Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Börn eiga ekki að þurfa að verða fyrir kynferðisofbeldi

Félaga­sam­tökin Blátt áfram hafa hrint af stað lands­söfnun undir yfir­skrift­inni „Vertu vernd­ari“ í því skyni að efla fræðslu og for­varnir gegn kyn­ferð­is­of­beldi á börnum. Sigríður Björns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri og einn stofn­enda Blátt áfram, seg­ist hafa upp­lifað mikla við­horfs­breyt­ingu hjá almenn­ingi gagn­vart þessum erf­iða mála­flokki á þeim 14 árum sem sam­tökin hafa starfað, en segir að enn sé af nógu að taka eins og #metoo-bylt­ingin hafi sýnt fram á.

Börn eiga ekki að þurfa að verða fyrir kynferðisofbeldi

„Þetta er allt annað í dag. Það er kom­inn miklu betri skiln­ingur á kyn­ferð­is­of­beldi og þeim skelfi­legu afleið­ingum sem það getur haft og við sem sam­fé­lag almennt miklu með­vit­aðri um hvað það er mik­il­vægt að koma í veg fyrir það,“ segir Sigríður, spurð hvernig henni finn­ist við­horfið gagn­vart umræð­unni um kyn­ferð­is­of­beldi á börnum hafa breyst frá því að sam­tökin voru stofnuð.

„Fólk er almennt bæði betur upp­lýst og til­bún­ara að afla sér fræðslu en áður,“ heldur hún áfram. „Það hringir til okkar, leitar sér hjálpar og breytir við­brögðum sínum eftir að fengið for­varn­ar­fræðslu hjá Blátt áfram, sem er besta upp­skera við­fangs­efna okkar,“ segir hún og nefnir sem dæmi að síð­ast­lið­inn vetur hafi Blátt áfram farið af stað með nýtt verk­efni ætlað for­eldrum og aðstand­endum barna sem hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi og því hafi verið vel tekið. „Talið er að um 17 til 27 pró­sent barna verði fyrir kyn­ferð­is­of­beldi eða áreitni fyrir 18 ára aldur og for­eldrar þess­ara barna eiga oft um sárt að binda. Telja sig ekki hafa staðið sig vel í for­eldra­hlut­verk­inu og eru af þeim sökum stundum upp­fullir af skömm, reiði og sekt­ar­kennd. Við ákváðum að bjóða upp á stuð­ings­hóp fyrir for­eldra og aðstand­endur því með­ferð barna fer tölu­vert eftir því hvernig for­eldrum tekst að halda utan um eigið líf,“ útskýrir hún.

„Árið 2014 sendum við Vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu drög að aðgerð­ar­á­ætlun fyrir for­varnir gegn kyn­ferð­is­of­beldi á lands­vísu en ráða­menn eru fyrst núna að taka við sér og átta sig á mik­il­vægi for­varna til langs tíma.“

Hún nefnir líka nám­skeiðið „Vernd­arar barna“ sem er eitt af helstu verk­efnum Blátt áfram og er gagn­reynt efni byggt á rann­sóknum. „Þetta er mark­viss og öflug fræðsla fyrir full­orðna, for­eldra og aðila sem starfa með börnum og ung­mennum. Fræðsla sem stofn­anir og sveita­fé­lög nýta sér til að efla þekk­ingu og færni meðal starfs­fólks við störf sín og hjálpar því að taka sam­stundis á óæski­legri hegðun ann­arra full­orð­inna og hjálpar börnum að greina strax frá ofbeldi.“

Ráðamenn fyrst núna að taka við sér
Sigríður segir það vera góða þróun að sveit­ar­fé­lög og stofn­anir séu farin að taka ábyrgð á vel­ferð barna og ung­menna með mark­vissri þjálfun starfs­stétta sem starfa með þessum ald­urs­hópum. „Það er góð til­finn­ing að sjá slíkan árangur en ég við­ur­kenni samt sem áður að ég hefði viljað sjá fleiri breyt­ingar í sam­fé­lag­inu og þær mættu hafa gerst hraðar og fyrr.

Árið 2014 sendum við til dæmis Vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu drög að aðgerð­ar­á­ætlun fyrir for­varnir gegn kyn­ferð­is­of­beldi á lands­vísu en ráða­menn eru fyrst núna að taka við sér og átta sig á mik­il­vægi for­varna til langs tíma. Fólk er að átta sig á því að for­varnir gegn kyn­ferð­is­legu ofbeldi á bör­unum eru líka for­varnir gegn sjálfs­vígum, áfengis- og vímu­efna­notkun, mat­ar­fíkn og öðrum afleið­ingum sem valda fólki með áfalla­sögu úr æsku meiri vanda, langt fram á full­orð­ins­árin. Að áföll í æsku hafa langvar­andi afleið­ingar á allt lífið og með því að fækka slíkum áföllum höfum við áhrif á svo margt fleira en bara ein­stak­ling­inn sjálfan. Að starfið sem Blátt áfram innir af hendi og bar­áttan gegn kyn­ferð­is­of­beldi á börnum er ekki stakt átaks­verk­efni.“

Íslend­ingar stutt komnir í bar­átt­unni
Spurð hvort það sé ekki búið að vera strembið að standa í brúnni í öll þessi ár við­ur­kennir Sigríður að vissu­lega hafi það oft tekið á. „Það er krefj­andi að vera í far­ar­broddi með umræðu um jafn­vanda­samt og sárs­auka­fullt mál­efni og kyn­ferð­is­of­beldi á börnum,“ segir hún. „En á sama tíma er gott að sjá árangur af starf­inu. Fólk kemur og þakkar okkur fyrir að vera með fræðslu og segir að sam­tökin hafi bjargað sér. Eins og þegar ung kona stöðv­aði mig á förnum vegi fyrir skömmu og sagði mér frá því að vegna fræðslu sem hún hafði fengið hjá Blátt áfram í skól­anum sínum þegar hún var yngri hafi hún strax getað greint frá ofbeldi sem hún varð síðar fyrir. Það er gef­andi að heyra svona sögur. Að fá að vita að við erum að bjarga manns­lífum.“

Heldurðu að þess­ari bar­áttu, bar­átt­unni gegn kyn­ferð­is­of­beldi á börnum, komi ein­hvern tím­ann til með að ljúka? „Ég held að henni ljúki ekki, nei,“ svarar hún, „en verk­efnin breyt­ast og við sjáum það á þeim þjóðum sem eru komnar lengra en við Íslend­ingar í for­vörnum gegn kyn­ferð­is­of­beldi hvað við erum raun­veru­lega stutt á veg komin í að upp­ræta ofbeldi á börnum.“

Gerendur ekki með horn og hala
En hvernig sérðu fyrir þér að við getum unnið betur á þessu sam­fé­lags­meini sem kyn­ferð­is­of­beldi er? „Sam­fé­lags­meinið er til dæmis vandi okkar að horfast í augu við hverjir það eru sem brjóta gegn börnum. Að átta sig meðal ann­ars á því að ger­end­urnir eru ekki með horn og hala. Að flestir sem brjóta gegn börnum eru tengdir þeim með ein­hverjum hætti. Ef við viljum stöðva ofbeldið þurfum við að taka það með inn í mynd­ina. Við þurfum að vera til­búin að bregð­ast við óþægi­legri hegðun ann­ars full­orð­ins fólks gagn­vart börnum og þannig vernda börnin,“ svarar hún og getur þess að ein leiðin til þess sé einmitt að leggja Blátt áfram lið.

„Sam­fé­lags­meinið er … vandi okkar að horfast í augu við hverjir það eru sem brjóta gegn börnum. Að átta sig meðal ann­ars á því að … flestir sem brjóta gegn börnum eru tengdir þeim með ein­hverjum hætti.“

„Blátt áfram er rekið með styrkjum og frjálsum fram­lögum ein­stak­linga, fyr­ir­tækja og félaga. Fleiri aðilar styðja við bakið á okkur sem störfum að for­vörnum gegn kyn­ferð­is­of­beldi með ýmsum hætti þótt hann sé sjaldn­ast nægur. Þess vegna skiptir lands­söfnun félags­ins sem er í gangi núna miklu máli. Lykla­kippan sem er til sölu felur í sér stuðn­ing til okkar. Salan er mik­il­vægur liður í því að afla fjár til að sinna brýnum verk­efnum sem eru mörg og fjölgar árlega. Hún er liður í því að hjálpa öðrum til betra lífs. Liður í því að hjálpa sam­fé­lag­inu að bæta til­veru okkar allra. Í því að hjálpa okkur að koma í veg fyrir kyn­ferð­is­of­beldi á börnum.“

Stöðvum ofbeldi gegn börnum
Að sögn Sigríðar vita flestallir Íslend­ingar nægi­lega mikið um þessi mál í dag, til dæmis með til­komu nýlegra bylt­inga, eins og #metoo þar sem fjöldi kvenna hefur stigið fram og greint frá kyn­ferð­is­áreiti og ofbeldi sem þær hafa orðið fyrir, margar hverjar á á barns­aldri, til að vera með­vit­aðir um nauð­syn þess að koma í veg fyrir að slíkt ofbeldi eigi sér stað. „Við vitum nægi­lega mikið um það hvernig það ger­ist og þá er komin tími til að koma í veg fyrir það. Börn eiga ekki að þurfa að verða fyrir þessu ofbeldi,“ segir hún. „Þess vegna hvet ég sem flesta að ger­ast „vernd­arar“ með því að styðja Blátt áfram í því að stöðva það, þetta ofbeldi á börnum, til dæmis með því að kaupa fyrr­nefndu lykla­kipp­una sem er til sölu í lands­söfnun félags­ins eða með því að styrkja starfs­semi þess með mán­að­ar­legum greiðslum. Tæki­færið sem við höfum núna til þess að reyna að vinna gegn því er ein­stakt fyrir sam­fé­lagið okkar. Tíminn er núna.“

Mynd / Sig­tryggur Ari Jóhanns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina