Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Leiktækið L-200

L-200 er einkar skemmti­legur pall­bíll. Hann er ein­hvern veg­inn hæfi­legur að flestu leyti. Góð blanda krafts, eyðslu og nota­gildis. Svo er hann líka fal­leg­asti pall­bíll­inn á mark­aðnum í dag.

Leiktækið L-200
|||
L-200 kallar á að maður fari út að leika sér. Finni fólk sem þarf aðstoð við að flytja eitt­hvað, eða finni síð­asta skafl­inn á suð­vest­ur­horn­inu að festa sig í.

Áður en lengra er haldið verð ég að koma hreint fram. Ég elska pall­bíla. Ekki amer­ísku drek­ana sem taka fjögur bíla­stæði í mið­bænum og eyða á við með­al­skut­tog­ara, heldur nett­ari útgáf­urnar sem flestar er runnar undan rifjum asískra bíla­fram­leið­anda. Ég var því einkar ánægður með kost­inn þegar ég keyrði yfir Hell­is­heið­ina á móti rísandi sól á Mitsu­bishi L-200.

Kraftur og praktík
L-200 er heið­ar­legur bíll. Þegar inn í hann er komið er inn­rétt­ingin lát­laus enda er hann laus við flestallt prjál. Auðvitað er hægt að fá enda­lausa aukapakka og auka þannig lúx­us­inn, en það er eitt­hvað við bíl­inn sem kallar á mann að sleppa því. Láta bakk­mynda­vél­ina og bluetooth-kerfið nægja og flýta sér bara út úr bænum og í eitt­hvað drullum­all.
Það var nákvæm­lega það sem ég gerði. Ferðinni var heitið austur fyrir fjall, sem fyrr segir, og í bústað.

L-200 reynd­ist furðu sprækur á þjóð­veg­inum. 180 hest­öflin skil­uðu sínu en það kom á óvart hversu spar­neyt­inn hann var. Er ég renndi fram hjá Hvera­gerði var með­al­eyðslan langt fyrir neðan 7L/100 km, sem er upp­gefin eyðsla í blönd­uðum akstri. Vel hefur tek­ist til að kreista sem mest afl úr ein­ungis 2,4 L-vél bíls­ins og er veskið afar þakk­látt fyrir það.

Ég verð samt að taka fram að það er sama með L-200 og flesta pall­bíla í hans flokki. Hann er örlítið hastur og fjaðr­irnar að aftan hjálpa ekki.

Bakk­mynda­vélin, auk bluetooth-útvarps og stilli­hnappa þess í stýr­inu, er um það bil eini lúx­us­inn sem er að finna í L-200. En það þarf ekki meira.

Kostir þess að vera á pall­bíl
Á Selfossi komu fjað­ar­irnar og stífu dempar­arnir sér hins­vegar afar vel. Það er ekki hægt að vera á pall­bíl án þess að nýta pall­inn. Gera fólki greiða og flytja alls­konar furðu­legt dót.
Í þetta skiptið var bónin að flytja um það bil 300 kg af sandi og slatta af gegn­vörðum við í sand­kassa, bara rétt síð­asta spöl­inn í Gríms­nesið. Auðvitað sagði ég já og það er í svona til­vikum sem pall­bílar eins og L-200 skína.

Ég var reyndar ekki viss um hvað umboðið sem lán­aði mér bíl­inn til reynslu­akst­urs myndi segja, en fölskva­laus gleði yngsta sum­ar­bú­stað­ar­eig­and­ans yfir nýja sand­kass­anum fyllti mig vissu um að ég hefði tekið rétta ákvörðun.

Leik­tækið L-200
Helgin leið og eftir góðan rúnt um sveit­ina með skyldu­stopp­inu í Frið­heimum hélt ég aftur á heið­ina heim á leið. Ég ákvað að leggja eina loka­lykkju á leið mína upp á reg­in­heið­inni. Ég fann mér veg­slóða að fylgja en þar sem leys­ingar síð­ustu daga höfðu gert veg­inn gljúpan og skafl­ana að krapa­hindr­unum ákvað ég að snúa við eftir fyrsta skafl­inn, enda ein­bíla.

L-200 reynd­ist furðu sprækur á þjóð­veg­inum. 180 hest­öflin skil­uðu sínu en það kom á óvart hversu spar­neyt­inn hann var.

En auð­vitað þurfti ég aðeins að spól­ast í krapa­skafl­inum til að sjá hvort ég næði ekki góðum myndum af bílnum í alltum­lykj­andi þokunni. Að sjálf­sögðu festi ég mig auð­vitað í asna­skapnum, þurfti að hlaupa upp á veg og veifa næsta bíl. Þar voru á ferð heið­urs­hjón á besta aldri sem skemmtu sér kon­ung­lega yfir því að losa kok­hrausta bíla­blaða­mann­inn á nýja bílnum í miðjum reynslu­akstri. Höfðu þau á orði að það þyrfti fólk á eft­ir­launum á bíl á eft­ir­launum til að bjarga mér.
En þannig er að vera á pall­bíl. Maður lendir í alls konar ævin­týrum og kynn­ist alls konar skemmti­legu fólki. Það er eitt­hvað frelsi fólgið í því og ein­hver und­ar­leg fram­kvæmda­gleði sem fylgir því.
Ef á annað borð er verið að velta fyrir sér að festa kaup á pall­bíl er L-200 á lista þeirra bíla sem þú ættir ef til vill að skoða fyrst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina