Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Forgangsraða öðruvísi“

Feður yfir fimm­tugu.

„Forgangsraða öðruvísi“
|
Runólfur ásamt tveimur yngstu dætrum sínum, þeim Sigrúnu Erlu Run­ólfs­dóttur og Lönu Sóeyju Magn­ús­dóttur.

Runólfur Ágústs­son, fram­kvæmda­stjóri, er 54 ára og á sex börn og stjúp­börn á aldr­inum þriggja ára til þrí­tugs. Hann er kvæntur Áslaugu Guð­rún­ar­dóttur, mark­aðs- og kynn­ing­ar­stjóra Lista­safns Reykja­víkur. Runólfur er í Félagi eldri feðra og er við­tali í nýjasta tölu­blaði Mannlífs ásamt þremur öðrum félögum.

„Ég var 24 ára þegar  frum­burð­inn minn hann Skarp­héð­inn fædd­ist. Það var um hábjarta sum­arnótt á sjúkra­hús­inu á Akranesi. Eftir fæð­ing­una keyrði ég heim upp í Borg­ar­fjörð og tók upp í ein­mana erlendan puttal­ing þarna um 2 leytið um nótt­ina. Sá maður man vænt­an­lega enn eftir þessum hálf­tíma upp í Borg­ar­nes enda fékk hann ítar­lega lýs­ingu á bæði fæð­ingu, dásemd barns­ins og til­finn­ingum hins nýbak­aða föður,“ segir Runólfur þegar hann er spurður um fæð­ingu frum­burð­ar­ins.

„Á þessum tíma tíðk­að­ist ekki að feður tækju fæð­ing­ar­or­lof og er það lík­lega stærsta breyt­ingin á því að verða pabbi í dag og þá. Þegar Sigrún Erla, sem við köllum reyndar oft­ast Lukku, fædd­ist fyrir þremur árum tók ég að sjálf­sögðu fæð­ing­ar­or­lof og ég verð líka að játa það að ég er lík­leg­ast mun betri faðir í dag en þá. Það gerir þrosk­inn. Sem eldri faðir for­gangs­raða ég öðru­vísi og ver mun meiri tíma með yngri börn­unum mínu en ég gerði fyrir 20-30 árum með þeim eldri, þegar ég var enn þá með þann metnað að sigra heim­inn og taldi störf mín að þeim málum mik­il­væg­ari en að vera til staðar fyrir börnin mín og fjöl­skyldu.“

Hann segir að önnur jákvæð breyt­ing sé gæðin á leik­skól­unum. „Þar held ég, og miða við reynslu mína af Lukku, og Lönu eldri systur hennar sem er 9 ára í dag, á Lauf­ás­borg, að leik­skól­inn sé lík­lega fram­sækn­asta og besta skóla­stigið á Íslandi. Gæði starfs og náms þar eru allt önnur og betri en þegar synir mínir voru í leik­skóla fyrir 15-25 árum. Gaman væri að geta sagt hið sama um grunn- og fram­halds­skól­ann, en ég held að því miður hafi þar orðið þróun í öfuga átt náms­lega séð, þótt von­andi líði börnum betur í sínum skólum í dag en í þeim ein­eltispytti sem þá var að finna víða í grunn­skólum lands­ins.“

„Pabbi, góðan dag­inn!“
Runólfur telur sig ein­stak­lega lánsaman ein­stak­ling að verða þeirrar gæfu aðnjót­andi að eign­ast barn, kom­inn yfir fimm­tugt. „Þetta er bónus sem fáir njóta. Auðvitað hefur þetta breytt öllu í okkar lífi sem var bara orðið frekar þægi­legt. En hver vill ekki vakna fyrir sjö á morgn­ana og takast á við ein­stak­lega ákveðna og þrjóska þriggja ára dóttur sína um hvað hún vill borða, í hvaða nær­buxur hún vill fara, Möggu Pálu sé lof fyrir skóla­bún­ing­inn, og hvað hún ætlar og vill almennt séð í líf­inu – þessa einu og hálfu klukku­stund sem hún hefur til að ráðskast með aldr­aðan föður sinn og aðeins yngri móður þar til Hjalla­stefnan tekur við þess­ari kæru vin­konu úr höndum for­eldra hennar.

Ég vildi ekki skipta á þessu fyrir neitt annað, enda kom­inn á þann aldur að frami og ferða­lög skipta minna máli þar sem eng­inn staður er til hvar maður hittir ekki fyrir sig sjálfan. Það ger­ist þessa dag­ana kannski ekki á stang­veiðum á Kyrra­hafs­eyju, við sól­ar­lag hjá Uluru eða í safari í Ngorogoro, heldur bara á Hað­ar­stígnum klukkan 6:40 á mánu­dags­morgni þegar lítil og björt stúlk­u­r­öddin segir stund­ar­hátt innan úr her­berg­inu sínu: „Pabbi, góðan dag­inn!“ Þannig líður lífið áfram dag fyrir dag. Þannig er núið hjá hinum aldr­aða föður. Og það er bara býsna gott.“

Gott mann­val
Eins og fram kom í inn­gangi er Runólfur félagi í hinum óform­legan félags­skap, Félag eldri feðra, sem gerir þá kröfu til félags­manna að þeir hafi verið orðnir fimm­tugir þegar þeir eign­uð­ust sitt síð­asta barn. „Við tökum okkur hóf­lega alvar­lega, en erum með hóp á Netinu. Þetta er skemmti­legur félags­skapur enda þarna að finna mikið og gott mann­val. Almennt erum við á því að það fari metn­að­ar­gjörnum ung­körlum mun betur að vera og verða feður þegar þeir hafa gert sér grein fyrir því með aukum þroska og aldri að börnin okkar, líf okkar, fjöl­skylda og við sjálfir, skiptir mun meira máli en utan­að­kom­andi við­ur­kenn­ing, efn­is­leg gæði eða svo­kall­aðar tóm­stundir. Slíkar stundir eru í lífi virkra eldri feðra hvorki margar né tómar. Okkur leið­ist ekki og lífið er gott.“

Viðtölin við Hallgrím Helgason, Björn Karlsson og Jakob Frímann Magn­ús­son.

Texti / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir
Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi