Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Þar sem ólíkir menningarheimar mætast

Sig­ur­björg Páls­dóttir inn­an­húss­arki­tekt starf­aði hjá IKEA í mörg herr­ans ár og ekki bara á Íslandi heldur víða um heim­inn. Sig­ur­björg býr núna í Leuven í Belgíu ásamt manni sínum Peter Krum­hardt sem er danskur arki­tekt. Þau hafa búið sér og sínum fal­legt og fram­andi heim­ili sem lit­ast af flakki þeirra um heim­inn. Við heyrðum í Sig­ur­björgu og spurðum hana út í lífið í Belgíu og fyr­ir­tækið Pals&Co sem hún stofn­aði eftir að hafa búið í Jórdaníu í nokkur ár og heill­ast af hand­verk­inu, menn­ing­unni og fólk­inu þar í landi.

Þar sem ólíkir menningarheimar mætast

,,Ég flutti til Belgíu sum­arið 2014, minn elsku­legi maður, Peter, hafði þá unnið hjá IKEA í Belgíu í sjö mán­uði eftir margra ára starf í Danmörku og Bret­landi. Ég var þarna búin að vera ein í Jórdaníu og Kúveit að setja upp nýjar IKEA-versl­anir og þjálfa nýtt starfs­fólk í næstum því þrjú ár og mig lang­aði að fara heim eftir dásam­legan tíma í Mið-Aust­ur­löndum,“ segir hún.

Hvað var það við þessa íbúð í Leuven sem heill­aði þig? ,,Ég skoð­aði hana á Netinu þegar ég var í Jórdaníu, skipu­lagið og loft­hæðin heill­aði mig strax og þessi grófi verk­smiðju­stíll, glugg­a­rnir eru líka svo fal­legir og svo fannst mér heill­andi að vera nán­ast mið­svæðis í svona gam­alli, fal­legri borg. Húsið er í grunn­inn gömul vindla­verk­smiðja frá 1875 og voru það Jespers-Eyers, arki­tektar sem end­ur­hönn­uðu húsið,“ segir Sig­ur­björg.

Hönnun frá ólíkum löndum
Hvernig myndir þú lýsa stílnum á heim­il­inu? „Þetta er bara okkar stíll. Við erum með hönnun og hluti frá ólíkum löndum og frá mis­mun­andi tímum, í alls konar litum frá ólíkum stöðum sem við höfum ferð­ast til og búið í. Ég myndi segja að á heim­ili okkar hér í Leuven teng­ist margir menn­ing­ar­heimar í ólíkri hönnun og hand­verki sem koma alls staðar að úr heim­inum nán­ast. Getum sagt að Ísland og Danmörk mæti Mið- Aust­ur­löndum. Í hill­unni okkar erum við til að mynda með Arne Jacobsen og antík frá Jórdaníu og margt fal­legt sem ég hef keypt á mörk­uðum. En samt er líka stór hluti af okkar heim­ili hönnun manns­ins míns, Peter Krum­hardt, eins og til dæmis borð­stofu­borðið, stólar, vinnu­borðið og bar­stól­arnir sem eru fram­leiðsla Pals&Co. Teppin og púð­arnir á heim­il­inu eru einnig hönnun Pals&Co og flest annað er ann­að­hvort klass­ísk hönnun eða hlutir sem við höfum fundið og heill­ast af á til dæmis mörk­uðum.“

Stofnaði eigið hönn­un­ar­fyr­ir­tæki
Þegar Sig­ur­björg kom til baka til Íslands eftir nám vann hún hjá IKEA sem útstill­ing­ar­stjóri í sex ár. „Það var dásam­legur tími. Svo vann ég hjá IKEA í mörgum öðrum löndum og það var ótrú­leg reynsla að vera hluti af þessu flotta fyr­ir­tæki, ég elskaði hverja stund í vinn­unni og fékk flott verk­efni sem yfir­maður og starf­aði hjá þeim í 26 ár. Ég get ekki ímyndað mér betri skóla en IKEA.“

Sig­ur­björg er núna með sitt eigið fyr­ir­tæki ásamt manni sínum. Hvernig kom það til að þið stofn­uðuð Pals&Co? ,,Þegar ég opn­aði IKEA í Amman árið 2014, hafði ég þjálfað og hitt svo flott ungt fólk í Jórdaníu og þarna próf­aði ég að búa í sam­fé­lagi sem er svo ólíkt því sem ég var vön og það var oft skrítið og erfitt en ég naut þess líka og lærði mikið. Mig lang­aði að flytja nær fólk­inu mínu sem býr á Íslandi og í London en fannst samt erfitt að skilja alveg við vini mína í Jórdaníu. Ég ákvað því á þessum tíma­punkti að hætta hjá IKEA og stofna eigið fyr­ir­tæki og þá hafði ég frelsi og gat áfram átt í sam­skiptum við hæfi­leik­a­ríku vini mína í Jórdaníu og komið hand­verki þeirra og hönnun áfram í gegnum mitt fyr­ir­tæki. Mín hug­mynda­fræði er svo­lítið að tengja ólíka menn­ing­ar­heima og í fram­tíð­inni langar mig að vinna miklu meira með íslenskum hönn­uðum því það er svo margt frá­bært í gangi hjá þeim og á Íslandi,“ svarar hún bros­andi.

„Það er merki­legt hvað góð hönnun getur hjálpað okkur við að eiga betra líf. Hönnun snýst ekki bara um hvernig þú gerir heim­ilið fal­legra, það snýst líka svo mikið um það hvernig þú gerir líf þitt auð­veld­ara,“ bætir hún við að lokum.

Ljós­myndir / Johan Vancutsem

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni