Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Ég elska ekki fíkilinn – ég elska manninn minn“

„Ég elska ekki fíkilinn – ég elska manninn minn“
|||

„Það tekur gíf­ur­lega á að vera maki, dóttir, systir alkó­hólista,“ segir Díana María Líndal Stef­áns­dóttir. Díana er búin að vera með manni sínum í fimm ár, og eiga þau tvo drengi saman; annar fjög­urra ára og hinn 18 mán­aða. Þá eiga þau líka einn fóst­ur­son sem er á nítj­ánda ári. Díana er lífs­glöð og dug­leg, en síð­ustu ár hefur hún þurft að berj­ast með öllu sem hún á við fíkn eig­in­manns­ins – sjálfan alkó­hól­is­mann.

„Maðurinn minn er búinn að vera fík­ill síðan hann var ung­lingur og var inn og út úr með­ferðum sem ungur maður. Hann er búinn að taka upp og niður rass­íur síðan við tókum saman, en var búinn að ná góðu tíma­bili áður en hann datt í það núna síð­ast,“ segir Díana, en stutt er síðan maður hennar kom úr með­ferð, en hann lauk bæði með­ferð á Vogi og Vík. Díönu blöskrar sú langa bið sem er eftir plássi í með­ferð.

Díana ásamt sínum heittelskaða.

„Hann var búinn að bíða í hálft ár eftir að kom­ast inná Vog. Ég var búin að biðja um hjálp frá öllum mögu­legum og ómögu­legum stofn­unum en það var allt yfir­fullt. Mér finnst fárán­legt þegar fólk vill sjálft fara í með­ferð, eins og hann, að það þurfi að berj­ast við að reyna að halda sér edrú sjálft í hálft ár, sem er nátt­t­úru­lega von­laust dæmi. Þessi bið þýddi bara hálft ár í neyslu. Á hálfu ári ger­ist haugur af vit­leysu og hann setti okkur til dæmis í fjár­hags­lega patt­stöðu því hann borg­aði ekki leigu í þrjá mán­uði. Ég vissi það ekki fyrr en leigusal­inn okkar kom í vinn­una til mín. Það hefði til dæmis ekki gerst ef hægt væri að kippa fólki strax inn í með­ferð. Ég segi bara eins og mað­ur­inn minn: þetta er hrika­legt ástand og það virð­ist eins og öllum sé sama um stöð­una í þjóð­fé­lag­inu. Það skiptir greini­lega meira máli að ein­hver for­stjóri sé með margar millj­ónir í laun á mán­uði en að hjálpa fólk­inu okkar. Í öllum fjöl­skyldum er ein­hver sem þarf að nota þessa þjón­ustu og það er galið að Vogur sé eina afvötn­un­ar­stöðin, sem rúmar aðeins örfáar mann­eskjur miðað við þann fjölda sem þarf á hjálp að halda,“ segir Díana og heldur áfram.

„Ég hef líka sterkar skoð­anir á því að Vogur eigi að vera kynja­skiptur staður því þarna eru veikir ein­stak­lingar. Það er aldrei gott að blanda saman kynjum á svona stöðum og ég held að allir sem koma þarna inn, og aðstand­endur þeirra, séu sam­mála um það, því þetta er ekki staður til að finna sér maka. Þegar fólk er svona veikt er það ekki með rök­hugsun.“

Vill ekki hafa fíkilinn nálægt sér

Maður Díönu mætir núna tvisvar í viku í vík­inga­eft­ir­með­ferð og mun gera það í eitt ár. Það gengur ágæt­lega að sögn Díönu, en mér leikur for­vitni á að vita af hverju hún hafi ekki yfir­gefið hann eftir þessi fimm, storma­sömu ár.

„Stundum elskar maður ein­hvern meira en maður gerir sér grein fyrir. Ég vil líka halda í fjöl­skyld­una mína. Ég veit hver hann er þegar hann er edrú. Fík­ill­inn er ekki mað­ur­inn sem ég elska. Ég elska ekki fíkil­inn – ég elska mann­inn minn og þetta eru tvær ólíkar per­sónur. Fík­ill­inn er ein­hver sem ég vil ekki hafa nálægt mér. Hann veit það og fer út af heim­il­inu þegar hann er í þessu ástandi. Ég er búin að spyrja mig oft að þessu sjálf, af hverju ég labba ekki bara út. Og ég hef alveg pakkað saman og flutt út. Ég hef flutt inn á tengda­for­eldra mína með börnin þegar ástandið var orðið þannig að ég gat ekki verið inni á heim­il­inu,“ segir Díana, en bætir við að drengirnir sínir hafi ekki þurft að horfa uppá föður sinn fíkil­inn.

„Þeir hafa aldrei séð hann undir áhrifum. Hann hefur aldrei van­rækt þá, þó hann van­ræki mig, sam­bandið okkar og sjálfan sig. Ég hef samt hugsað að þessi síð­asta með­ferð sem hann fór í sé allri síð­asti séns­inn hans. Ætla ég að ganga í gegnum þetta allt aftur? Þessar sex vikur sem hann var í burtu voru svaka­lega erf­iðar.“

Ekki gleyma aðstandendum

Faðir Díönu var alkó­hólisti og bróðir hennar er það líka. Fóst­urpabbi hennar er líka alkó­hólisti en er edrú í dag.

„Það spyrja mig margir af hverju ég hafi ekki farið sömu leið. Ég er ekki alkó­hólisti eða fík­ill en ég er ofboðs­lega með­virk og það er það sem ég þarf að vinna mikið í. Ég þarf að passa mig á að vera ekki með­virk en ekki heldur hin and­stæðan þar sem ég hlusta alls ekki á fíkil­inn. Það er ekki minni vinna fyrir mig að passa mín mörk en fyrir mann­inn minn að halda sér edrú,“ segir hún og skýtur inní að það sé vöntun á umönnun fyrir aðstand­endur fíkla.

„Mér finnst vanta fleiri úrræði fyrir aðstand­endur fíkla og alkó­hólista. Fólk má alveg muna eftir því hvernig okkur aðstand­endum líður.“

Talandi um það, hvernig líður Díönu í skugga þess­ara erf­ið­leika?

Díana með sonum sínum, Sigurði Þór og Pétri Jökli.

„Það er rosa­lega erfitt að svara því hvernig mér líður því ég fæ aldrei þessa spurn­ingu. Það virð­ist vera sjálf­sagt að ég standi alltaf upp­rétt. Að bakið á mér sé svo breitt að það sé enda­laust hægt að hlaða á það,“ segir Díana. Hún er búsett á Selfossi en sækir lík­ams­rækt í Fitness bil­inu í Hvera­gerði hjá Loreley, og þakkar þjálf­ara sínum fyrir að missa ekki trú á sér.

„Ég væri löngu hrunin ef ég hefði ekki þjálf­ar­ann minn sem ræki á eftir mér og sendi mér skila­boð á hverjum degi. Eitt skipti gat ég ekki reddað pössun og þá sagði hún mér að koma með börnin heim til sín því ég þyrfti á æfing­unni að halda. Hjálpin hennar er svo mikil. Ég væri ekki svona lífs­glöð ef ég myndi ekki mæta í lík­ams­rækt. Ég næ að rækta sjálfa mig í rækt­inni og það veitir mér því­líka hug­arró.“

„Ég hræðist ekki að láta dæma mig“

Díana er með opið Snapchat undir nafn­inu djana88 þar sem hún talar um allt milli him­ins og jarðar, þar á meðal bar­átt­una við alkó­hól­isma eig­in­manns­ins, sem hún er mjög opin með. Það fer mis­jafn­lega ofan í fólk.

„Fólki finnst skrýtið þegar ég segi frá því að mað­ur­inn minn sé að fara í með­ferð en ég vil ekki fela þetta. Hann skamm­ast sín líka fyrir þetta en samt vita þetta allir. Hann seg­ist vilja passa mann­orðið en hann er löngu búinn að skemma það sjálfur. Það er ekki mitt að fela hvernig mér líður og hvernig mitt líf er. Ég hræð­ist ekki að láta dæma mig. Ég sjálf hef ekk­ert að fela og mér er alveg sama þó ein­hver viti að mað­ur­inn minn er fík­ill. Það er ekk­ert öðru­vísi að vera fík­ill en að vera með annan sjúk­dóm, nema þú ræður hvort þú ert í bata eða ekki. Það er undir þér komið hvort þú viljir vinna fyrir því eða ekki. Það er fullt af fólki sem er edrú en samt ekki í bata, sem ber sig áfram dag­inn út og inn og einn dag­inn springur það. Það er svo mikil rang­hug­mynd að fólk geti gert þetta sjálft, án fag­legrar hjálpar.“

Díana opnar sig uppá gátt á Snapchat.

Bara greitt fyrir fæði og húsnæði

Talið berst aftur að fóst­ur­syni þeirra hjóna sem kom inná heim­ili þeirra fyrir að verða þremur árum síðan, þá sextán ára gam­all.

„Við þekktum aðeins til fjöl­skyld­unnar og á þessum tíma var hann á milli heim­ila og var að gista hér og þar. Hann fór sjálfur til barna­vernd­ar­nefndar og spurði full­trú­ann sinn hvort hann mætti flytja til okkar. Hann hafði sam­band og spurði okkur og við sam­þykktum það,“ segir Díana. Hún segir að ýmis­legt hafi gengið á með dreng­inn en að hún myndi geta hugsað sér að ger­ast fóst­ur­for­eldri ann­ars barns ef kerfið væri betra.

„Ég myndi hik­laust gera þetta aftur ef greiðsl­urnar væru hærri. Maður upp­sker hell­ing, lærir ýmis­legt og græðir mikið á því að geta hjálpað barni en greiðsl­urnar í raun dekka bara fæði og hús­næði fyrir barnið og ekk­ert meira en það. Við hjálp­uðum barni sem var á göt­unni og mér finnst það mik­il­væg­ara en pen­ingar, en greiðsl­urnar þurfa samt að geta staðið undir barn­inu,“ segir Díana.

Þú færð ekki hjálp nema þú opnir þig

Hvernig horfir Díana á fram­tíð­ina?

„Ég tek bara einn dag í einu og þori ekki fyrir mitt litla líf að hugsa um hvað er að ger­ast á morgun. Ég er ekki með fimm ára plan eins og er því ég leyfi mér ekki að búa til plan sem ég þarf síðan að henda í ruslið,“ segir Díana sem fagnar þrí­tugs­af­mæli sínu í dag, og hefur þetta að segja við fólk sem glímir við erf­ið­leika:

„Talaðu! Ekki vera hræddur um að ein­hver sé að fara að dæma þig. Þér á eftir að líða illa ef þú felur þig. Þú færð ekki hjálp nema þú talir. Ef ein­hver dæmir þig þá er það mann­eskja sem þú vilt ekki hafa í líf­inu þínu.“

Myndir / Úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina