Tilgangurinn er að fá hugmyndir um fjölbreytta rétti úr íslensku hráefni sem hægt er að njóta vítt og breitt um landið og efla áhuga almennings á matarmenningu, auka þekkingu á íslensku hráefni og mikilvægi nærsamfélagsneyslu. Réttina má útfæra sem létta máltíð eða aðalmáltíð og geta þeir verið bæði úr jurta- eða dýraríkinu.
Valdir verða 15 réttir úr innsendum uppskriftum sem nemendur og kennarar við Hótel- og matvælaskólann útfæra og elda fyrir dómnefnd, en veitt verða verðlaun fyrir fimm rétti. Dómnefndin verður skipuð bæði fagfólki og skemmtilegu áhugafólki og almenningur getur ennfremur kosið uppáhaldsréttinn sinn á Netinu, sem hefur áhrif á úrslitin. Sigurréttunum verður fylgt eftir til ákveðinna veitingastaða um land allt þar sem þeir verða í boði.
Öllum er frjálst að senda inn uppskriftir en skilafrestur er til 5. maí.
Nánar á https://mataraudur.is/thjodlegir-rettir
Hægt er að fylgjast með verkefninu á instagram undir #þjóðlegirréttir
Fjallað verður ítarlegar um samkeppnina í 6. tölublaði Gestgjafans.
Mynd / Hákon Davíð Björnsson































Athugasemdir