Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Langaði svo í pítsu að hún farðaði hana á sig

Langaði svo í pítsu að hún farðaði hana á sig
|||||

„Þessi skyndi­bita­förðun var skyndi­á­kvörð­un­ar­flipp,“ segir förð­un­ar­fræð­ing­ur­inn Ágústa Sif Aðal­steins­dóttir. Nýjasta verk hennar á Instagram hefur vakið athygli, en á mynd­inni sést Ágústa með mjög sér­staka förðun. Hún nefni­lega mál­aði annað augað sitt eins og ham­borg­ara og hitt eins og pítsu.

Mikil nákvæmnisvinna

Ágústa er reffi­leg með skyndi­bita á aug­unum.

„Ég ætl­aði ekki einu sinni að gera þetta. Ég er nýbyrjuð í svona heilsu­átaki sem gengur svona hrika­lega vel, en pít­sur hafa alltaf verið upp­á­halds­mat­ur­inn minn. Á tíma­bili vakti mamma mín mig með orð­unum: „ÁGÚSTA! PÍTSA!“. Það hefur verið ótrú­lega erfitt að sleppa pít­s­unum og ég var að verða biluð á löng­un­inni í eina þegar ég hugs­aði um að gera förðun úr þessu,“ segir Ágústa sem leit­aði til fylgj­enda sinna á Snapchat til að fá álit hvort hún ætti að láta slag standa.

„Mér fannst þetta samt svo heimsku­leg hug­mynd að ég fór á Snapchat og spurði hvort ég ætti að gera fyndna förðun og jú, fólk vildi sjá hvað ég var að hugsa. Ég ætl­aði fyrst bara að gera pít­s­una og búið, en þá lang­aði mig að gera eitt­hvað annað þegar pítsan kom svona vel út. Ég var að hugsa um að gera pylsu en vin­kona mín sagði að hún vildi sjá ham­borg­ara, þannig að ég varð að ósk hennar,“ segir Ágústa. Hún segir að förð­unin hafi tekið dágóðan tíma.

Góð pít­sa­sneið.

„Þetta var í raun­inni ekk­ert erfitt, en mikil nákvæmn­is­vinna með litlum burstum og frekar tíma­frekt. Það tók mig tvær til­raunir að gera ham­borgar­ann því að það var erfitt að stað­setja allt á þann hátt að þetta liti út eins og ham­borg­ari og að það væri hægt að sjá á milli brauð­anna. Það var erfitt að velja álegg á pít­s­una,“ segir Ágústa.

En ætli þetta upp­á­tæki hennar muni starta nýrri tísku?

„Hvort að þetta verði nýtt trend veit ég nú ekki en það væri gaman að sjá aðra gera eins og prófa. Ég held að við séum ekki að fara að sjá þetta lúkk á gangi um götur borg­ar­innar,“ segir Ágústa og hlær.

Endaði eins og pandabjörn um augun

Ágústa er 26 ára gömul og býr í Reykja­vík með syni sínum, Jökli Owen. Hún útskrif­að­ist sem förð­un­ar­fræð­ingur árið 2016 en hefur haft áhuga á förðun nán­ast síðan hún man eftir sér.

„Ég byrj­aði að hafa áhuga á förðun mjög ung, fyrsta minn­ingin mín af mér að prófa að mála mig er þegar að ég var um sjö ára og systir mín, sem er förð­un­ar­fræð­ingur, átti svo mikið og flott dót. Ég mátti að sjálf­sögðu ekki fikta í því en ég stóðst ekki mátið og klíndi ein­hverjum mask­ara og augnskugga á mig. Svo kom hún heim, ég frík­aði út, reyndi að taka þetta af mér með þurrum pappír og end­aði eins og panda­björn um augun. Systir mín sá mig hlaupa inná bað að þrífa af sönn­un­ar­gögnin en þetta gerð­ist aðeins of oft,“ segir Ágústa, sem í fram­hald­inu lagði förð­un­ar­á­hug­ann aðeins á hill­una.

Ágústa er óhrædd við að prófa sig áfram.

„Förð­un­ar­listin mín tók pásu til ung­lings­ald­urs, eftir að hafa verið töluð til út af pöndulúkk­inu mínu. Þá fór ég fyrst að gera eitt­hvað flott og lesa mér til um snyrt­ingu og förðun. Ég fór að plokka og lita vin­konur mínar, greiða þeim og farða þær nán­ast dag­lega til þess að æfa mig og prófa nýja hluti. Það var samt ekki fyrr en árið 2016 að ég skráði mig í gríni í alla förð­un­ar­skóla Íslands. Ég hafði hvorki efni á því né fannst mér ég hafa ein­hverja hæfi­leika til að taka þetta skref. Ég hélt aldrei að það væri eitt­hvað að fara að ger­ast úr þessu. Það vildi svo heppi­lega til að það losn­aði pláss fyrir mig í MOOD Makeup School og ég vældi í systur minni um að mig lang­aði að gera þetta en að þetta væri ekki rétti tím­inn. Hún bauðst þá til að lána mér fyrir skól­anum, svo að ég þurfti ekki að hugsa mikið um fjár­hag­inn. Ég not­aði alla mína krafta til að telja mér trú um að ég gæti alveg lært þetta. Ég útskrif­að­ist svo úr MOOD Makeup School í nóv­em­ber 2016. Þetta var eitt skemmti­leg­asta tíma­bil lífs míns og ég lærði ótrú­lega mikið af kenn­ur­unum og eign­að­ist frá­bærar vin­konur,“ segir Ágústa.

Vann við stuttmynd í Hamborg

Falleg augn­förðun eftir Ágústu.

Hún hefur verið svo heppin að fá að starfa tals­vert við förðun eftir útskrift.

„Ég er mikið í stutt­mynd­umog sjón­varps­förðun. Eitt það skemmti­leg­asta sem ég geri er að vinna á setti með kvik­mynda­gerð­ar­fólki, og er núna að klára verk­efni sem ég lof­aði mér í fyrir löngu í Kvik­mynda­skóla Íslands. Ég var fengin til að vinna í stutt­mynd í Hamborg, það var svaka­leg­asta ævin­týrið sem ég hef upp­lifað hingað til. Ég er líka að farða heima hjá mér fyrir ýmis til­efni. Síðasta verk­efni sem ég var í var með Reykja­vík­ur­dætrum, við fórum í mynda­töku fyrir mars útgáf­una af 1883 Magazine. Það var mjög skemmti­legt verk­efni og kom rosa­lega vel út.“

Þreytt á brúnum skyggingum

Hún seg­ist eiga margar fyr­ir­myndir í þessum geira, þá frekar íslenskar en erlendar.

„Það er svo margt sem gefur mér inn­blástur, hvort sem það sé list ann­arra, nátt­úran, hlutir eða matur. Ég lít frekar upp til íslenskra förð­un­ar­fræð­inga heldur en erlendra. Ragna Fossberg, Harpa Kára, Sigrún Sig, Eygló Ólöf og vin­kona mín, hún Sandra María, eru allt konur í förð­un­ar­heim­inum á Íslandi sem eru að gera frá­bæra hluti. En ég horfi líka upp til nokk­urra erlendra förð­un­ar­fræð­inga eins og Sergey, sem heitir @milk1422 á instagram, Kandee Johnson, Charlotte Tilbury og Wayne Goss,“ segir Ágústa. Hún segir íslenskar konur vera bæði vanafastar og óhræddar þegar kemur að förðun.

„Margar íslenskar konur eru ofboðs­lega dug­legar og óhræddar við að kynna sér og prófa nýja hluti en aðrar eru rosa­lega vanafastar. Bæði er að sjálf­sögðu allt í lagi en ég er per­sónu­lega orðin þreytt á brúnum skygg­ingum og að flestir noti sömu taktík­ina.“

Fögnum bleika litnum!

En hver eru algeng­ustu mis­tökin sem konur gera þegar þær farða sig?

„Úff, ég er stans­laust að nefna þetta við fólk. Það helsta sem fer í taug­arnar á mér er hrein­lætið; þegar verið er að nota skítuga bursta eða deila burstum og krem­vörum. Mér finnst líka aga­legt þegar mann­eskja með bleikan und­ir­tón notar farða með gulum und­ir­tón. Það lítur alltaf skringi­lega út. Því miður er þessi litur í tísku og erfitt að finna farða með fal­legum bleikum und­ir­tón akkúrat núna. Ef þú ert með bleikan und­ir­tón í húð­inni, ekki fela hann með gulum. Reyndu frekar að finna farða með bleikum und­ir­tón. Ég veit að það er erfitt í dag en það verður þess virði. Farðinn mun líta mikið betur út og and­lit, bringa og axlir verða í sams­konar lit. Fagnaðu bleika litnum!“ segir Ágústa.

Ágústa er hug­mynda­rík, ung kona.

Dreymir um starf hjá Kardashian-fjölskyldunni

Hver er draum­ur­inn hjá þess­ari ungu og hæfi­leik­a­ríku konu?

„Draum­ur­inn er að mennta mig meira á þessu sviði og læra eins mikið og ég get og að einn dag­inn geta miðlað minni reynslu og þekk­ingu til ann­arra. Að halda nám­skeið og jafn­vel gefa út bók væri algjör draumur. Það væri líka gaman að vinna í stórum kvik­myndum eða að vera í Glam teymi hjá tíma­riti eða hjá Kar­dashian-fjöl­skyld­unni. Ég held það sé allt fullt þar samt, en ég held í von­ina.“

Þeir sem vilja sjá fleiri verk eftir Ágústu geta fylgt henni á Instagram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina