Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Tveir leynigestir í stærsta Eurovision-partíi Íslands

Tveir leynigestir í stærsta Eurovision-partíi Íslands
||

„Á aðal­keppni Eurovision á hverju ári er sér­stakur skemmti­staður sem heitir Euro Club þar sem blaða­menn og kepp­endur í Eurovision safn­ast saman eftir keppn­ina. Þessi klúbbur er yfir­leitt á ein­hverjum skemmti­stað í borg­inni þar sem Eurovision er haldið og þar eru nátt­úru­lega ein­göngu spiluð Eurovision-lög og Eurovision-kepp­endur koma fram. Nú ætlum við í FÁSES að reyna að færa þessa hefð heim,“ segir Laufey Helga Guð­munds­dóttir. Hún situr í stjórn FÁSES, félag áhuga­fólks um Söngvakeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva og er einnig í stjórn í OGAE, alþjóð­legum regn­hlífa­sam­tökum Eurovision-aðdénda­klúbba um heim allan.

FÁSES-með­limir ætla að halda fyrr­nefndan Euro Club á skemmti­staðnum Ölveri eftir aðal­keppni Söngvakeppn­innar sem haldin verður í Laug­ar­dals­höll næst­kom­andi laug­ar­dag, þann 3. mars. En það er ekki eini við­burð­inn sem FÁSES-liðar bjóða uppá næstu helgi. Alls eru skipu­lagðir fjórir við­burðir í kringum úrslitin.

Laufey ásamt ítalska kepp­and­anum Francesco Gabbani sem sló í gegn í fyrra með lagið Occidentali’s Karma.

Leynigestir gætu verið erlendir

„Á föstu­dag­inn verður Barsvar í sal Sam­tak­anna 78 þar sem við­staddir verða spurðir úr Eurovision-spjör­unum. Á laug­ar­dags­morgun verður Flosi Jón Ófeigs­son, for­maður FÁSES, með Eurovision Zumba í Reebok Fitness í Holta­görðum. Það er dans­tími með Eurovision-lögum sem Flosi hefur boðið uppá síð­ustu ár. Það er algjör­lega ómissandi til að hrista úr sér mesta spenn­ing­inn, því ég veit hrein­lega ekki hvor er spennt­ari fyrir úrslit­unum; kepp­end­urnir sjálfir eða við aðdá­endur,“ segir Laufey og hlær og heldur áfram.

„Seinna sama dag verðum við með fyr­ir­partí í sal tölv­un­ar­fræð­inga á Engja­teig. Það verður að stilla af fán­ana, skipu­leggja klappið og stilla saman strengi. Þar hitt­umst við klukkan 16.30 og röltum yfir í Laug­ar­dals­höll upp úr klukkan 19 með tveimur leynig­estum að þessu sinni,“ segir Laufey, mjög dul og vill sem minnst segja um gest­ina.

Hér er Laufey ásamt Flosa og sig­ur­veg­ara síð­asta árs, hinum portú­galska Salvador Sobral.

„Það gæti verið að þeir væru erlendir. Hver veit? Við erum að skipu­leggja tísera í þess­ari viku og ætlum að ljóstra því upp hverjir það eru í lok vik­unnar. Eftir úrslitin röltum við saman yfir á Ölver þar sem verður Eurovision-plötu­snúður frá klukkan 23 til 3,“ segir Laufey.

Margir kepp­endur í Söngvakeppn­inni í ár eru búnir að stað­festa komu sína í partíið.

„Fókus hóp­ur­inn ætlar að stíga á stokk, sem og Ari Ólafsson, Dagur Sig­urðs­son, Stefanía Svav­ars­dóttir og Aron Hannes. Við erum að vinna í því að fá hina kepp­end­urna líka. Þetta verður stað­ur­inn til að vera á.“

Allir velkomnir og frítt á alla viðburði

Laufey er að vonum spennt fyrir helg­inni, sem er einn af hápunktum Eurovision-ver­tíð­ar­innar.

„Félagar FÁSES í kringum landið ætla að koma til Reykja­víkur þessa helgi og einnig fullt af Eurovision-aðdá­endum frá útlöndum. Það er gaman að gera svona mikið úr þessu og vera saman heila helgi,“ segir hún en bætir við að við­burðir helg­ar­innar séu ekki ein­göngu fyrir með­limi FÁSES.

„Það eru allir vel­komnir á alla við­burði og viljum við endi­lega sjá sem flesta. Það er frítt inn á alla við­burði og því um að gera að slást í för með Eurovision-gleð­inni.“

Helsinki að ári?

Aðspurð um hvaða lag hún haldi mest uppá í Söngvakeppn­inni í ár, vill Laufey helst ekki upp­ljóstra því.

„Ég á alveg fjögur upp­á­halds­lög þannig að ég er í til­tölu­lega góðum málum. En ég er fyrst og fremst glöð yfir því að það sé haldin keppni hér heima og það sé svona mikil stemn­ing fyrir henni. Mér finnst RÚV vera að standa sig mjög vel og ég er mjög þakk­lát fyrir að almenn­ingur fái að taka þátt í að velja fram­lag okkar til Eurovision,“ segir Laufey, sem fylgist vel með gangi mála í hinum Evr­ópu­lönd­unum og hefur nú þegar fallið fyrir einum flytj­and­anum.

„Ég á algjör­lega upp­á­halds Eurovision-flytj­anda í ár. Það er hin finnska Saara Aalto. Hún á eftir að velja á milli hvaða þriggja laga hún ætlar að syngja í keppn­inni en hún er hörku­góð söng­kona. Ég væri ekk­ert hissa á því ef við færum til Helsinki á Eurovision á næsta ári.“

En hvaða óska­lög mun Laufey biðja um í Eurovision-partí­inu næstu helgi, sjálfum Euro Club?

„Góð spurn­ing. Ætli það verði ekki You með Robin Stjern­berg og Monsters með Söru Aalto. Af íslensku lög­unum er það Eitt lag enn með Stjórn­inni. Engin spurn­ing.“

Myndir / Úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina