Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ég prófaði að búa til slím

Ég prófaði að búa til slím
|||||

Átta ára dóttir mín er búin að suða um að fá að búa til slím stans­laust síð­ustu mán­uði. Af hverju? Jú, ALLAR YouTube-stjörn­u­rnar eru að gera þetta!

Ég er búin að humma þetta af mér, því ég var búin að kanna þetta aðeins og fannst þetta svo fárán­lega flókið. Svo var ég líka viss um að þetta myndi skapa svo mikla ringul­reið á heim­il­inu að ég yrði fjögur ár að þrífa slím á bak við ofn­ana, úr hverjum krók og kima, úr nær­bux­unum mínum. Ég sem sagt mikl­aði þetta svaka­lega fyrir mér.

Loksins fékk hún að búa til slím!

Við skyldum búa til slím

En svo kom vetr­ar­frí. Og eins og allir for­eldrar vita þarf að vera vel skipu­lagður í svona fríi, þó aðeins um tvo daga sé að ræða. Maður þarf að vera með stíft pró­gramm frá morgni til kvölds til að þessi blessuðu börn fatti ekki að mamma og pabbi eru ekk­ert sér­stak­lega skemmti­leg. Þannig að ég ákvað að nú væri komið að stóru stundi. Við skyldum búa til slím. Er ég lagð­ist á kodd­ann kvöldið fyrir stóra slímdag­inn fór um mig hrollur. Annað hvort yrði ég besta mamma í heimi eða algjör­lega ömur­legur pappír. Eina sem ég get gert var að krossa fingur að ég myndi á ein­hvern undra­verðan hátt aula mig út úr þessu með hjálp fyrr­nefndra YouTube-stjarna og fullt af lími og rak­sápu.

Hneyksluð í Smáralind

Fyrstu skrefin.

Við byrj­uðum dag­inn á að fara í versl­un­ar­ferð. Ég var búin að lesa mér til um að það væri svaka­lega snið­ugt að nota Borax í svona slím­gerð. Ég hafði reyndar ekki hug­mynd um hvað þetta Borax var en vissi að ég gat fengið það í verslun nokk­urri í Kópavogi. Ég til­kynnti dóttur minni sigri hrós­andi að ég væri búin að finna Borax! En henni virt­ist vera alveg sama. Var slímá­hug­inn að hverfa?

Næsta stopp var mat­vöru­verslun þar sem við keyptum rak­sápu. Sko, það er mjög mik­il­vægt að kaupa froðu, ekki gel. Nei sko, ég var bara alveg með’etta! Svo fórum við í fönd­ur­búð og keyptum stóra túbu af hvítu, rán­dýru hobbí­lími. Hér er mjög mik­il­vægt að kaupa lím sem er annað hvort glært eða hvítt og fljót­andi.

Á þessum tíma­punkti hélt ég að ég væri komin með það sem þyrfti. En þá stopp­aði dóttir mín, yfir sig hneyksluð á miðju gólf­inu í Smára­lind og sagði hátt og skýrt:

„Mamma! Okkur vantar saline solution!“

Ókei, hún er átta ára! Hvernig vissi hún hvað saline solution var? Ég hefði ekki sam­þykkt þennan útúr­dúr, því ég var hand­viss um að við þyrftum ekk­ert salt­lausn­ina, nema mig vant­aði linsu­vökva hvort sem er. Þannig að saline solution, eða bara linsu­vökvi, var keyptur í næsta apó­teki.

Er við keyrðum heim, skalf ég af ótta. Þetta var bara að fara að ger­ast. Og mér fannst ég ekki vera und­ir­búin!

Hún ætlaði ekki að klúðra þessu

Þvílík ein­beit­ing.

Við komum heim og í tauga­veiklun minni tók ég til skál og skeið og byrj­aði að gúggla af kappi í sím­anum mínum um hvernig við ættum að byrja her­leg­heitin. En viti menn, þegar ég leit upp frá sím­anum var dóttir mín búin að hræra í eitt stykki full­komið slím. Án upp­skriftar, án leið­bein­ingar, án YouTube-stjarn­anna sér við hlið. Svo hélt hún bara áfram. Hún gerði hvern slím­skammt­inn á fætur öðrum og var meira að segja byrjuð að leika sér með hitt og þetta til að sjá útkom­una.

Hvernig gat þetta hafa farið fram­hjá mér? Eftir að hafa horft á átrún­að­ar­goðin sín gera slím, í þeirri veiku von að hún myndi ein­hvern tím­ann fá að gera slím, hafði hún verið að læra, taka heila­nótur og spá og spek­úlera í slím­gerð svo hún yrði vel und­ir­búin. Hún ætl­aði greini­lega ekki að klúðra þessu þegar dag­ur­inn kæmi.

Linsuvökvi er málið

Og vit­iði, við próf­uðum í eitt skipti að nota þetta Borax sem hvor­ugt okkar vissi hvað var og komumst fljótt að því að linsu­vökvi var algjör­lega málið. Svo lékum við okkur með liti og höfðum svo fárán­lega gaman. Þetta var æðis­leg stund í eld­hús­inu og ég held að mér hafi fund­ist skemmti­leg­ast að sjá hvað dóttir mín var búin að mastera þetta, án þess að hafa nokkurn tím­ann gert þetta sjálf.

Vá, hvað þetta var gaman!

Og gleðin, maður minn. Hún var svo ham­ingju­söm. Kallaði mig heims­ins bestu mömmu alla­vega tíu sinnum og var ein­hvers staðar langt uppí skýj­unum yfir því að fá að búa til slím. Það var líka svo gaman að horfa uppá barnið mitt svona óstjórn­lega ein­beitt í leik og sköpun. Við erum að tala um að slím­gerðin hófst rúm­lega tólf á hádegi og leiknum lauk ekki fyrr en að verða fimm. Það kalla ég vel gert!

Þannig að ég mæli með slím­gerð. Ég er ekki með neina heilaga upp­skrift en hér kemur slumpið okkar.

Hráefni:

Slím er magnað!

Glært eða hvítt fljót­andi lím
Raksápa í froðu­formi
Linsu­vökvi
Mat­ar­litur eða glimmer að eitt­hvað annað snið­ugt

Aðferð:

Byrjið á því að sprauta lími í skál, sirka einn bolla. Sprautið síðan rak­sápu ofan í skál­ina og það má alveg vera slatti. Því meiri froða, því mýkra verður slímið. Hrærið þetta vel saman. Sprautið síðan smá linsu­vökva saman við, bara hálfri eða einni teskeið í einu. Hrærið alltaf á milli. Þegar slímið er hætt að lím­ast við skál­ina þá er það til­búið. Síðan er mat­ar­litnum bætt út í og hnoðað og hnoðað og hnoðað. Síðan má bara leika sér að vild og teygja og toga. Ef slímið er of klístrað er bætt smá linsu­vökva við, en bara smá.

Best er að geyma slímið í loft­þéttum umbúðum inni í ísskáp en við vitum ekki enn hve lengi það dugar. Þegar slímið er nýkomið úr ísskápnum þarf að hnoða það til svo það hitni aðeins og þá er það teygj­an­legra og með­færi­legra. Góða skemmtun!

Texti / Lilja Katrín
[email protected]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina