Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Öflugt útspil frá Toyota

Toyota C-HR er skemmti­legur tvinn­bíll, vel útbú­inn og góður í akstri.

Öflugt útspil frá Toyota
|||

Gefum okkur þú standir fyrir framan fata­skáp­inn og sért á leið í veislu. Þar verður margt fólk sem þú þekkir lítið en þú lítur upp til. Því viltu koma vel fyrir, falla í hóp­inn en að sama skapi marka þér sér­stöðu. Þú vilt koma skila­boð­unum á fram­færi um að þú sért til í ævin­týri og ótt­ist ekk­ert, en um leið ertu ekki að fara taka þátt í neinu rugli eða koma þér og þínum í vand­ræði. Hvaða föt vel­urðu?
Toyota C-HR er bíll sem var í þess­ari stöðu og ákvað að fara í fín­ustu skyrt­una sína og leð­ur­jakka, stutt­buxur og hlaupa­skó. Allt frá­bærar hug­myndir sem að öllu jöfnu ættu ekki að ganga upp saman en á ein­hvern und­ar­lega heill­andi hátt mynda frá­bæra blöndu.

Aftari hurð­ar­opn­ar­inn er á óvenju­legum stað og er einn af fjöl­mörgum sterkum útlitsein­kennum C-HR.

Þegar ég sett­ist upp í Toyota C-HR leið mér strax vel. Að utan er bíll­inn skemmti­lega agressívur, allar línur afger­andi og bein­sk­eittar. Eylítið grodd­ara­legar en á mjög skemmti­legan hátt, svo­lítið eins og leð­ur­jakki. Hann öskrar á mann að hann sé til í þjóð­veg­inn og að fara með þig alveg á enda slóð­ans.

Þegar sest er inn í bíl­inn er upp­lifun mun mýkri og fág­að­ari. Egypsk bóm­ull kemur upp í hug­ann. Þrátt fyrir að um smá­bíl sé að ræða finnur maður strax að Toyota hefur vandað inn­við­inn. Allt efn­is­val og áferð gefa til kynna að meira er í lagt en í hinn hefð­bundna smá­bíl. Þarna kemur fyrsta mót­sögnin sem ég verð að segja að kom skemmti­lega á óvart. Þessi auknu gæði skila sér eðli­lega í hærra verði og vekur athygli að hægt er að fá til bæði Prius og Avensis á hag­stæð­ara kjörum.

Haldið skal til haga að ég keyrði Hybrid C-HIC-útgáfu bíls­ins sem er eins­konar lúxus­út­gáfa, vel úti­látin auka­bún­aði. Komum að því síðar.

C-HR er ynd­is­legur bíll sem auð­velt er að líka vel við. Það er gott að keyra hann, hann er eyðslu­grannur, vel heppn­aður í útliti að innan sem utan, og svo er þetta Toyota.

Verandi tvinn­bíll er eyðslan auð­vitað komin í allt annan flokk. Hún er upp­gefin 3,9 l/100 km en í akstri mínum var ég reyndar eylítið undir þeirri tölu. Öflugir hlaupa­skór það.

Rafkerfi bíls­ins er að sama skapi þungt og gerir tvinn­út­gáfu bíls­ins ögn þung­lama­legri en systra­út­gáf­una án tvinn­kerf­is­ins. Ekki mis­skilja, ég hefði aldrei haft orð á því hefði ég ekki prófað báðar útgáfur. Tvinn­bíll­inn er mjög snarpur og skemmti­legur í akstri á allan hátt. Ég upp­lifði aldrei að mig vant­aði meira afl frá vél­inni eða meiri snerpu frá sjálf­skipt­ing­unni. Allir hlutar bíls­ins unnu vel saman, en bara aðeins betur í bens­ín­bílnum. En þá eykst eyðslan svo ég myndi hik­laust mæla með tvinn­út­gáf­unni.

Það er hægt að púsla bílnum saman á marga vegu er kemur að útliti og auka­bún­aði. Í C-HIC-útgáf­unni er meðal ann­ars leð­ur­sæti og leður í mæla­borði. Ætli hver og einn verði ekki að eiga það við sjálfan sig hvort líf við­kom­andi þarfn­ist leð­urs í mæla­borðið.

Skjárinn fyrir akst­urs­tölv­una er líka óvenju stór miðað við aðra hluta mæla­borðs­ins. Ég fuss­aði yfir því til að byrja með en tók hann algjör­lega í sátt þegar stórir hnappar skjás­ins gerðu allar skip­anir svo miklu auð­veld­ari á ferð­inni. Þar til bíll­inn til­kynnti að mér hefði borist tölvu­póstur og hvort ég vildi ekki lesa hann. Fyrir utan að nú á að átt­falda sekt­ar­upp­hæðir fyrir afglöp undir stýri sam­an­borið allt síma­bras, fannst mér það algjör­lega fjar­stæðu­kennt að lesa og hvað þá svara tölvu­pósti á ferð.

Augljóst er að Toyota hefur ákveðið að leggja vel í innri búnað C-HR sem er afar vel heppn­aður.

C-HR er búinn einum kosti sem ég hef ekki fundið í neinum öðrum bíl í sama stærð­ar­flokki. Öku­mað­ur­inn situr nógu hátt til að losna við til­finn­ing­una að rass­inn sé við það að skrapa mal­bikið. Það er líka mjög auð­velt að setj­ast inn í hann og standa upp, sem er alveg ynd­is­legt fyrir fóta­fúna öku­menn eins og mig. Þetta skiptir alveg ótrú­lega miklu máli.

C-HR er búinn einum kosti sem ég hef ekki fundið í neinum öðrum bíl í sama stærð­ar­flokki. Öku­mað­ur­inn situr nógu hátt til að losna við til­finn­ing­una að rass­inn sé við það að skrapa mal­bikið. Það er auð­velt að setj­ast inn í hann og standa upp, sem er alveg ynd­is­legt fyrir fóta­fúna öku­menn eins og mig.

En að helsta galla C-HR: Buxunum, eða stutt­bux­unum (ef svo má að orði kom­ast). Skott­pláss er af skornum skammti. Sé litið á upp­runa­lega mark­hóp bíls­ins, ungt fólk í borgum, þá er þetta þónokkur ókostur því erfitt er að koma til dæmis barna­kerru fyrir.

Fyrir utan það, er C-HR ynd­is­legur bíll sem auð­velt er að líka vel við. Það er gott að keyra hann, hann er eyðslu­grannur, vel heppn­aður í útliti að innan sem utan, og svo er þetta Toyota. Og varð­andi verðið … Ef þér líkar ekki við hann get­urðu alltaf selt hann aftur, mögu­lega með hagn­aði því slíkt eru end­ur­sölu­gildi Toyota hér á landi.

Eitt helsta ein­kenni C-HR eru aft­ur­ljósin sem eru einn af þessum hlutum sem maður annað hvort elskar eða hatar.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina