Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lét alkann stjórna mér allt of lengi

Lét alkann stjórna mér allt of lengi

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni:

Þetta byrjaði allt mjög vel og sakleysislega. Ég var að koma úr sjö ára ágætis sambandi, var einstæð með eitt lítið barn í minni eigin íbúð og ágætlega stæð. Barnsfaðir minn var óvirkur alki og hafði verið edrú í nokkur ár þegar við kynntumst. Ég saknaði þess pínulítið að fá mér rauðvín og osta á fallegum kvöldum og bjór við grillið, mig langaði því ekki að ná mér í alka aftur. En þess í stað náði ég mér í bullandi alka – ómeðvitað sem alls ekki var ætlunin.

Líf mitt stjórn­að­ist af alk­anum og hans skap­gerð­ar­brestum, það tók mig nítján löng ár að sjá það og hafa styrk­inn til þess að stíga út úr því sam­bandi. Þegar við kynnt­umst var ég ekki á leið­inni í sam­band, hann náði hins vegar að heilla mig upp úr skónum enda mik­ill sjar­mör. Við kynnt­umst í júní og hann var fluttur inn til mín í sept­em­ber.

Þegar við byrj­uðum að deita sagði hann mér að hann ætti þessa fínu íbúð í Laug­ar­dalnum, ég kom oft þangað í þessa glæsi­lega inn­rétt­uðu og fal­legu íbúð, en í ljós kom að hann átti eig­in­lega bara fötin sín í poka og leigði þessa íbúð með öllu inn­búi. Ég vissi það ekki fyrr en rétt fyrir jólin og ofan á þetta skuld­aði hann hell­ing í með­lög og skatta. Fyrir mig sem var með allt mitt á hreinu, var þetta fyrsta sjokkið.

Hann átti þrjú börn fyrir með tveimur konum, önnur mamman vann vakta­vinnu og við fengum því börnin til okkar eftir því hvernig hennar vaktir voru og það fannst öllum bara í lagi. Ég fuss­aði oft og iðu­lega yfir þessu því það var engin regla, ég þótti þá mjög frek, til­lits­laus og stjórn­söm og ótrú­lega leið­in­leg, en það skal tekið fram og ítrekað að þarna var hann fluttur inn á mig, inn í mína íbúð.

Tveimur árum eftir við byrjum saman fór hann í sína fyrstu með­ferð. Við höfðum reynt að tala við prest en mað­ur­inn mætti fullur á bílnum og sagði bara við prest­inn að ég væri stór­skrítin – ég væri geð­veik, en það orð not­aði hann svo oft um mig að undir það síð­asta var ég farin að trúa því að það væri eitt­hvað mikið að mér. Hann hélt því fram þarna fyrir framan prest­inn að það væri ekk­ert að honum en hún (prest­ur­inn) sagði við mig eftir að hann var far­inn að ég væri mun betur sett ein. Mér fannst hún frekar lélegur ráð­gjafi, þetta var ekki það sem ég vildi heyra.

Ein í fóstureyðingu

Nokkrum dögum seinna komst ég að því að ég væri ólétt og ákvað að fara í fóst­ur­eyð­ingu því ég sá ekki fram­tíð­ina með þessum drykkju­hrút og hann hafði þá látið sig hverfa í nokkrar vikur. Eftir að hafa talað við félags­ráð­gjafa ákvað ég að fara í þessa aðgerð. Ég reyndi stöðugt að hringja í hann en hann svar­aði ekki, sam­eig­in­legur vinur okkar reyndi líka að ná í hann. Ég man þegar vinur okkar hringdi í mig og sagði mér að hann næði ekki í hann, þá lá ég inni á kvenna­gangi að fara í þessa hræði­legu aðgerð og grét sárum gráti og hef gert alla tíð síðan.

Ég bara gat ekki hugsað mér að eiga fram­tíð með þessum manni.

Ef ég hefði rætt þetta við ein­hvern hefði ég lík­lega ekki látið eyða fóstr­inu, ég hins vegar skamm­að­ist mín svo mikið fyrir þessa stöðu og að láta fara svona með mig, ég bara gat ekki hugsað mér að eiga fram­tíð með þessum manni. Þarna hafði ég tæki­færi á að fara frá honum en hann skellti sér í með­ferð og ég tók við honum aftur. Síðar eign­uð­umst við saman tvö börn.

Hann fann sér enda­laust verk­efni úti á landi og ástæðan var ein­föld, hann gat þá drukkið í friði. Hann gat haldið sér edrú í nokkrar vikur eða mán­uði, en fann svo leið til að kom­ast burtu en það sorg­lega við þetta allt var að ég vissi aldrei neitt, fyrir mér var hann hættur, ég var svo ótrú­lega græn. Drykkju og dópi fylgja oft konur og kvenna­far hjá körlum og auð­vitað var hann með ótal konum. Ég komst að sumu af hans fram­hjá­haldi en frétti af öðru löngu síðar.

Við byggðum upp fyr­ir­tæki úti á landi og hann var edrú í tvö ár meðan á því stóð, algjört met. Um leið og opnað var tók hann tapp­ann úr flösk­unni og drakk vel það sum­arið. Ég kom þangað um helgar allt sum­arið eins og sjúkra­liði og reyndi að bjarga því sem bjargað varð. Á sama tíma var hann í sam­skiptum við hinar og þessar konur og var með margar í tak­inu. Þetta end­aði í enn einni með­ferð­inni en eftir hana leigði hann sér íbúð því ég ætl­aði ekki að taka við honum aftur.

Samt vorum við alltaf að hitt­ast, rákum saman þetta fyr­ir­tæki, sváfum saman og gerðum allt saman. Ég vissi hins vegar ekki að í með­ferð­inni hafði hann hitt konu sem var reyndar gift og þau áttu í sam­bandi. Ég frétti þetta þegar mað­ur­inn hennar hringdi í mig og krafð­ist þess að ég borg­aði til baka eitt­hvað sem kona hans hafði borgað fyrir minn mann.

Ný kærasta og hjartaáfall

Þá ákvað ég að stíga skrefið og setti húsið á sölu – það seld­ist, en allan tím­ann var hann í brenni­víns- og dóp­mar­íner­ingu en kom þegar við fluttum og hjálp­aði okkur að tæma. Hann tók fyr­ir­tækið og ég keypti mér litla íbúð. Hann hjálp­aði mér og börn­unum að park­ett­leggja og koma okkur fyrir en var fljótur að drekka frá sér það sem hann fékk í sinn hlut.

Það tók mig langan tíma að kom­ast yfir þetta allt saman og ég veit ekki enn í dag í hvaða sjálf­spín­ing­ar­heimi ég var stödd. Hvernig getur nokkur kona látið fara svona með sig?

Á þessum tíma var ég komin á ystu brún en reyndi hvað ég gat að hlúa að mér og mínum og koma okkur á fæt­urna aftur.

Eftir sem áður vorum við alltaf saman um jól og ára­mót. Eitt sinn var ég stödd í Hagkaup þegar ég fékk tölvu­póst sem ég las í sím­anum: „Ég vil byrja nýtt ár með hreint borð og langar því að segja þér að ég og X höfum búið saman síðan í sept­em­ber.“ Ég fékk algjört áfall … þetta voru skila­boð frá konu sem hafði búið með honum í marga mán­uði, allir vissu það en eng­inn sagði neitt við mig! Þetta var á gaml­árs­dag og dag­inn eftir vorum við búin að bjóða til veislu, ég varð því að halda haus.

Hann full­yrti hins vegar aðspurður að þessi kona væri geð­veik. Hún væri bara að vinna fyrir okkur og það væri ekk­ert á milli þeirra. Skömmu síðar gerði hann hins vegar sam­band þeirra opin­bert. Á þessum tíma var ég komin á ystu brún en reyndi hvað ég gat að hlúa að mér og mínum og koma okkur á fæt­urna aftur. Þetta hafði gengið allt of lengi og eng­inn vissi hvort við vorum saman eða ekki, við vissum það varla sjálf – reyndar hafði ég alltaf litið á okkur sem par í fjar­búð því við sváfum saman og hann átti sama­stað hjá okkur.

Síðan gerð­ist það í apríl að hann hætti skyndi­lega að drekka og ég sá mik­inn mun á honum.

Hann og þessi nýja fóru að búa og hann byrj­aði að biðja mig um hitt og þetta sem hann vant­aði. Honum fannst sjálf­sagt að koma inn á mitt nýja heim­ili og taka það sem hann vant­aði, stundum lang­aði mig að drepa hann. Þetta nýja sam­band hans einkend­ist af neyslu, hún var að bíða eftir bótum og þau minntu mig á „white trash“-lið. En síðan gerð­ist það í apríl að hann hætti skyndi­lega að drekka og ég sá mik­inn mun á honum. Hann sagði mér í trún­aði í byrjun maí að hann hafi nán­ast farið í hjarta­stopp vegna amfetamínn­eyslu, sýndi mér myndir af sér á sjúkra­börum en kærastan hafði komið honum til bjargar og hringt í Neyð­ar­lín­una.

Hafði loks styrkinn til að loka

Ég fann að ég var henni þakk­lát en hugs­aði með mér að eftir þetta ætti hann aldrei eftir að byrja að drekka aftur, þetta væri komið. Ég bauð honum því að flytja inn til okkar aftur sem hann gerði á met­tíma, auð­vitað varð kærastan hans brjáluð, svo brjáluð að hún stal öllu inn­bú­inu hans –  hún þótt­ist ætla að kaupa það af honum þegar hún fengi bæt­urnar. Þessi nýja sam­búð okkar gekk í eitt ár en þá fór ég í helg­ar­ferð með æsku­vin­konum mínum. Þegar ég kom heim var hann fall­inn. Hann þrætti fyrir það í fyrstu, en ég var orðin eins og hass­hundur, ég vissi það á undan honum þegar fallið væri í vændum. Daginn eftir fékk ég SMS: „Kem ekki heim í kvöld“ og hann hefur ekki fengið að koma heim síðan.

Eftir skiln­að­inn fannst mér ég hafa verið sjálfselsk í öll þessi ár, ég hafði ekki hugsað um hag barn­anna.

Loksins gat ég staðið með sjálfri mér og sagt skilið við hann, eftir öll þessi ár og allt þetta rugl. Ég lít ekki á mig sem heimska konu eða fórn­ar­lamb fyrir að hafa látið fara svona með mig. Ég ætl­aði og vildi að þetta gengi. Ég „elskaði“ þennan edrú mann og hann var minn besti vinur. Þegar ég loks­ins lok­aði á hann varð ég að sætta mig við það sem ég hafði misst og það var lík­lega það erf­ið­asta. Ég set elskaði innan gæsalappa því eftir á sá ég og veit að þetta var ekki ást, þetta var ákveðin stjórn­semi … ég vildi að þetta gengi upp og að þetta yrði mað­ur­inn minn.

Eftir skiln­að­inn fannst mér ég hafa verið sjálfselsk í öll þessi ár, ég hafði ekki hugsað um hag barn­anna. Ég ótt­að­ist að þau hefðu orðið fyrir skaða en yngsta barnið þekkir ekk­ert nema rugl­aða fjar­búð for­eldra sinna. Sárast er þó þegar hann missir af boðum vegna drykkju missa börnin okkar af þeim líka því mér er ekki boðið til föð­ur­fjöl­skyld­unnar með þeim. Ég hef reynt að hlúa eins vel að þeim und­an­farið ár og ég get og held að mér hafi tek­ist það nokkuð vel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una