Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kviknaði á ljósaperu á heiðinni

Líkt og mörg frum­kvöðla­fyr­ir­tæki fædd­ist hug­myndin að Feed the Viking við óvenju­legar aðstæður. Fyr­ir­tækið fram­leiðir hollt og prótín­ríkt snakk úr þurrk­uðu kjöti og fiski, best þekktu undir enska heit­inu Jerky, en það nýtur mik­illa vin­sælda víða um heim.

Kviknaði á ljósaperu á heiðinni

Stofn­andi fyr­ir­tæk­is­ins, Friðrik Guð­jóns­son var í útkalli með Hjálp­ar­sveit skáta í Garðabæ sum­arið 2016, þegar hann fékk en hann hefur verið félagi í sveit­inni í rúm­lega ára­tug. Hann seg­ist alltaf hafa verið með banda­rískt Beef Jerky með sér í ferðum og útköllum vegna þess hve fljót, hand­hæga og góða orku slík fæða gefi. „Í þessu til­tekna útkalli höfðu tveir aðilar örmagn­ast við göngu upp á Hell­is­heiði í vondu veðri. Eftir að hafa gefið þeim Beef Jerky og vatn fengu þeir nægi­lega orku til að labba niður af sjálfs­dáðum og í kjöl­farið  kvikn­aði á ljósa­peru í koll­inum á mér og hug­mynd að eigin fram­leiðslu. Nú fá auð­vitað allir sem ég hitti á fjöllum íslenskt Jerky til að bragða á.“

Náið samstarf

Fyrsta varan var Fish Jerky sem kom á markað í ágúst 2017 í sam­starfi við Skinney-Þinganes. Tæpu ári síðar bætt­ist Lamb Jerky við en við­tök­urnar við báðum vör­unum hafa verið algjör­lega frá­bærar að hans sögn. „Í jan­úar á síð­asta ári kom Ari Karlsson inn í rekst­ur­inn með mér eftir að hafa unnið með mér og Norð­lenska í þró­un­inni á Lamb Jerky-vör­unni. Við erum æsku­vinir og okkur hefur lengi dreymt um að vinna saman. Ari er mat­reiðslu­meist­ari að mennt og hefur alþjóð­lega reynslu af hinni ýmsu mat­væla­gerð sem nýt­ist svo sann­ar­lega vel hjá félag­inu. Við erum í mik­illi vöru­þróun og vorum til að mynda að bæta við Beef Jerky í byrjun apríl og kjöt­súpan bæt­ist svo við í sumar. Annars sér Ari að mestu um vöru­þróun og sölu á meðan ég er meira í rekstr­inum og erlendu sókn­inni en saman sjáum við um að pakka vör­unum og keyra út pant­an­irnar.“

Sjálfur er Friðrik við­skipta­fræð­ingur að mennt frá Háskól­anum í Reykja­vík og hefur stofnað og tekið þátt í rekstri á þremur öðrum fyr­ir­tækjum áður enn hann stofn­aði Feed the Viking.

Kjötbragðið nýtur sín

Jerkey-vör­urnar eru með sterka skírskotun í íslenskar mat­ar­hefðir að sögn Friðriks og er öllum aukefnum, svo sem sykri og salti, stillt í eins mikið hóf og mögu­legt er. „Lamb Jerky er t.d. kryddað með íslensku sjáv­ar­salti og krydd­blöndu sem amma hans Ara not­aði fyrir sunnu­dagslærið þegar hún eld­aði fyrir fjöl­skyld­una. Beef Jerky er örlítið sterk­ari enda með chili-pipar. Þó eiga báðar vör­urnar það sam­eig­in­legt að þær leyfa kjöt­bragð­inu að njóta sín. Öll fram­leiðsla okkar er úr íslensku hrá­efni og unnin hér á landi. Því er um atvinnu­skap­andi fram­leiðslu að ræða þar sem mörg eru hand­tök eru í fram­leiðslu­ferl­inu.“

Nýta hraðalinn vel

Félag­arnir segj­ast gríð­ar­lega stoltir og ánægðir með að hafa verið valdir í við­skipta­hrað­al­inn og ætla svo sann­ar­lega að nýta sér hann út í ystu æsar. „Við erum komnir vel á veg með vör­urnar okkar en þær  eru nú til sölu á öllum helstu ferða­manna­stöðum á land­inu auk þess sem þær fást einnig í vef­verslun okkar og á Amazon. Í við­skipta­hraðl­inum fáum við leið­bein­ingar og hand­leiðslu við að stækka fyr­ir­tækið okkar og sækja á ný mark­aðs­svæði með hjálp frá því frá­bæra tengsla­neti sem við erum að tengj­ast. Hingað til höfum við fyrst og fremst selt vörur okkar til erlendra ferða­manna sem sækja landið heim en einnig höfum átt í góðum við­ræðum við nokkrar inn­lendar mat­vöru­búðir og von­umst til að geta hafið sölu á vör­unum okkar til íslenskra neyt­anda núna í sumar. Stefnan er því sett enn frekar á íslenska smá­sölu­mark­að­inn en við horfum líka mikið til útflutn­ings. Við erum að fá miklu meiri og betri við­brögð við vörum okkar á Amazon en við áttum von á og höfum þær nú til sölu í Banda­ríkj­unum, Kanada, Bret­landi og Þýska­landi og bætum Ítalíu, Frakk­landi, Spáni og Mexíkó við á næstu miss­erum. Þannig að það eru mjög spenn­andi tímar fram undan hjá okkur.“

Gefandi umhverfi

Íslenska frum­kvöðlaum­hverfið er ekki nýtt fyrir Friðriki sem hefur, eins og áður segir, komið að stofnun og rekstri nokk­urra fyr­ir­tækja. „Ég er mjög hrif­inn af frum­kvöðlaum­hverf­inu hér­lendis og hef starfað í því í ára­tug. Bæði hef ég séð um rekstur á hug­myndum sem voru komnar af stað og eins stofnað fyr­ir­tæki og síðar selt það. Hug­myndin þarf að sjálf­sögðu að vera góð, það þarf að vera mark­aður fyrir hana og svo þarf að þekkja helstu gildrur og hættur sem fylgja fyr­ir­tækja­rekstri. Þetta er mjög langt frá því að vera auð­velt en þetta er gef­andi og getur verið vel þess virði þegar vel gengur.“

Stúdíó Birt­ingur í sam­starfi við Til Sjávar og Sveita.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur