Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Kristín fór úr 127 kílóum í 88: „Byrjaðu í dag, ekki á morgun“

Kristín fór úr 127 kílóum í 88: „Byrjaðu í dag, ekki á morgun“
|||||

Kristín María Stef­áns­dóttir er þrí­tug, tveggja barna móðir sem býr á Akureyri. Kristín hefur átt við bak­vanda­mál að stríða síðan hún fór í fyrstu mynda­tök­una á baki þegar hún var fimmtán ára gömul. Hún eign­að­ist son árið 2006 og eftir með­göng­una hríð­versn­aði hún í bak­inu og átti erfitt með að hreyfa sig, eins og hún var vön að gera.

„Hægt og rólega komu kílóin á mig. Með árunum og miklu brasi alltaf með bakið á mér, án þess að fá svör um hvað amaði að, versn­aði það og einnig and­lega heilsan,“ segir Kristín í sam­tali við Mannlíf. Eftir langa þrauta­göngu ákvað Kristín að snúa vörn í sókn árið 2015.

Kristín var ekki aðeins þjökuð af verkjum heldur einnig illa stödd and­lega.

„Ég hafði tekið þá stóru ákvörðun að taka mér frí frá vinnu og fara í það verk­efni að finna út hvað væri að ger­ast í lík­am­anum mínum, enda löngu komin yfir hund­rað kíló og gat á tímum ekki gengið fyrir verkjum,“ segir Kristín. Hennar fyrsta verk var að leggj­ast inn á bak­deild­ina á spít­al­anum á Stykk­is­hólmi þar sem hún dvaldi í þrjár vikur. Þar fékk hún sprautur í bakið sem gerðu ekki mikið til að lina sárs­auka hennar.

„Þannig að ég fór heim eftir þennan tíma eins og ég var áður en ég fór, en auð­vitað búin að læra margt. Eftir að ég kom heim var ég í sjúkra­þjálfun og beið eftir svari að kom­ast inn hjá Virk og byrja í end­ur­hæf­ingu, þar sem ég þurfti virki­lega á þvi að halda. Ég fékk síðan svar í maí um að ég gæti byrjað hjá þeim í ágúst,“ segir Kristín. Í milli­tíð­inni fékk hún sím­tal frá Krist­nesi, end­ur­hæf­ingar- og öldr­un­ar­lækn­inga­deild Sjúkra­húss­ins á Akureyri, um að hún væri komin inní svo­kall­aðan O-hóp fyrir of þungt fólk.

„Ég auð­vitað stökk á það tæki­færi. Ég hugs­aði ekk­ert út í það hvort ég væri í raun til­búin fyrir þetta ferli þegar ég labb­aði inn á Kristnes í júní og var þar í 4 vikur á virkum dögum. En ég mætti og kynnt­ist ynd­ils­legu fólki, lærði hell­ing en nýtti mér það ekki. Þegar ég hugsa til baka núna, þá gerði ég ekki annað en að kvarta og leið bara alls ekk­ert vel, ég var bara ekk­ert til­búin. Á meðan á öllu þessu stóð, hélt ég áfram að versna í lík­am­anum.“

Fóstrið blómstraði ekki í kviðnum

Kristín fékk óvæntar fréttir í júlí sama ár um að hún væri með barni. Fréttir sem glöddu hana mjög.

„Þegar ég var komin 12 vikur, fékk ég að vita að það sæist ekki það sem ætti að sjást á tólftu viku og að öllum lík­indum væri ekk­ert búið að ger­ast lengra en átt­undu vika. Ég tók þetta mjög nærri mér,“ segir Kristín og bætir við að hún hafi strax vitað af hverju fóstrið blómstr­aði ekki í kvið hennar.

„Líkaminn minn var ein­fald­lega orð­inn of veikur til þess að halda því á lífi. Eftir þetta versn­aði allt mjög mikið lík­am­lega. Ég var flutt með sjúkra­bíl frá sjúkra­þjálf­ar­anum mínum þar sem tauga­verkir og annað var orðið það slæmt að ég gat bara ekk­ert staðið upp af bekknum,“ segir Kristín sem var orðin lang­þreytt á að fá ekki að vita nákvæm­lega hvað amaði að bak­inu.

„Kannski það leið­in­leg­asta við þetta er líka að svörin við bak­verkj­unum var alltaf það að ég væri orðin of þung og núna þyfti ég bara að fara heim og gera eitt­hvað í mínum málum. Ég veit ekki hvað ég var búin að fara oft niður á sjúkra­hús og bara send heim með lyf og þá setn­ingu að ég þyrfti að leggja af. Sem er ekki rétt leið að hjarta og hug mann­eskju sem er vel í ofþyngd. Sú mann­eskja veit það vel og ef það væri svo auð­velt að fara bara heim og leggja af, hugsa ég að það væru ekki margir í ofþyngd.“

Þrjátíu ára og 127 kíló

Kristín var þyngst 127 kíló.

Í kjöl­farið þurfti Kristín að ganga við hækjur í tvo mán­uði vegna verkja og fresta end­ur­hæf­ingu hjá Virk þar sem hún var ekki fær um að sinna henni. Í stað­inn byrj­aði hún í sund­leik­fimi með eldri borg­urum í Akur­eyr­ar­laug og fór að hitta sál­fræð­ing hjá Starfsend­ur­hæf­ingu Norð­ur­lands reglu­lega. Það var þá sem Kristín gerði sér grein fyrir að hún þyrfti ekki síður að taka sig í gegn and­lega.

„Ég átt­aði mig heldur betur á því að ég þurfti ekki bara að fara í end­ur­hæf­ingu með lík­amann á mér heldur haus­inn á mér líka. Þarna var ég orðin 127 kíló, ekki orðin þrí­tug. Það var ekk­ert bara bakið. Það kannski byrj­aði þar, en það besta sem ég gerði í þessu ferli var að byrja hjá sál­fræð­ingi og fara að hugsa um mín mál. Þarna voru gömul og ný mál sem ég þurfti, og átti bara eftir, að vinna úr og á þessum þremur árum sem ég hef verið að vinna í mínum and­legu málum hefur heldur betur margt breyst,“ segir Kristín, sem hélt áfram að sækja sál­fræði­tíma og sund­leik­fimi og er þakk­lát fyrir þá hjálp sem hún hefur fengið.

„Fólkið hjá Krist­nesi og Starfsend­ur­hæf­ingu Norð­ur­lands er allt ynd­is­legt fólk og ég á þeim margt að þakka. Þarna hitti ég fólk sem loks­ins hlust­aði og gerði ekki lítið úr mínum vanda­málum.“

Versnaði í bakinu eftir aðra meðgöngu

Kristín gat ekki hreyft sig mikið fyrir utan sund­tím­ana, en ákvað í jan­úar árið 2016 að taka matar­æði sitt í gegn.

„Ég tók þrjá mán­uði sykur-, hveiti- og auka­efna­lausa,“ segir Kristín og sá strax mik­inn mun. „Ég missti 13 kíló á þessum þremur mán­uðum. Ég losn­aði end­an­lega við hækj­urnar og var farin að labba niður í sund­laug og bæði fara í sund­leik­fimi og gera sjálf æfingar í laug­inni. Mark­miðið mitt dag­lega var að labba tvö til þrjú þús­und skref. Hægt og rólega urðu þessi skref fleiri og fleiri. Í lokin á þessum þremur mán­uðum var mikil breyt­ing á mér,“ segir hún og bætir við að eftir þetta tíma­bil hafi hún hætt á þessu matar­æði.

„Ég gat það bara ekki lengur, en sá heldur betur að með réttu matar­æði getur svo mikið gerst.“

Kristín var búin að losa sig við sautján kíló í apríl sama ár, stund­aði enn sund­leik­fimi og gekk um sex þús­und skref á dag. Hún byrj­aði í prógrammi hjá Starfsend­ur­hæf­ingu Norð­ur­lands og sá alltaf meiri árangur and­lega og lík­am­lega. Þá varð hún ólétt af sínu öðru barni.

„Ég var mjög hrædd um bakið á mér en ég gat bara ekki annað en fagnað þessu litla heil­brigða lífi. Með­gangan gekk bara ágæt­lega likam­lega og ég hætti ekk­ert að hugsa um matar­æðið þrátt fyrir mikla ógleði og annað fyrst til að byrja með. Ég fór í göngut­úra og var í með­göngu­sundi,“ segir Kristín.

Það var svo í jan­úar í fyrra sem Kristín fékk litla stúlku í hend­urnar og þá kom smá bakslag í lífs­stíl­inn sem hún hafði til­einkað sér.

„Ég versna meira í bak­inu, en fann þó að ég jafn­aði mig fyrr eftir bakslagið, þar sem lík­am­inn var orð­inn sterk­ari en áður. En ég missti tökin pínu­lítið í matar­æð­inu, og vá hvað það var heldur betur fljótt að ger­ast. Ég átt­aði mig fljótt á því hvað var að ger­ast hjá mér, enda komin með mikil and­leg tæki og tól eftir sál­fræði­tím­ana og sneri þessu við. Þess vegna segi ég, and­legi þátt­ur­inn er risa­stór í öllu þessu.“

Ekkert sem heitir skyndilausnir

Kristín gjör­breytti um lífs­stíl og blómstrar í dag.

Kirstín stund­aði með­göngu­sund í átta mán­uði eftir að hún átti stúlk­una, gekk um allt með barna­vagn­inn í hvaða veðri sem er og fór í sjúkra­þjálfun. Hún segir að þarna hafi hún loks verið 100% til­búin til að fara aldrei aftur í sama farið.

„Ég þurfti að minna mig á það á hverjum degi af hverju ég væri að þessu. Hausinn á manni á það til að vera það erf­ið­asta sem maður dílar við í svona ferli og þetta kostar blóð, svita og mörg tár. Það er ekk­ert sem kall­ast skyndi­lausnir í þessum málum. Það komu margir dagar þar sem bakið gafst upp og ég var rúm­liggj­andi, en þarna var ég búin að ákveða að þetta bak væri ekk­ert að fara verða það sem myndi láta mig gef­ast upp,“ segir Kristín, sem tók matar­æðið helj­ar­taki á þessu tíma­bili.

„Ég þurfti að end­ur­skoða allt sem ég keypti, allt sem ég eld­aði. Ég fann leiðir til að gera rétti holl­ari sem ég eld­aði áður og eyddi miklum tíma í eld­hús­inu bara til að finna út hvað mér fannst gott. Ég próf­aði alltaf eitt­hvað nýtt. Ég las og tók nær­ing­ar­fræði í mennta­skól­anum á meðan ég var í end­ur­hæf­ingu. Ég lærði að borða græn­meti. Já, lærði,“ segir Kristín og hlær. „Ég borð­aði ekki mikið af því en í dag borða ég allt græn­meti. Það er svo ótrú­lega mikið sem ég er búin að læra sem ég bara átt­aði mig aldrei á.“

„Þetta er eilífðarverkefni“

Í kjöl­farið fékk Kristín loks­ins svör um hvað amaði að bak­inu.

„Það er komið mikið slit í neðstu tvo hryggjaliði og útbung­anir á þremur stöðum. Ég reyndi aftur að fara í sprautur, en þær gerðu litið gagn eins og í fyrra skipti. Aðgerð hjá mér er mögu­leiki en ekki mögu­leiki inni á mínu heim­ili þar sem ég er með fimmtán mán­aða gam­alt barn, og bata­ferli eftir aðgerð­ina langt. Ég tók því ávörðun með mínum lækni að halda áfram mínu ferli og sjá hvert það kemur mér varð­andi bakið. Ég get kannski ekki lagað þetta vanda­mál, en ég gat og get gert allt annað í lík­am­anum betra til þess að hjálpa mér við að díla við þetta ákveðna vanda­mál.“

Í dag er Kristín komin niður í 88 kíló, úr 127 kíló. Hún segir að þol­in­mæði og þraut­segja hafi verið lyk­ill­inn að vel­gengni hennar í þess­ari lífs­stíls­breyt­ingu.

Lífs­gleðin skín úr þess­ari þrí­tugu konu.

„Ég fór loks­ins að nota það sem mér var kennt á öllum þessum stöðum sem ég hef verið á, nýta hverja mín­útu sem ég hafði með öllum þessum fag­að­ilum sem voru þarna til þess að hjálpa mér. Mark­miðið í upp­hafi var að létt­ast og fá svör við bak­verkj­unum, enda þurfti ég þess. En maður þarf að taka haus­inn á sér með svo að maður sé til­bú­inn fyrir þetta. Þetta er eilífð­ar­verk­efni ef maður ætlar að við­halda sér. Þetta er erfitt, en ég er að gera þetta og ef ég get það, þá geta svo sann­ar­lega aðrir það.“

Ekki bera þig saman við næsta mann

Hana dreymir um að hjálpa öðrum að lifa betra og heilsu­sam­legra lífi.

„Ég er búin að stunda bók­legt nám í gegnum þetta allt. Ég var búin að ákveða að læra lækna­rit­ar­ann og hef verið að stefna að því, en það er vinna sem bakið á mér kannski höndlar. En á þessum þremur árum hef ég fengið mikla trú á sjálfri mér og í dag langar mig að mennta mig í þá átt að geta hjálpað öðrum sem eru að ganga í gegnum þetta. Að kynn­ast fólki sem skilur mann, getur aukið mik­inn skiln­ing hjá manni,“ segir Kristín. En hvað vill hún segja við fólk sem er í sömu stöðu og hún var fyrir þremur árum síðan?

„Ekki gef­ast upp þó að ekk­ert ger­ist á vigt­inni í ein­hvern tíma eða þú borð­aðir óhollt og heldur að allt sé ónýtt. Það kemur alltaf dagur á eftir þessum degi og þá reynum við að gera betur. Þér þarf að líða vel og skilja að lík­am­inn er að ganga í gegnum miklar breyt­ingar og styrkj­ast. Ef þú átt erfitt með hreyf­ingu, þá get ég sagt þér að á þessum tíma bjarg­aði sund­leik­fimi öllu hjá mér. Settu þér lítil mark­mið til að byrja með, gerðu girni­legu, hollu upp­skrift­ina sem þú ert búin að ætla að gera lengi, labb­aðu x mörg skref á dag og sigr­aðu sjálfan þig með því að bæta þig. Maður þarf alltaf að byrja á litlu hlut­unum. Það ert þú sem þarft að gera þetta, taka þessar ákvarð­anir fyrir þig, en nýttu þér hjálp frá fólk­inu í kringum þig.

Ekki horfa á það sem næsta mann­eskja er að gera og bera þig saman við hana. Gerðu þitt eigið. Byrjaðu í dag, ekki á morgun.“
Þvílík breyt­ing á þremur árum.

Myndir / Úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina