Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Ég fékk þau skilaboð frá umhverfinu að þetta væri ógeðslegt“

„Ég fékk þau skilaboð frá umhverfinu að þetta væri ógeðslegt“
|||||

Síðustu ár hafa margar kann­anir verið gerðar í lönd­unum í kringum okkur um hvort konur skammist sín fyrir að vera á blæð­ingum. Nýleg könnun í Bret­landi sem fram­kvæmd var meðal fimmtán hund­ruð kvenna og fimm hund­ruð karla leiddi það í ljós að 58% kvenna höfðu skamm­ast sín fyrir að vera á túr. Þá sögð­ust 73% hafa falið dömu­bindi eða túrtappa þegar þær fóru á sal­ernið innan um fólk.

Við hjá Mannlífi ákváðum að fram­kvæma okkar eigin skoð­ana­könnun um þetta mál­efni. 608 konur svör­uðu könnun okkar um blæð­inga­skömm og 42,6% þeirra sögð­ust hafa skamm­ast sín fyrir að vera á blæð­ingum. Rúmlega 73,5% þeirra sem svör­uðu sögðu að þeim fynd­ist ekki óþægi­legt að tala um blæð­ingar við sína nán­ustu eða vinnu­fé­laga en 75,66% kvenn­anna sögð­ust fela túrtappa, dömu­bindi eða aðrar hrein­læt­is­vörur þegar þær færu á sal­ernið í mann­mergð, til dæmis í skóla eða á vinnu­stað.

Enn vandræðalegt umræðuefni

Þessar nið­ur­stöður koma Sigríði Dögg Arn­ar­dóttur kyn­fræð­ingi lítið á óvart en hún heldur meðal ann­ars kyn­fræðslu­fyr­ir­lestra fyrir ung­linga og for­eldra og kennir áfang­ann Almenn kyn­fræði í Háskól­anum í Reykja­vík, þar sem hún kemur einmitt inn á tíða­hring kvenna og egg­los.

„Það þarf að ræða þetta miklu, miklu meira. Það er heila málið. Mér finnst fólk búið að ákveða að það sé nóg að ræða þetta í kyn­fræðslu í sjötta bekk og síðan aldrei meir. Eins og að þessi fyrr­nefnda kyn­fræðsla hafi „koverað“ allt sem teng­ist blæð­ingum. Í dag, þegar ég tala um blæð­ingar við grunn­skóla­nema, fram­halds­skóla­nema og jafn­vel nem­endur á háskóla­stigi, finnst konum þetta enn rosa­lega vand­ræða­legt umræðu­efni. Og margir vita lítið um tíða­hring kvenna. Ungar konur eru mjög stress­aðar og kvíðnar þegar kemur að því að tala um túr og hafa enn svo margar spurn­ingar, eins og til dæmis: Hvenær byrja ég á túr? Hvernig lítur þetta út? Hvað er ég lengi á túr?“ segir Sigga Dögg.

Sigga Dögg vinnur til dæmis við að kenna kyn­fræðslu.

Trúarleg orðræða mjög fordæmandi

Ef við skoðum blæð­ingar í sögu­legu sam­hengi kemur í ljós að þessi blæð­inga­skömm hefur við­hald­ist í ýmsum trú­ar­brögðum. Í krist­inni trú voru konur á blæð­ingum taldar bein­línis hættu­legar. Ef marka má sögur kvenna í presta­stétt sem voru opin­ber­aðar fyrir stuttu í #metoo-bylt­ing­unni virð­ist þetta við­horf enn lifa góðu lífi meðal ein­hverra.

„Ég minn­ist manns­ins sem sagði að hann hefði farið inn á kló­settið í kirkj­unni eftir að ég var þar. Hann vildi vita hvernig prestur gæti blesssð söfn­uð­inn þegar hún væri á túr. Fyrstu mán­uð­ina og árin eftir að þetta gerð­ist hugs­aði ég um þetta í hvert skipti sem mér blæddi. Ég sá and­litið á honum fyrir mér og fannst ég skítug,“ hljóðar ein af sög­unum sem birtar voru á heima­síðu Þjóð­kirkj­unnar.

Í íslam má ekki stunda kyn­líf með konum á blæð­ingum og í hindúa­trú mega blæð­andi konur ekki fara inn í hof og biðja. Þá eru konur á túr taldar óhreinar í gyð­ing­dómi. Það mark­aði einnig tíma­mót í Nepal á síð­asta ári þegar lög voru sam­þykkt sem bönn­uðu að konur og stelpur væru læstar inni í svoköll­uðum blæð­inga­kofum, í algjörri ein­angrun, á þessum tíma mán­að­ar­ins, eitt­hvað sem kom frá fornri hefð úr hindúa­trú sem heitir chhaupadi. Var þetta gert því kon­urnar voru taldar óhreinar. Í ágúst lést ung­lings­stúlka í einum af þessum kofum eftir að hafa verið bitin af snáki og því var gripið til þess ráðs að banna blæð­inga­kof­ana. Þeir sem neyða konur inn í þessa kofa fram­vegis gætu átt yfir höfði sér þriggja mán­aða fang­els­is­dóm og sekt upp á rúm­lega þrjú þús­und krónur.

Sigga Dögg telur þessa orð­ræðu í trú­ar­brögðum hafa mikið að segja um af hverju konur skammist sín fyrir það að fara á túr.

„Trúin hefur rosa­lega mikið að segja og hefur að þessu leyti valdið okkur miklum skaða. Orðræðan er mjög for­dæm­andi, talað um að konan sé skítug og hún sé að gjalda fyrir erfða­synd­ina og blæð­ingar séu í raun okkar refs­ing. Þetta hefur litað alla orð­ræðu og gerir út um allan heim – konur fá ekki að sitja til borðs með öðrum, mega ekki fara í skól­ann, mega jafn­vel ekki að fara út úr húsi. Það þarf ekki að fara langt til að sjá að konur á blæð­ingum eru jað­ar­settar,“ segir kyn­fræð­ing­ur­inn og bætir við að konur á túr séu vissu­lega nið­ur­lægðar á Íslandi, þótt þjóðin sem slík sé ekki heit­trúuð.

„Þetta er talið svo mikið kvenna­mál sem er ótrú­lega áhuga­vert. Stelpur fá enn að heyra: Ertu pirruð? Ertu á túr? Svona setn­ingar eru not­aðar til að nið­ur­lægja og setja konur niður. Eins og maður eigi ekki rétt á þessum til­finn­ingum, vegna líf­fræði­legs ferlis sem við ráðum ekk­ert við. Strákar nota þessar setn­ingar og stelpur þola það ekki. Þetta lifir því miður góðu lífi í dag.“

Skömminni viðhaldið í skólum

Það er slá­andi að sjá í könnun Mannlífs hve margar konur hafa átt í erf­ið­leikum með að tala um fyrstu blæð­ing­arnar við for­eldra sína, og jafn­vel falið þær fyrir þeim svo árum skiptir. Sigga Dögg telur nauð­syn­legt að for­eldrar taki það að sér að fræða og und­ir­búa börnin sín þegar kemur að tíða­hringnum, þá bæði drengi og stúlkur.

„Ef þú átt barn með píku fer það barn á blæð­ingar og umræðan um það þarf að byrja mjög snemma. Ég á tvo drengi og eina stúlku og á mínu heim­ili var umræðan um túr byrjuð um þriggja ára ald­ur­inn. Ég fer á kló­settið með opna hurð og þá er spurt: Hvað er þetta? Af hverju ger­ist þetta? Mun þetta ger­ast hjá mér? Þetta er mjög eðli­legur hluti af sam­ræðum,“ segir Sigga Dögg og bætir við að kyn­fræðslu sé oft ábóta­vant í grunn­skólum lands­ins.

„Þessi fræðsla er oft kynja­skipt þannig að strákar eru úti á þekju hvað varðar blæð­ingar. Það hefur stuðað margar stelpur, enda finnst þeim þetta ekki vera þeirra einka­mál. Af hverju fá stelpur ekki að vita um stráka og strákar um stelpur? Þannig að þess­ari skömm er við­haldið í skólum. Margir strákar vita ekk­ert um egg­los og frjóvg­un­ar­legu hlið­ina á konum, til dæmis hvenær hún getur orðið ólétt. Fræðslan er líka oft of fræði­leg, í stað­inn fyrir að útskýra blæð­ingar á manna­máli, af hverju blóðið er mis­mun­andi á lit­inn, hvaðan það kemur og hve mikið kemur í einu. Við erum ekki að lesa IKEA-bæk­ling, við erum að tala við fólk.“

Taka skal fram hér að nýverið var það til­kynnt að taka eigi upp kyn­fræðslu frá 1. og upp í 10. bekk í tveimur skólum í Reykja­vík í til­rauna­skyni.

Fullnæging getur stillt túrverki

Sigga Dögg segir að það sé ekk­ert rétt né rangt við sam­farir á túr.

Talið berst að kyn­lífi á blæð­ingum, en ein af flökku­sög­unum um sam­farir á túr er að kyn­lífið verði ógeðs­legt, það fruss­ist blóð úr leggöngum kon­unnar og að það gjósi upp vond túr­lykt. Sigga Dögg er alvön að svara slíkum sögum.
„Þetta fruss­ast ekki út,“ segir Sigga Dögg og hlær. „Ef þú ert að stunda kyn­líf er til dæmis hægt að setja hand­klæði undir. Svo er líka hægt að stunda kyn­líf í baði eða sturtu ef fólk vill hafa þetta hrein­legra.“

Sigga Dögg segir að það sé ekk­ert rétt né rangt við sam­farir á túr, heldur þurfi hver kona að ákveða fyrir sig hvað veiti henni ánægju.

„Konur þurfa að spyrja sig, sem blæð­andi verur: Finnst þér þetta ógeðs­legt? Ef svarið er já og þér finnst erfitt að slaka á í kyn­lífi með annarri mann­eskju þá ætt­irðu frekar að sleppa því. Ég vil samt benda á að það er ein til­gáta um það að full­næg­ing sé verkja­still­andi og geti því stillt túr­verki. Þá getur full­næg­ing einnig stytt blæð­inga­tím­ann því legið fær krampa við full­næg­ingu sem veldur því að það losar lík­amann hraðar við túr­blóðið. Margar konur upp­lifa sig einnig mjög kven­legar á blæð­ingum og það er eitt­hvað til að fagna,“ segir Sigga Dögg.

Oft er skömmin í hausnum á okkur

En hvað geta konur gert til að skila blæð­inga­skömminni?

„Við þurfum að byrja á því að fræða opin­skátt og eðli­lega um blæð­ingar og ræða þær í nærum­hverf­inu sínu ef maður hefur þörf fyrir það. Við þurfum að leyfa okkur að taka upp dömu­bindi og túrtappa úr tösk­unni á almanna­færi og ekki deyja yfir því. Sam­fé­lagið er hægt og rólega að breyt­ast. Oft er þessi skömm í hausnum á okkur og fólk í kringum okkur er almennt ekk­ert að pæla í okkar kló­sett­ferðum.“

Unaður sem fylgir kynfærum

Ein af athuga­semd­unum sem sló und­ir­rit­aða hvað mest í könnun Mannlífs lýsti því hvernig nafn­laus kona sagð­ist finna allt sem tengd­ist kyn­færum sínum óþægi­legt. Sigga Dögg segir að við eigum langt í land með að aflétta kyn­færa­skömm almennt.

„Það er rosa­lega feimni í kringum það að tala um kyn­færin, skoða þau, upp­lifa þau, kanna þau og hafa gaman að þeim. Það er rosa­lega mikið tabú. Auðvitað sjáum við að umræðan þarf að byrja miklu fyrr, það er það sem er alltaf verið að impra á. Orðræðan um píkur er enn svo gild­is­hlaðin. Hver er að tala um píkur fyrir framan börn? Einhver full­orð­inn. Notkun þessa ein­stak­lings á orð­inu píka hefur áhrif. Það tekur margar kyn­slóðir að vinda ofan af þessu og breyta,“ segir Sigga Dögg, sem veit fátt betra en þegar opin­skátt tal hennar um kyn­færi, kyn­líf og allt sem því fylgir ber árangur.

„Þess vegna er ég að gera það sem ég er að gera. Það er ótrú­lega gef­andi að stelpa komi upp að mér og segi mér frá því að hún hafi prófað að skoða pík­una á sér. En það er alltaf í hálfum hljóðum og aldrei yfir bekk­inn. Við verðum að hætta að taka þetta svona alvar­lega. Við kyn­fræð­ingar sem sinnum kyn­fræðslu erum á því að leiðin til að gera umræð­una opn­ari og létta skömm sé að fara í gegnum unað­inn sem fylgir kyn­færum. Fara yfir jákvæðn­ina, hvernig við getum notið lík­am­ans og upp­lifa að hann geti verið skemmti­legur og frá­bær. Það eru margar rann­sóknir sem styðja þessa leið til sjálfs­efl­ingar og -styrk­ingar.“

Rétta orðið er píka

Til­finn­ing Siggu Daggar er samt sem áður sú að það sé orðið eðli­legra fyrir marga að nota orðið píka yfir kyn­færi kvenna en það var fyrir nokkrum árum.

„Samtalið um pík­una fór af stað inni á mörgum leik­skólum og í dag eru mjög margir leik­skóla­kenn­arar og yngri for­eldrar sem nota orðið píka. Mér finnst gott að brýna það fyrir börn­unum mínum að rétta orðið sé píka, þó að við getum að sjálf­sögðu notað ein­hver gælu­nöfn yfir hana. Hvernig við lítum á orðið kemur oft heiman frá okkur. Þeir sem hika við að nota orðið gera það því það þykir ljótt heima hjá þeim. Ég hitti enn stelpur, jafn­vel í fram­halds­skóla, sem geta ekki sagt orðið píka. Við notum þetta orð líka enn til að tala illa um aðrar konur, sam­an­ber „hel­vítis píkan“. Það þarf að breyta tungu­mál­inu og það þarf að fara að fagna píkunni.“

Sigga Dögg vill opna umræðu um hvernig hægt sé að nota lík­amann til unaðar og ánægju.

Ekki samasemmerki milli ummáls og heilsufars

Talið berst að lík­ams­vit­und kvenna, en það er alþekkt að bæði konur sjálfar og sam­fé­lagið setja miklar kröfur um að þær eigi að líta út á ákveð­inn hátt. Oft hefur orð­inu útlits­dýrkun verið fleygt í þessu sam­hengi. Sigga Dögg fagnar sam­tökum og hreyf­ingum eins og Samtökum um lík­ams­virð­ingu og segir verk sem þar er unnið skipta sköpum.

„Orðræðan hefur breyst. Ég tók til dæmis ekki eftir því að aug­lýs­ingar bentu mér á að ég þyrfti að kom­ast í kjól­inn fyrir jólin í aðdrag­anda síð­ustu jóla. En þessi orð­ræða er svo djúp. Hún smeygir sér inn í merg­inn inni í bein­inu. Ég til dæmis reyni að stoppa mig af áður en ég lendi í víta­hring lík­ams­skammar en þetta er svo inn­gróið. Rann­sóknir hafa sýnt að allt niður í þriggja ára börn snið­ganga frekar feita krakka því þau vita hvað það er ljótt og hættu­legt að vera feitur. Það er jú talað um fitu­far­ald­ur­inn eins og hann sé ein­hver djöf­ull sem sé hér kom­inn til að éta þau. En það skiptir svo ótrú­lega miklu máli að við áttum okkur á því að það er ekk­ert sama­sem­merki á milli lík­ams­um­máls og heilsu­fars,“ segir Sigga Dögg og heldur áfram.

„Sam­fé­lagið er að segja okkur að við getum verið eitt­hvað sem við eigum ekki að reyna að vera. Ég kem til dæmis úr kven­fjöl­skyldu þar sem við erum með granna fót­leggi en mjúkan maga. Ég hef alltaf þráð sléttan maga en það er bara ekki í minni gena­bygg­ingu. Ég myndi þyrfa að svelta mig í ein­hvern tíma ásamt því að æfa brjál­æð­is­lega mikið til að fá sléttan maga í korter. Líkaminn veit hvernig hann vill vera en við bara hlustum ekki. Við setjum okkur ein­hver mark­mið í rækt­inni sem oftar en ekki eru sentí­metra- eða kílóa­tengd og það er svo frá­leitt. Þetta á ekki að vera svona.“

„Ef þú værir aðeins grennri værirðu aðeins betri“

Sigga Dögg telur að það sé ekki aðeins fjöl­skylda okkar og hvernig for­eldrar tala við börnin sín sem skiptir máli þegar kemur að því að bæta lík­ams­vit­und kvenna. Það þurfi meira til.

„Þetta er allt í kringum okkur – í fjöl­miðlum, aug­lýs­ingum, bíó­myndum, hvernig við tölum hvor við aðra. Þótt maður sé gagn­rýn­inn er maður samt ekki ónæmur fyrir þess­ari umræðu. Ég sveifl­ast til dæmis í fitu­söfnun og um leið og ég næ aðeins af mér heyri ég mikið af hrósi um hvað ég líti vel út. Þá líður mér eins og fólk sé oft að hugsa: Ef þú værir aðeins grennri vær­irðu aðeins betri. Þú værir meira fyrir augað,“ segir Sigga Dögg sem segir einnig stigs­mun á hvernig talað er við konur og karla þegar kemur að útlit­inu.

„Hópur karl­manna á miðjum aldri spurði mig um dag­inn hvort þeir mættu ekki hrósa konum í vinn­unni lengur. Hvort það væri ljótt að hrósa. Sumir vilja hrós en flestar okkar nennum því ekki að karl­menn hafi skoðun á okkur. Okkur langar bara að fá að vera í vinn­unni og vinna vinn­una okkar. Það er rosa­lega þreyt­andi að þurfa sífellt að taka ákvörðun um útlit sitt. Ef að ég er mygluð og mæti í víðum galla­buxum og hettu­peysu í vinn­una er það ein­hvers konar yfir­lýs­ing, en ósköp venju­legt ef karl­maður gerir það. Auðvitað tengja karl­menn ekki við þetta því þetta er ekki þeirra reynslu­heimur. En konur fá svo mikið af athuga­semdum frá sam­fé­lag­inu og fólk­inu í kringum sig um hvernig þær líta út. Okkur langar bara að vera,“ segir Sigga Dögg og rifjar í kjöl­farið upp atvik þegar henni var neitað um fjöl­miðla­við­tal því hún væri ekki máluð.

„Ég sagð­ist bara ætla að vera svona, en það var stungið upp á því að við­tal­inu yrði frestað þar til ég væri „betur stemmd“. Eins og fólk yrði ofboðs­lega vand­ræða­legt fyrir mína hönd og færi að hafa áhyggjur af því að ég væri ekki und­ir­búin því ég væri ekki máluð. Fólk ákveður hvernig okkur konur líður út frá útlit­inu. Það les í klæða­burð­inn okkar, í stað­inn fyrir að kafa dýpra í skel­ina. Bæði konur og karlar eru með mjög skerta sjálfs­mynd og það hjálpar ekki að utan­að­kom­andi aðilar hafi sífellt skoð­anir á því hvernig þú lítur út. Verum bara eins og við viljum. Hættum að troða hug­myndum upp á alla aðra um hvernig þeir eigi að vera. Hafðu bara skoðun á þínum eigin, fokkíng lík­ama.“

Berum virðingu fyrir fjölbreytileikanum

Það sem byrj­aði sem spjall um blæð­ingar hefur farið á flug, enda af nægu að taka af öllu sem varðar skömm sem teng­ist lík­ama kvenna. Sigga Dögg segir þær her­ferðir og gras­rót­ar­sam­tök sem hafa starfað á Íslandi hafa haft mikil og góð áhrif, og ber þar til dæmis að nefna Völvuna og Druslu­göng­una. Hún segir sam­fé­lagið í heild sinni einnig á góðri leið, þótt við tökum stundum tvö skref áfram og þrjú aftur á bak.

„Sem sam­fé­lag erum við alltaf að læra. Við erum alltaf að batna og sýnum hvert öðru meiri virð­ingu og skiln­ing. Mér finnst ein­lægur vilji hjá mörgum að reyna að skilja aðrar mann­eskjur og bera virð­ingu fyrir því hvað við erum ólík. Bakslagið kemur helst frá gömlum röddum sem rifja upp gamla tíma og spyrja að því hvort ekk­ert megi í dag. En af hverju megum við ekki bara hlusta á fólk og virða það sem það hefur að segja? Ég er ekki eins og þú og það er hvorki hættu­legt fyrir mig né þig.“

„Finnst allt óþægilegt sem tengist kynfærum mínum“

Eins og áður segir, ákváðum við hjá Mannlífi að fram­kvæma okkar eigin skoð­ana­könnun um blæð­inga­skömm. Við spurðum einnig af hverju konur skömm­uð­ust sín fyrir að vera á túr. Meðal svara sem við fengum voru:

„Dömu­bindi þykja ekki smart, maður vill ekki láta fólk sjá að maður fari á kló­settið með dömu­bindi í hend­inni.“

„Finnst ég óhrein.“

„Það hefur blætt í gegn, til dæmis þegar ég hitti tengda­for­eld­rana í fyrsta sinn, mér fannst það vand­ræða­legt.“

„Ég var 14 ára og það kom í gegnum fötin mín þegar ég var með pabba og nýrri kær­ustu hans í Kringl­unni. Það kom blettur í stól­inn á Stjörnu­torgi. Þá skamm­að­ist ég mín. Enda 14 ára og ný í brans­anum. En kærast­inn minn er með óþol­andi blæð­inga­fó­bíu og kemur helst ekki nálægt mér meðan á því stendur. Þorir varla inn á bað af ótta við að sjá ein­hver ummerki á eða í kringum kló­settið. Og hann gæti aldrei tæmt ruslið inni á baði, þó að ekk­ert blæð­inga­tengt væri í því. Ég skamm­ast mín þó ekki þegar hann lætur illa, ég segi honum bara að hann sé fífl og ætti að þakka fyrir, ég væri alla­vega ekki ólétt.“

„Skammast mín fyrir að kvarta yfir verkjum.“

„Veit ekki alveg af hverju, ein­hver skömm sem hefur verið inn­byggð.“

„Fundist vand­ræða­legt að vera með stór dömu­bindi, held að það sjá­ist/heyr­ist kannski, fyrir að geta ekki stundað kyn­líf, fyrir að vilja kannski ekki fara í sund.“

„Það kemur oft mikil lykt og mikið blóð.“

„Finnst allt óþægi­legt sem teng­ist kyn­færum mínum.“

„Byrjaði 10 ára á túr og sagði engum frá í þrjú ár.“

Álfa­bik­ar­inn er ein af þeim vörum sem konur geta notað á túr.

Flest svörin eiga það þó sam­eig­in­legt að kon­urnar sem tóku þátt í könnun okkar finnst sam­fé­lagið dæma þær fyrir að vera á blæð­ingum og að það hafi skort fræðslu frá for­eldrum þegar blæð­ingar byrj­uðu, en algeng­ast er að stúlkur byrji á blæð­ingum frá 10 ára aldri og upp í 15 ára.

„Sam­fé­lagið hefur kennt manni að það sé ógeðs­legt og óhreint,“ skrifar ein kvenn­anna og önnur er sam­mála: „Því ég fékk þau skila­boð frá umhverf­inu að þetta væri ógeðs­legt.“

„Var alin upp þannig að þetta væri eitt­hvað sem eng­inn talar um, svo ung­ling­ur­inn ég með ekk­ert sjálfs­traust/sjálfs­á­lit tók það svo nærri mér að ég fór alltaf að skamm­ast mín þegar ég var á túr þangað til ég lærði að þetta á alls ekki að vera feimn­is­mál og allar konur fara í gegnum þetta!“ skrifar önnur og margar hafa svip­aða sögu að segja:

„Bara ógeðs­legt og mikið talað nei­kvætt um þetta af fjöl­skyld­unni minni.“

„Skamm­að­ist mín sem ung­lingur þar sem þetta var aldrei umræðu­efnið milli mín og mömmu, þar af leið­andi fannst mér þetta ekki eðli­legt „ástand“.“

„Ég byrj­aði 11 ára og eng­inn hafði rætt það við mig svo ég faldi þetta og not­aði kló­sett­pappír og þvoði nær­bux­urnar mínar sjálf í hönd­unum í kló­sett­vask­inum.“

„Þegar ég byrj­aði á blæð­ingum 13 ára gömul þorði ég ekki að segja nokkrum manni frá því. Sér­stak­lega ekki mömmu, ég var alveg viss um að hún yrði reið. Kona sem er aldrei reið, hehe!“

„Mamma var ekk­ert að kenna mér hvað blæð­ingar voru og lét mér eig­in­lega líða bara illa með það.“

Enn aðrar segja skömm­ina hafa komið vegna þess að þær byrj­uðu ungar á blæð­ingum, jafn­vel fyrstar af sínum vin­konum eða skóla­systrum. „Fyrst þegar ég byrj­aði var þetta rosa­skömm að vera komin á blæð­ingar í grunn­skóla,“ skrifar ein og önnur seg­ist hafa falið blæð­ingar fyrir öllum í þrjú ár. „Byrjaði 10 ára og sagði engum frá fyrr en 13 ára.“

Þá eru nokkrar konur sem segj­ast hafa hætt við að fara í sund, lík­ams­rækt eða á manna­mót vegna blæð­inga, ein­hverjar sem telja að sam­fé­lagið líti á blæð­ingar sem veik­leika og sumar kon­urnar telja að komið sé fram við þær öðru­vísi, til dæmis af vinnu­veit­enda, þegar þær eru á túr. Þá hafði ein kona lent í vand­ræðum hjá vinnu­veit­enda fyrir að tala um blæð­ingar sínar:

„Fékk einu sinni skammir frá vinnu­veit­anda fyrir að útskýra að mér liði illa vegna þess að ég væri með túr­verki. Var sagt að svona lagað ættu ungar stúlkur ekki að nefna upp­hátt.“

Hvernig væri heimurinn ef karlmenn færu á túr?

Anna Tara. Mynd / Kristín Péturs

Konur um allan heim eru farnar að opna umræð­una um blæð­ingar til að útrýma blæð­inga­skömm. Ein af þeim er tón­list­ar­konan og Reykja­vík­ur­dóttirin Anna Tara Andr­és­dóttir. Hún olli miklu fjaðrafoki á sam­fé­lags­miðlum í fyrra þegar hún frum­sýndi mynd­bandið við lagið Pussypics. Píkan og blæð­ingar eru í aðal­hlut­verki í mynda­band­inu og þótti mynd­bandið of gróft til að vera sýnt á mynd­banda­veitum á borð við YouTube. Einnig var mynd­band­inu hent út af þekktum klám­síðum. Anna Tara mátti þola mik­inn fúk­yrða­flaum út af fyrr­nefndu mynd­bandi en hún telur mjög mik­il­vægt að opna umræð­una um blæð­ingar.

„Við getum útrýmt þess­ari skömm með því að tala mjög mikið um blæð­ingar og sýna þær með marg­vís­legum hætti, hvort sem það er í dag­legu lífi eða í listum, þangað til að þær „normalíser­ast“. Kiran Gandhi hljóp til dæmis London-mara­þonið án þess að nota túrtappa eða dömu­bindi og lét sér blæða frjálst, sem vinnur þá bæði gegn því að þetta sé feimn­is­mál og að þetta sé veik­leika­merki,“ segir Anna Tara.

En af hverju telur hún að sumar konur skammist sín fyrir að vera á blæð­ingum?

„Stórt er spurt. Það eru svo ótrú­lega marg­þætt en lík­leg­ast mjög mörg mis­mun­andi skila­boð um að það sé ógeðs­legt eða veik­leika­merki,“ segir tón­list­ar­konan sem hefur velt blæð­ingum mikið fyrir sér.

„Eftir að ég byrj­aði að velta túr mun meira fyrir mér og fylgi­fiskum hans, fór ég að taka eftir því hvað ég er hrif­næm á túr og reyni að gefa sjálfri mér rými til að slaka á og vera í til­finn­inga­úr­vinnslu og þá hlakkar hluti af mér til þess. En mér finnst þreyt­andi að vera með túr­verki, finn­ast ég útblásin og þurfa að pæla í túr­töppum og slíku. Sumir eru við­kvæmir fyrir því að það sé talað um túr en svo birt­ist skömmin kannski í mörgum öðrum hlutum, eins og ef þú ert með túr­blett aftan á rass­inum sem þú vissir ekki af. Ég hef heyrt stelpur vera miður sín yfir því að hafa gist hjá strák og það hafi óvart farið blóð í lakið. Svo næst blóðið illa úr lak­inu í þvotti. Einn þurfti að fara með lakið í hreinsun. Ef karl­menn færu á túr, ætli það væru þá til þvotta­vélar sem næðu túr­blóði úr lökum? Eða hvernig væri heim­ur­inn ef karl­menn færu á túr?“ spyr Anna Tara.

Fyrr­nefnt mynd­band Önnu Töru við lagið Pussy Pics má horfa á með því að smella hér. Við vörum við­kvæma við inni­haldi mynd­bands­ins.

Fleiri konur sem hafa opnað umræðuna

Norska tón­list­ar­konan Jenny Hval vakti athygli þegar hún gaf út plöt­una Blood Bitch árið 2016 en eitt lagið á plöt­unni, Untamed Region, fjallar einmitt um þá skömm sem umlykur blæð­ingar kvenna.

Kanadíska lista­konan Rupi Kaur komst í heims­press­una í mars árið 2015 þegar hún birti mynd úr mynda­seríu sinni Period (Tíðir) á Intagram. Á mynd­inni sést kona liggj­andi í rúmi og snýr baki í mynda­vél­ina. Blóð­blettir eru á buxum hennar og í lak­inu. For­svars­menn Instagram eyddu mynd­inni nán­ast sam­stundis út af sam­fé­lags­miðl­inum þannig að Rupi skrif­aði um það á bæði Facebook og Tumblr. Málið vakti svo mikla athygli að Instagram leyfði mynd­ina, en hana má sjá hér:

Svo er líka vert að nefna tón­list­ar­kon­una og aðgerð­ar­sinn­ann Kiran Gandhi sem hljóp London-mara­þonið í ágúst árið 2015 á blæð­ingum. Hún not­aði hvorki bindi né túrtappa og leyfði blóð­inu að flæða frjálst úr sköpum sínum.

Fyrstu heimildir um blæðingaskömm

„Yfir­bragð hennar mun deyfa birtu spegla, gera stál­brún bit­lausa og afmá gljáa fíla­beins. Býflugna­hjörð myndi deyja sam­stundis ef hún myndi svo mikið sem líta á hana.“ Svona lýsir róm­verski fræði­mað­ur­inn Plinius eldri þeim áhrifum sem blæð­ingar kvenna hafa á aðra í rit­inu Nátt­úru­saga (Naturalis Historia) í kringum árið 77 til 79.

Þetta eru fyrstu heim­ildir um það sem má kalla blæð­inga­skömm, sem á ensku heitir per­iod shame eða menstrual taboo. Síðan þá hafa blæð­ingar verið lastaðar í gegnum tíð­ina og orð­ræða í kringum þetta nátt­úru­lega og eðli­lega fyr­ir­bæri verið konum til minnk­unar.

Kúgast yfir túrbletti

Það eru ekki aðeins trú­ar­brögð sem við­halda þess­ari svoköll­uðu blæð­inga­skömm, heldur einnig ýmis­legt í menn­ingu okkar, til dæmis hvernig talað er um tíðir í kvik­myndum og sjón­varps­þáttum. Þar má meðal ann­ars nefna kvik­mynd­ina Superbad þegar Seth, sem leik­inn er af Jonah Hill, upp­götvar að hann er með túr­blett á bux­unum eftir heitan dans með fyrr­ver­andi kær­ustu. Hann kúg­ast sam­stundis. Þegar leik­ar­inn Seth Rogen, einn af hand­rits­höf­undum mynd­ar­innar, rifj­aði þetta atriði upp á Twitter í fyrra, til að fagna tíu ára afmæli mynd­ar­innar, stóðu við­brögðin ekki á sér og fjöl­margir tíst­arar tjáðu sig um hve ógeðs­legt þetta atriði hefði verið.

Í kvik­mynd­inni Blue Lagoon frá 1980 skamm­ast Emmeline, túlkuð af Brooke Shields, sín niður í tær þegar hún byrjar á túr þegar hún er að baða sig í litlu lóni. Fyrst áttar hún sig ekki á því hvað er að ger­ast og kallar á frænda sinn að hjálpa sér. Þegar það síðan rennur upp fyrir henni að um blæð­ingar sé að ræða öskrar hún á hann að hypja sig, svo mikil er skömmin.

Einnig er vert að minn­ast á kvik­mynd­ina Carrie frá árinu 1976 í þessu sam­hengi, þar sem aðal­sögu­hetjan Carrie White, leikin af Sissy Spacek, byrjar á blæð­ingum í skól­anum. Trúuð móðir hennar sýndi henni engan stuðn­ing og útskýrði tíðir ekki fyrir Carrie og verður hún fyrir miklu aðkasti frá skóla­fé­lögum sínum.

Þá vöktu ummæli Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta, í garð frétta­kon­unnar Megyn Kelly heims­at­hygli í ágúst árið 2015. Megyn gekk hart að núver­andi Banda­ríkja­for­seta í fyrstu kapp­ræðum til­von­andi for­seta­efna Repúblíkana­flokks­ins og yfir­heyrði hann um niðr­andi ummæli hans í garð kvenna. Eftir kapp­ræð­urnar ýjaði valda­mesti maður heims að hún hefði verið svona ágeng því hún hafi verið á blæð­ingum.

Texti / Lilja Katrín
[email protected]
Myndir / Aldís Páls­dóttir / Kristín Pét­urs­dóttir / Úr safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við