Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Snappar um brjóstastækkun: „Ég hef alltaf verið með lítil og nett brjóst“

Snappar um brjóstastækkun: „Ég hef alltaf verið með lítil og nett brjóst“
||

Sunna Ýr Perry er 23ja ára gömul og vinnur í lík­ams­rækt­ar­stöð World Class. Hún átti sitt fyrsta barn í júlí á síð­asta ári og eign­að­ist nýverið kærasta. Hún er virk á Snapchat undir nafn­inu sunna.perry þar sem hún talar mjög opin­skátt um líf sitt, meðal ann­ars um brjósta­stækk­un­ar­að­gerð sem hún er á leið­inni í næst­kom­andi mið­viku­dag.

Brjóstin stækkuðu við brjóstagjöf

Sunna stundir lík­ams­rækt af kappi.

„Ég byrj­aði að íhuga stækkun eftir að ég átti barn, þá stækk­uðu brjóstin tölu­vert á meðan brjósta­gjöf stóð og minnk­uðu svo aftur. Ég hef alltaf verið með lítil og nett brjóst, sem hefur svo sem aldrei verið neitt vanda­mál. Ég hef aldrei verið óör­ugg með þau en eftir að hafa upp­lifað þau stærri, þá langar mig í stærri. Ég er með breiðar mjaðmir, mitt­is­mjó og herða­breið og langar að jafna lín­urnar,“ segir Sunna aðspurð um af hverju hún ætli að leggj­ast undir hníf­inn. Aðgerðin leggst vel í hana.

„Ég er mjög spennt en ekk­ert rosa­lega kvíðin og stressuð samt því ég hugsa bara um það að ég hafi átt barn deyf­ing­ar­laust og það var mesti sárs­auki sem ég hef upp­lifað og við tóku dagar að jafna sig. Ég komst í gegnum það og þá hlýt ég að þola þetta auð­veld­lega,“ segir Sunna og brosir.

Stelpur fela að þær hafi farið í stækkun

Sunna ætlar að leyfa fylgj­endum sínum á Snapchat að fylgj­ast með und­ir­bún­ingi fyrir aðgerð­ina og líka bata­ferl­inu. Hún leggur mikið upp úr því að tala opin­skátt um hlut­ina.

„Ég hef verið að snappa opin­bert í smá tíma. Ég hef verið frekar opin við minn fylgj­enda­hóp og mér finnst stelpur of mikið fela það að þær hafi farið í stækkun, svo ég ákvað að opna umræð­una en þó aðal­lega til að fræða fólk. Mjög margar konur sem vilja sjálfar fara hafa þakkað mér fyrir að segja frá þessu, tala um ferlið og svona,“ segir Sunna, sem talar ekki ein­göngu um aðgerð­ina á sam­fé­lags­miðl­inum.

„Ég er aðal­lega að sýna frá mínu dags­dag­lega lífi. Ég stunda mikla lík­ams­rækt og borða hollt þannig ég sýni frá því og einnig barn­inu mínu. Ég er smá sprelli­gosi svo ég held öllu á jákvæðum og hressum nótum. Ég leyfi síðan fólki líka að fylgj­ast með stóru hlut­unum í líf­inu mínu, ég keppti í módel fit­ness 2016 og sýndi frá öllu því ferli, svo snapp­aði ég út alla með­göng­una mína og eftir fæð­ingu og svona, og núna aðgerðin.“

Nokkurs konar áhrifavaldur

Sunna seg­ist finna fyrir með­byr á Snapchat og segir við­brögðin við ein­lægni sinni hafa verið góð.

„Ég hef bara fengið góð og fal­leg skila­boð. Varðandi aðgerð­ina þá hef ég fengið gríð­ar­lega góð við­brögð, mikið spurt út í lækn­inn sem ég fer til, kostnað, bata­tíma og fleira,“ segir Sunna, en lík­leg­ast er það ekki of sögum sagt að hún sé áhrifa­valdur í dag.
Sunna sýnir frá sínu dag­lega lífi á Snapchat.

„Ég er orðin nokk­urs konar áhrifa­valdur ef svo má segja, þar sem ég er bæði blogg­ari á blogg­síð­unni glam.is, búin að vera í snappa í dágóðan tíma og fylgj­enda­hóp­ur­inn stærri en gengur og ger­ist hjá öðrum. Einnig er ég með ágætt fylgi á Instagram og ég hef verið að taka að mér aug­lýs­ingar og fleira sem er í takt við mína sam­fé­lags­miðla, eitt­hvað sem hentar mér og mínum fylgj­endum.“

En hvað tekur svo við eftir brjósta­stækk­un­ar­að­gerð­ina?

„Eftir aðgerð­ina tekur við bati. Ég mun leyfa fólki að fylgj­ast með hversu fljót eða lengi ég verð að jafna mig, hvenær ég get byrjað að halda á barn­inu mínu aftur og svo hvenær ég get byrjað að æfa aftur. Einnig byrja ég að vinna í enda mán­að­ar­ins og ég gef mér um það bil tvær vikur til að ná bata áður en ég fer aftur að vinna.“

Texti / Lilja Katrín
[email protected]
Myndir / Úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina