Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Snappar um bataferlið eftir alvarlegt bílslys og fæðingarþunglyndi

Snappar um bataferlið eftir alvarlegt bílslys og fæðingarþunglyndi
||

„Ég eig­in­lega bara ákvað með sjálfri mér að það yrði partur af mínu bata­ferli. Ég hef lifað svo alltof lengi að reyna að vera ein­hver önnur en ég er og er hrein­lega komin með leið á því,“ segir hin 24 ára Alda Guðrún Mescudi. Alda opn­aði nýverið dyrnar á Snapchat og snappar um allt milli him­ins og jarðar í sínu dag­lega lífi undir nafn­inu aldagu­drun.

„Mig lang­aði alltaf að verða virk­ari á sam­fé­lags­miðlum en ég lét aldrei verða af því. Svo finnst mér líka svo gaman að tala og enn betra ef fólk nennir að hlusta á það. Mig langar líka að geta talað svo­lítið öðru­vísi um hlut­ina heldur en margir snapp­arar eru að gera. Ég vil vera hrein­skilin og sé ekki til­gang­inn í að vera að syk­ur­húða hlut­ina,“ bætir Alda við um ástæður þess að hún byrj­aði að snappa opin­ber­lega.

Nær líklegast aldrei fullum bata

Alda með syni sínum.

Alda hefur vakið athygli á sam­fé­lags­miðl­inum fyrir að tala tæpitungu­laust um hlut­ina, en líf hennar hefur ekki alltaf verið dans á rósum.

„Ég hætti í skóla, greind­ist seint með ADHD en fór svo að vinna úr mínum vanda­málum. Mín ástríða í líf­inu hefur alltaf verið neglur og förðun og árið 2015 útskrif­að­ist ég sem nagla­fræð­ingur. Í byrjun árs 2016 stofn­aði ég mitt fyrsta fyr­ir­tæki og opn­aði nagla­stofu. Nokkrum mán­uðum síðar, um sum­arið, lenti ég í bílslysi,“ segir Alda og heldur áfram.

„Ég kom mjög illa út úr slys­inu og mun lík­leg­ast aldrei ná fullum bata. Ég er samt hörð af mér og hef góð gen og reyni eins og ég get að láta þetta ekki hamla mér. Ekki skán­aði það svo þegar ég varð ólétt af syni mínum. Ef eitt­hvað hefur verið hund­rað pró­sent þess virði í öllu þessu ferli mínu, þá er það hann en með­gangan var virki­lega, virki­lega erfið og í þokka­bót greind­ist ég með fæð­ing­ar­þung­lyndi,“ segir Alda, sem ætlar ekki að láta erf­ið­leik­ana buga sig.

„Í dag er ég á byrj­un­ar­stigi í mínu bata­ferli. Ég held að allir geti verið sam­mála mér þegar ég segi að það eitt og sér, þá meina ég að byggja sjálfan sig upp eftir ein­hvers konar áföll, er hund­rað pró­sent vinna – með yfir­vinnu. En ég er ein­stak­lega heppin með bak­land og þegar eitt­hvað hefur komið fyrir veit ég að ég hef trausta og þétta fjöl­skyldu sem grípur mig.“

Geturðu hugsað um barnið þitt með þessar neglur?

Alda veitir inn­sýn í líf sit á Snapchat og er henni ekk­ert óvið­kom­andi.

„Það er ekki beint þema á sapp­inu mínu. Ég tala um allt milli him­ins og jarðar og það fer svo­lítið eftir því hvort eitt­hvað sé að ger­ast eða hvernig liggur á mér. Svo reyni ég að gefa inn­lit inn í lífið hjá mér. Fólk fékk að sjá og fylgj­ast með með­göng­unni hjá mér og svo litla Tebolla þegar hann fædd­ist,” segir Alda en sonur hennar fékk við­ur­nefnið Tebolli.

„Það var líka mjög vin­sælt þegar Consuela kom í fjöl­skyld­una. Hún er ryksugu­vél­menni sem skúrar og ryksugar heima hjá mér.”

Alda vill und­ir­strika boð­skap sinn, sem er sá að fólk eigi að gera það sem það vill við líf sitt en ekki spá í áliti ann­arra.

„Ég er og hef alltaf verið þessi mann­eskja sem segir það bara beint við vin­konu mína ef mér finnst hún virka feit í ein­hverri flík, á meðan Sigga segir henni að hún sé allt í lagi. Mér finnst svo leið­in­legt að sjá stelpur ekki gera það sem þær langar; eins og ef þú vilt mála þig hvern ein­asta morgun, gerðu það, ef þú vilt vera í þessum skóm í þessum aðstæðum, gerðu það. Sér­stak­lega við mæður. Það er bara allt í lagi að við gerum hluti fyrir okkur til þess að gleðja og láta okkur líða vel. Þegar okkur sjálfum líður vel þá gengur lífið betur. Ég er hrein og bein og kem til dyr­anna eins og ég er klædd,“ segir Alda sem hefur alveg fengið að finna fyrir gagn­rýni á Snapchat.

Falleg mæðgna­mynd.

„Mér hefur verið sent alls konar en það helsta er lík­leg­ast spurn­ingar um hvort ég geti skeint mér eða séð um barnið mitt með þessar neglur. Eins og lengd naglanna geti sagt til um hversu hæfar við erum sem mæður? Ég er vissu­lega með rosa­lega langar neglur en ég held ég sé búin að vera með þær í næstum því sjö ár sam­fellt. Þetta er grín­laust orðið eins og fram­leng­ing á putt­unum, ef við getum líkt þessu saman. Ég væri hand­lama ef ég væri með stuttar neglur og hrein­lega ekki lík sjálfri mér án þeirra. Tebolli hefur til dæmis rosa­lega gaman að þeim,“ segir Alda og hlær.

Sögustund á snappinu

En ætli þessi hisp­urs­lausa kona deili öllu með fylgj­endum sínum?

„Ósk mín er að ég geti deilt öllu með þeim en það er sumt í dag sem ég er ennþá að vinna í og get til dæmis ekki sett inn. Stundum koma líka dagar sem ég set ekk­ert inn. Það eru nokkrir sem hafa beðið mig um að setja inn gamlar sögur af mér, en ég hrein­lega held að ég yrði dæmd fyrir það. Það er aldrei að vita nema ég fari að bomba í smá sögu­st­und á snapp­inu. Ég samt passa mig alveg með hvað ég set inn, þannig séð,“ segir Alda. Og hver ætli draum­ur­inn sé?

„Draum­ur­inn var stór, ég er búin að láta margt ræt­ast og þegar ég eign­að­ist Teboll­ann tók líf mitt U-beygju. Þá fór ég að vinna frá þeirri línu sem ég end­aði á.“

Myndir / Úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina