Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Af hverju er barninu ekki bjargað?

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni.

Af hverju er barninu ekki bjargað?

Hvernig má það vera að móðir sem hefur fengið á sig ákærur og margar ábend­ingar frá félags­mála­yf­ir­völdum síð­ast­liðin sjö ár sé enn með for­sjá yfir barni sem bæði leik­skóli, skóli og barna­vernd­ar­nefnd hafa bent á að sé van­rækt? Spurn­ingu sem þess­ari er vand­svarað en lang­lund­ar­geð þeirra er gæta eiga að rétt­indum barna virð­ist ótrú­legt og erfitt að sjá að þar sé hags­muna barns­ins gætt í hvít­vetna.

Ég kynnt­ist aðstæðum þessa barns þegar ég varð vitni að mörgu af því er henti það í gegnum starf mitt. Ég var í hópi þeirra er lét vita af því er ég hafði séð og hef reynt að fylgj­ast með og aðstoða barnið eftir fremsta megni. Það er þó lítið sem maður getur gert þegar móð­irin bregst ókvæða við öllum leið­bein­ingum og til­boðum um aðstoð. Hún hefur engan áhuga á að tala við neinn og telur sig ekki þurfa hjálp. Að hennar mati eru afskipti ann­arra það eina sem að er í hennar lífi.

Barnið sem um ræðir sýnir aug­ljós merki kvíða og þroska­skerð­ingar. Það mætir ekki í skól­ann og þá sjaldan að það kemur er það nest­is­laust, ekki í við­eig­andi úti­fatn­aði og iðu­lega illa hirt. Aldrei er barnið látið læra heima og það fær ekki að fara í afmæli bekkj­ar­systk­ina sinna. Hér er um litla stúlku að ræða og hún er oft hvorki þrifin né klædd í fatnað er hæfir veðri, aðstæðum og lík­ams­vexti. Til er í dæm­inu að hún sé í fötum sem eru fimm núm­erum of lítil og skóm sem hún vart getur troðið sér í lengur. Hún er iðu­lega illa lykt­andi og hárið í mik­illi flækju.

Vegna neysl­unnar er móð­irin oft fjar­ver­andi frá heim­il­inu bæði á nóttu sem degi en þær mæðgur eiga ekk­ert öruggt húsa­skjól.

Móðir þessa barns er í neyslu. Veru­leika­skyn hennar er veru­lega skerrt og hún hefur slegið fram ýmsum full­yrð­ingum sem reyn­ast ekki eiga við nein rök að styðj­ast m.a. kvaðst vera í vinnu hjá fyr­ir­tæki er kann­ast ekki við að hafa nokkru sinni ráðið hana. Hún telur sig eiga inni pen­inga víða þótt engin fótur finn­ist fyrir því. Vegna neysl­unnar er móð­irin oft fjar­ver­andi frá heim­il­inu bæði á nóttu sem degi en þær mæðgur eiga ekk­ert öruggt húsa­skjól. Þegar þær fá hús­næði er leigusal­inn fljótur að átta sig á að hér er um óáreið­an­legan leigj­anda að ræða og segja upp samn­ingnum. Oft er litla stúlkan því látin hýr­ast eft­ir­lits­laus í litlu rými í hús­næði sem ekki ætti að vera í útleigu. Hér er um að ræða hurð­ar­laus háa­loft, glugga­lausar kompur þar sem hverjir sem er geta auð­veld­lega gengið inn og út. Í slíkum aðstæðum situr lítið barn sem á enga vini á fleti án nokkurar afþrey­ingar tímunum saman. Það hefur ekki aðgang að síma eða nokkru öðru örygg­is­tæki.

Endalausir sénsar

Móðirin þiggur atvinnu­leys­is­bætur en starfar á krá hverja nótt meðan barnið er eitt og eft­ir­lits­laust heima. Hún neytir eit­ur­lyfja dag­lega, í við­ur­vist barns og mætir ekki á boð­aða fundi barna­vernd­ar­nefndar. Þrátt fyrir allt þetta og að vel­vilj­aðir hafa margoft sent til­kynn­ingar til barna­vernd­ar­nefndar hefur móð­irin enn for­sjá barns­ins. Stúlkan hefur fund­ist ein og umkomu­laus á umferð­ar­eyju eftir klukkan átta að kvöldi. Þá hafði hún lagt af stað í leit að félags­skap og aðstoð eftir að hafa verið ein heima í margar klukku­stundir. Móðir svar­aði ekki í síma fyrr en nokkrum klukku­stundum eftir að barnið hafði verið hirt upp af göt­unni og brást þá við með líf­láts­hót­unum gagn­vart þeim er tóku það inn.

Til eru umsagnir leik­skóla­kenn­ara frá því barnið er á fyrsta ári er vitna um van­rækslu. Sjö árum síðar er staðan sú sama og móð­ur­inni gefin enda­laus tæki­færi til að bæta sig. Móðir fyrst, barnið svo virð­ist vera mottó yfir­valda í þessu til­viki – en spurn­ingin er sú, er barnið ekki búið að þola nóg? Ég og nokkrir aðilar óskyldir barn­inu höfum orðið vitni að þessu öllu og leit­ast við eftir fremsta megni að bæta úr með hjálp yfir­valda en við erum afl­laus og megum í raun ekk­ert gera. Móðirin er mjög mótsnúin öllum er reyna að skipta sér á nokkurn hátt af aðstæðum þeirra mæðgna og hefur ráð­ist á fólk með sví­virð­ingum, hót­unum og jafn­vel ofbeldi. Þetta vita barna­vernd­ar­yf­ir­völd.

Þegar stúlkan var þriggja ára gömul eign­að­ist hún stjúp­móður sem hóf að berj­ast fyrir að fá for­sjá hennar. Sú bar­átta stendur enn og orð hennar og rök virð­ast lít­inn hljóm­grunn fá í kerf­inu. Hún gekkst fyrir því að koma stúlkunni í málörv­un­ar­tíma og sál­fræði­mat en móð­irin stöðv­aði umsvifa­laust þá vinnu. Í stað þess að gleðj­ast yfir að barnið fengi hjálp sner­ist móð­irin önd­verð gegn öllu og sak­aði stjúp­móð­ur­ina um for­dóma og hatur. Barnið hafði aldrei farið til tann­læknis þegar stjúp­móð­irin kom inn í líf þess og hefði lík­lega aldrei farið ef ekki væri fyrir hana. Fyrstu jólin upp­lifði hún þriggja ára gömul á heim­ili föður síns og stjúpu og haldið var upp á afmælið hennar í fyrsta sinn það ár líka. Síðan hafa þau haldið henni veislu ár hvert en þurft að standa í alls konar stríði til að geta komið því við.

Stöðugleiki á heimili föðursins

Faðirinn á heim­ili, öruggt húsa­skjól. Þar eru tveir aðilar með fastar tekjur. Meðan hún dvelur þar fer hún í skól­ann, er þvegin, vel nærð og klædd eftir aðstæðum í föt sem passa. Hún býr þar við almennt öryggi og þarf ekki að ótt­ast óvæntar upp­á­komur eða vera skilin eftir. Ekkert af þessu er nóg. Réttur móð­ur­innar er öllu öðru yfir­sterk­ari og ekki kemur til greina að svipta hana for­sjá barns­ins. Ég hef leit­ast við að leggja mitt lóð á vog­ar­skál­arnar til að hafa áhrif á barna­vernd­ar­yf­ir­völd en hef upp­lifað að ekki sé á mig hlustað. Mér finnst eins og vitn­is­burður minn, sem þó er óháður aðili og alls óskyld barn­inu, sé ekki met­inn trú­verð­ugur. Þegar ég hef talað við full­trúa í félags­þjón­ust­unni situr það fólk þög­ult og þakkar mér síðan fyrir og vísar mér á dyr.

Það er sama hvernig er talað til hennar og reynt að brydda upp á þeim mál­efnum er þarf að ræða, hún stekkur upp á nef sér og ryður úr sér ókvæð­is­orðum.

Mér finnst mjög alvar­legt að barn sem býr við þroska­skerð­ingu fái ekki aðstoð við hæfi. Það er van­ræksla í sjálfu sér af hálfu for­eldris að láta ekki greina slíkt hjá barn­inu sínu og afla sér upp­lýs­inga um hvernig hægt sé að koma til móts við þarfir þess. Móðirin hefur upp­lýs­ingar um að fag­fólk telji að þörf sé á að skoða barnið og setja það í grein­ing­ar­ferli. Hún hefur samt sem áður ekki pantað tíma og ekki sinnt beiðnum um að gera það. Henni virð­ist sér­lega upp­sigað við öll yfir­völd og vera ófær um að vinna með öðrum. Sam­skipti við hana ein­kenn­ast ævin­lega af upp­þotum. Það er sama hvernig er talað til hennar og reynt að brydda upp á þeim mál­efnum er þarf að ræða, hún stekkur upp á nef sér og ryður úr sér ókvæð­is­orðum.

Faðirinn er hæg­látur og til baka og þegar for­eldr­arnir eru kölluð saman á fund hefur hann sig aldrei í frammi. Hann virð­ist lít­inn bar­áttu­vilja hafa þegar kemur að því að takast á við barns­móður sína en er allur að vilja gerður að vinna með fag­mönnum. Stjúp­móð­irin hefur reynt að standa upp í hár­inu á móð­ur­inni og beita sér af alefli fyrir hönd barns­ins en ein­göngu upp­skorið reiði, hót­anir og yfir­gang fyrir við­leitni sína. Að mínu mati er ekki hægt að hjálpa þessu barni fyrr en það hefur verið tekið af móður sinni þar sem hún bein­línis stendur í vegi fyrir þroska þess og vel­ferð.

Barnavernd í molum

Eftir að hafa fylgst með þessu máli er ég sann­færð um að barna­vernd á Íslandi er í molum. Starfs­fólk er of fátt, eft­ir­lit of lítið og kerfið allt svifa­seint. Að auki finnst mér of oft verið að reyna að vinna með fólki sem ekki sýnir neinn sam­starfsvilja. Það þarf að grípa inn í fyrr. Barnið á að njóta vafans og þá eink­an­lega barn með sér­þarfir. Við erum barn­vænt sam­fé­lag og Íslend­ingar almennt elska börn. Sú við­leitni að búa vel að yngstu ald­urs­hóp­unum sést vel á lög­gjöf­inni og því umhverfi sem við búum honum. En alltaf má gera betur og þónokkuð vantar á til að við getum talist með fremstu þjóðum á þessu sviði. Eitt af því er þessi gríð­ar­lega sterki réttur móður umfram föður. Þegar þörf er á afskiptum ætti ávallt að meta for­eldrarna hlut­laust og veita for­sjánna þeim er betur er í stakk búinn til að veita barn­inu gott heim­ili. Þá skiptir engu máli hvors kyns það for­eldri er.

Stöð­ug­leiki er ein­stak­lega mik­il­vægur í lífi ungra barna. Það þarf að tryggja þeim góðan aðbúnað og umönnun. Með því að bregð­ast við strax og finna leið er tryggir þetta er ekki verið að ráð­ast á eða úti­loka for­eldri í vanda úr lífi barns­ins síns. Þvert á móti er verið að gefa því tæki­færi til að end­ur­skoða það sem miður hefur farið og byggja sig upp án íþyngj­andi ábyrgðar. Sýni for­eldri vilja og við­leitni er alltaf hægt að end­ur­skoða ákvarð­anir og gefa því tæki­færi að nýju. Enginn hefur gott af að kom­ast enda­laust upp með að hegða sér á óæski­legan og skað­legan hátt.

Uppfært: Vikan hefur fengið þær upp­lýs­ingar að búið sé að bregð­ast við ástand­inu og er barnið komið í öruggt umhverfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu