Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Öllu tjaldað til

Fátt er skemmti­legra en að fara í úti­legu í góðu veðri og njóta alls þess sem íslenska sveitin okkar hefur upp á að bjóða. Margir eiga dýr­mætar bernskuminn­ingar frá slíkum ævin­týra­ferðum en erfitt getur reynst að velja úr þeim mýmörgu tjald­stæðum sem finna má á land­inu. Hér eru tíu góð tjald­svæði sem við höldum sér­stak­lega upp á og nokkur góð ráð sem vert er að hafa í huga áður en lagt er af stað.

Öllu tjaldað til

Texti / Folda Guð­laugs­dóttir og Nanna Teits­dóttir

Básar í Þórsmörk
Þórsmörk er ein helsta nátt­úruperla Íslands og tjald­stæðið í Básum fal­legt og skjól­sælt. Göngu­leið­irnar um svæðið eru á færi flestra og góð aðstaða fyrir tjald­gesti.

Þakgil
Í Þakgili er stór­brotið lands­lag en tjald­stæðið er stað­sett við græn fjöll þar sem hægt er að greina ýmsar kynja­myndir. Aðstaðan er öll mjög skemmti­leg. Fjalla­geitur geta farið í skemmti­legar útsýn­is­göngur en aðrir geta farið í göngu um slétt­lendið í kring. Tjald­stæðið er um 20 km frá Vík í Mýrdal.

Skafta­fell
Í Skafta­felli er mjög góð aðstaða, þar er einnig gíf­ur­leg nátt­úru­feg­urð og Öræfa­jök­ull setur mik­inn svip á stað­inn. Hægt er að velja um ótal göngu­leiðir fyrir byrj­endur og lengra komna. Á góð­viðr­is­dögum er hægt að busla í vatn­inu við Lambhaga og eng­inn verður svik­inn af göngu­ferð að Svarta­fossi.

Atlavík
Atlavík við Lag­ar­fljót er í Hall­orms­staða­skógi. Þar er ein­stök nátt­úru­feg­urð, skemmti­legt fugla­líf og auð­velt að fara í nátt­úru­göngur um skóg­inn eða leika sér í vík­inni við að fleyta kerl­ingar.

Borg­ar­fjörður eystri
Tjald­stæðið er í bænum Bakka­gerði við Álfaborg. Svæðið er þekkt fyrir sögur af álfum og huldu­fólki en Álfaborg er sögð vera heim­ili álfa­drott­ingar Íslands, þarna leyn­ast því ýmis ævin­týri fyrir litla ferða­langa. Borg­ar­fjörður eystri er ein­stak­lega fal­legur og skartar lit­skrúð­ugum fjöllum. Sérlega gaman er að fara út að bryggj­unni til að fylgj­ast með lund­anum.

Ásbyrgi
Í Ásbyrgi er stórt tjald­svæði með góðri aðstöðu á fal­legum stað á norð­ur­svæði Vatna­jök­uls­þjóð­garðs. Stutt er í önnur nátt­úru­svæði, eins og Detti­foss, Hljóða­kletta og Hólma­tungur. Einnig er hægt að fara í stuttar fræðslu­göngur um þjóð­garð­inn með land­verði á sumrin end­ur­gjalds­laust.

Hólar í Hjalta­dal
Hólar er merkur menn­ingar- og sögu­staður og tjald­svæðið er stað­sett í Hóla­skógi þar sem hægt er að tjalda í skjól­sælum rjóðrum. Ekki er langt að keyra í sund­laug­ina á Hofsósi sem ætti að vera við­komu­staður allra sem heim­sækja þetta land­svæði, enda með fal­legri laugum lands­ins.

Rauða­sandur
Tjald­svæðið á Melanesi er á afgirtu túni sem finna má við Rauða­sand. Rauða­sandur er 10 km löng strand­lengja sem er til­valin fyrir göngut­úra og snið­ugt að taka með sér kíki til að finna sel­ina sem halda til í nágrenn­inu. Í háfjöru leyn­ast ýmsir litlir fjár­sjóðir fyrir yngri ferða­langa. Þarna er líka hægt að ganga um sögu­stað­inn Sjöundá sem Gunnar Gunn­ars­son skrif­aði svo eft­ir­minni­lega um í bók­inni Svart­fugli.

Tálkna­fjörður
Tálkna­fjörður er sjar­mer­andi bær á Vest­fjörðum þar sem finna má frá­bært tjald­stæði. Ýmsa afþr­ey­ingu má finna í nágrenn­inu, skemmti­legar göngu­leiðir, góð sund­laug er í bænum og einnig er hægt að heim­sækja Pollinn, heitu pott­ana í landi Litla-Laug­ar­lands, skammt frá bænum.

Húsafell
Ástæða er fyrir því að oft mælist hiti einna mestur á sumrin í Húsa­felli enda góð veð­ur­sæld þrátt fyrir nálægð­ina við jökul­inn. Fjöl­breytt afþrey­ing er á svæð­inu og hægt að fara í sund, strand­blak, golf og börnin geta leikið sér í leik­tækj­unum. Yfir hásum­arið er tendr­aður varð­eldur á laug­ar­dags­kvöldum.

Ekki verða kalt
Hafið í huga að ef dag­arnir eru heitir geta næt­urnar verið kaldar. Passið að hafa með föð­ur­land og hlýja sokka til að sofa í og gott getur verið að hafa buff utan um háls­inn eða á eyr­unum. Ein­angrun skiptir miklu máli, hafið dýnur í tjald­inu, góða svefn­poka, dún­úlpur og gott er að hafa aukaull­ar­teppi með­ferðis, það er ekk­ert gaman að verða kalt um miðja nótt þegar sofið er í tjaldi. Ein­angrun getur skemmst í svefn­pokum, þannig að ekki fá lán­aðan svefn­pok­ann sem pabbi ykkar fékk í ferm­ing­ar­gjöf án þess að búast við því að verða kalt.

Eldað í nátt­úr­unni
Einnota ferða­grill eru ekki góður kostur, ekki aðeins eru þau óum­hverf­is­væn og valda víða ljótum bruna­blettum á tjald­stæðum, heldur er nán­ast ómögu­legt að elda gæða­mat á slíku grilli. Hugið frekar að öðrum eld­un­ar­færum, ann­að­hvort prímus eða ferða­grilli ásamt álp­appír og eld­spýtum. Það eru mörg tjald­stæði sem bjóða upp á góða eld­un­ar­að­stöðu en það býður upp á meira frelsi og næði frá öðrum gestum að vera með sína eigin eld­un­ar­að­stöðu, þá er einnig hægt að tjalda næstum hvar sem er. Munið líka að fara var­lega með eld­færi úti í nátt­úr­unni í þeirri þurrka­tíð sem hefur verið á land­inu und­an­farið.

Ekki fórna góðum kaffi­bolla þó svo að haldið sé í úti­legu. Takið með espressókönnu og malað gæða­kaffi. Einnig er orðið vin­sælt að ferð­ast með Aer­o­press, enda létt og fyr­ir­ferða­lítil græja sem lagar gott kaffi.
Sniðugt er að taka þau krydd sem mest eru notuð á heim­il­inu með í ferð­ina. Gott er að kaupa litlar krukkur fyrir kryddin og merkja skil­merki­lega. Krukk­urnar má svo geyma í plast­boxi svo þau séu öll á sama stað.

Leirtau er gott að hafa úr plasti eða bambus, bæði er það létt­ara og brotnar ekki í ferða­lag­inu. Takið með eitt skurð­bretti og góðan hníf ásamt vasa­hníf.

Gott teppi með vatns­heldum botni tekur ekki mikið pláss í skott­inu og getur gert nest­is­stoppin mun þægi­legri og auð­veld­ara að njóta þegar sitj­and­inn helst þurr.

Hafið með­ferðis vaska­fat, upp­þvotta­sápu, upp­þvotta­bursta og viska­stykki. Þannig er auð­veld­lega hægt að raða óhreina leir­tauinu í og vaska upp ann­að­hvort í aðstöðu hjá tjald­stæð­inu eða færa sig yfir í næsta læk.

Skipulag er af hinu góða
Takið með ykkur eyrnatappa, ekki láta kvöld­vök­una í næsta tjaldi eyði­leggja góðan næt­ur­svefn.

Sniðugt er að fjár­festa í glærum plast­kössum sem rað­ast auð­veld­lega í skottið á bílnum. Hafið einn fyrir eld­hús­dót og annan fyrir þurr­vörur, þannig sést auð­veld­lega hvar allt er og minnkar umstang. Síðan er hægt að hafa einn auka­lega fyrir hlý föt og teppi ef nóg pláss er í skott­inu.

Passið að hafa með rusla­poka sem hægt er þá að losa sig við í næsta gám.

Í úti­vist­ar­búðum er hægt er að fá allt leir­tau sem þarf fyrir úti­leg­una. Meðal ann­ars gaffal, skeið og hníf í einu setti og vín­glös sem hægt er að brjóta saman. Það kemur sér vel fyrir sæl­ker­a­úti­legur.
Fyllið stóran brúsa af vatni fyrir ferða­lagið og hafið einnig með­ferðis kæli­box.

Rennilása­pokar í öllum stærðum koma sér vel fyrir ýmis­legt, eins og til dæmis undir hnífa­pör. Tilvalið er að hafa eld­spýtur og vasa­hníf saman í einum og þeir eru líka frá­bærir fyrir snyrti­dót. Í raun koma þeir sér vel fyrir allt, dótið blotnar ekki.

Sjúkra­kassi er nauð­syn­legur og ætti alltaf að vera með­ferðis í úti­leg­una enda getur allt gerst. Hægt er að kaupa til­búna sjúkra­kassa sem búið er að fylla á í apó­tekum. Hæl­særis­plástar, bruna­krem og sól­ar­vörn ættu líka að fylgja með í ferða­lagið.

Smá­at­riði skipta máli
Þvottaklemmur koma sér vel þegar hengja þarf viska­stykki eða blaut föt til þerris. Gott er að nota böndin á tjald­inu til að hengja upp, einnig er snið­ugt að fjár­festa í viska­stykki og þunnu hand­klæði sem þornar fljótt.

Ef bíla­plássið býður upp á er gott að hafa ferða­borð og stóla með þar sem bekkja­pláss er ekki alltaf nóg fyrir alla á tjald­stæðum.

Höf­uð­ljós koma sér alltaf vel, bæði þegar rata þarf á bað­her­bergi um miðja nótt eða lesa inni í tjaldi. Hægt er að dreifa birt­unni með því að spenna höf­uð­ljósið á stóran brúsa af vatni og láta ljósið skína inn í brús­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni