta með­alið fyrir sárin. Ég vildi óska þess að ger­end­urnir mínir myndu biðja mig afsök­unar.“

Myndir / Úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við