Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Í dag vel ég að telja blessanir en ekki böl“

Guðrún Birna le Sage de Fontenay segir það dul­búna gæfu að alast upp við alkó­hól­isma en það fékk hana til að leita inn á við og heila þá brotnu sjálfs­mynd sem hún bjó lengi við.

„Í dag vel ég að telja blessanir en ekki böl“

Hún byggði sig upp eftir and­legt hrun vegna álags og lét æsku­drauma ræt­ast en í dag tekur hún við­töl við fyr­ir­myndir sínar á Ahamoment.is og miðlar af reynslu sinni á nám­skeiðum tengdum and­legri heilsu og upp­eldi.

„Það má segja að ég sé blanda af borg­ar­barni og sveita­stelpu,“ segir hún aðspurð um æsku­árin. „Ég er fædd og upp­alin í Efra-Breið­holti en á sterkar rætur í sveit. For­eldrar mínir eru bæði fædd og upp­alin á sveita­bæjum á Suð­ur­landi og því var ég nán­ast um hverja helgi og öll sumur í sveit­inni hjá ömmum mínum og öfum. Eitt það dýr­mætasta sem ég tek með mér úr æsku minni er sú djúpa teng­ing við nátt­úru og dýr sem ég fékk eftir veru mína í sveit­inni, ásamt mik­illi sam­veru fjöl­skyld­unnar.

Ég var mjög opin sem barn en hvarf svo inn í sjálfa mig og lærði að vera Pollý­anna sem kunni að hlýða.

Ég er alþýðu­stelpa sem ólst upp við fjár­hagskröggur í 111 Reykja­vík, flutti svo í Set­bergið, því næst í Hollywood-hæðir Hafn­ar­fjarðar í 10. bekk og fór þaðan í Verzló til að leika og syngja. Fim­leikar, söngur og leikur áttu hug minn allan í æsku. Ég var mjög opin sem barn en hvarf svo inn í sjálfa mig og lærði að vera Pollý­anna sem kunni að hlýða, vera stillt og góð og standa mína plikt,“ segir hún og brosir út í annað.

Korter í kulnun

Hún vann yfir sig og álag setti sitt strik í reikn­ing­inn, það var stutt í algert þrot. „Ég hætti eig­in­lega sökum þess að ég var korter í kulnun og var að slig­ast undan hrunskuldum. Ég var í yfir 200% vinnu, á RÚV og að sjá um bók­hald fyrir fyr­ir­tæki, var í hljóm­sveit, að takast á við veik­indi í fjöl­skyldu og erf­iðan skilnað for­eldra. Ég hætti því á RÚV án þess að hafa reynt almenni­lega við æsku­draum­inn, að vera spyrill og miðla, fjalla um og lyfta upp öllu því góða í sam­fé­lag­inu okkar.

Ég hætti því á RÚV án þess að hafa reynt almenni­lega við æsku­draum­inn.

En eftir stóð bók­haldið, ágæt­lega launað starf sem krafð­ist ekki mik­ils af mér, sem var eitt­hvað sem ég veru­lega þurfti á að halda til að ná and­legu og lík­am­legu jafn­vægi á ný eftir að hafa gengið fram af mér með álagi. Svo ílengd­ist ég í því starfi enda hent­aði það sveigj­an­lega starf vel eftir að ég fann ást­ina í lífi mínu og rað­aði niður tveimur börnum bak í bak, gerði upp íbúð og hús með unnusta mínum.“

En hug­sjóna­mann­eskjan sem hafði alla tíð valið sér starf með til­gang og göf­ugt mark­mið í huga – þjálfun, kennslu, umönnun, félags­störf, fanga­vörslu, vinnu með fólki með fötlun og almennt eitt­hvað sem snertir á mennsk­unni og sam­skiptum – var orðin væg­ast sagt eirð­ar­laus í bók­halds­starfi, þrátt fyrir annir í einka­líf­inu.

Guðrún Birna seg­ist hafa verið and­lega þenkj­andi alla tíð og leit­andi frá því hún man eftir sér.

„Ætli dul­búna gæfan mín hafi ekki verið að alast upp við alkó­hól­isma og gera mér þess vegna snemma grein fyrir því að ég kom út í lífið með skökk við­horf. Það varð til þess að ég leit­aði mér hjálpar og leit­aði lausna, leit inn á við og rækt­aði and­ann og geðið. En þetta var löng leið því ég vissi ekki hvert ég átti að leita og hef því prófað ótal­margt. Ég var strax sem barn mjög áhuga­söm um öll trú­ar­brögð, sökkti mér svo niður í stjörnu­speki og dul­speki. Síðan fór ég að lesa mér til um alkó­hól­isma og með­virkni á ung­lings­ár­unum og tók þann leið­ar­vísi og fór að leika ómeð­virka mann­eskju – sem gerði mig enn með­virk­ari en áður.

Ætli dul­búna gæfan mín hafi ekki verið að alast upp við alkó­hól­isma og gera mér þess vegna snemma grein fyrir því að ég kom út í lífið með skökk við­horf.

Síðan fór ég að grúska og læra um sál­fræði, félags­fræði og félags­ráð­gjöf. Las ófáar sjálfs­hjálp­ar­bækur og fór þaðan í spír­it­isma og núvit­und. Lærði og stund­aði hug­leiðslu úr ýmsum áttum og fór að stunda jóga. Fór í 12 spora sam­tök, lærði mark­þjálfun, hitti ráð­gjafa, sál­fræð­inga, geð­lækna og svo gæti ég lengi talið. En eftir alla þessa leit rambaði ég á Gló motion, heil­rækt­ar­kenn­ara­nám hjá Guðna í Ropeyoga-setr­inu. En Guðna tekst í heim­speki sinni og bókum að flétta saman gam­alli og nýrri speki og töfra hana fram með djúpum skiln­ingi á íslenskri tungu og mætti orð­anna. Þetta sam­einar og rifjar upp allt það besta sem ég hef lært og upp­götvað hingað til en umturnar á sama tíma öllu með nýrri auð­skil­inni nálgun. Skref­unum 7 til vel­sældar.

Hjá Guðna lærði ég að vilja mig til fulls, nákvæm­lega eins og ég er núna – hætta að hafna mér og vera þess í stað þakk­lát þegar ég gríp mig í sjálfs­nið­ur­rifi eða gagn­rýni á aðra. Þakka fyrir að sjá mig – því þá hef ég tæki­færi til að beina athygli minni annað – velja mér við­horf – velja hvert ég stefni og hvað ég rækta í mér. Það er svo merki­legt hvað við getum eytt mik­illi orku í að skamma, stjórna og sparka í okkur liggj­andi í stað þess að rétta okkur hjálp­ar­hönd – vera okkar besti vinur, sýna okkur kær­leika og umhyggju. Þegar maður elskar sig nákvæm­lega eins og maður er núna, þá heilar maður for­tíð sína og hættir að hafa áhyggur af fram­tíð­inni, því maður er full­kom­inn, það er, kom­inn til fulls í þetta augna­blik,“ segir hún af mik­illi inn­lifun.

 Föst í þrá­hyggju hug­ans

Okkur leikur for­vitni á að vita hvað sé það erf­ið­asta sem hún hefur gengið í gegnum í líf­inu. „Vá, hvað það er gaman að fá þessa spurn­ingu,“ segir hún og bætir við; „það er nefni­lega svo merki­legt að þegar maður sann­ar­lega vill sig, nákvæm­lega eins og maður er þá verður maður svo þakk­látur fyrir það sem hefur komið manni á þann stað, gert mann að þeirri mann­eskju sem maður er. Nú lít ég á allt lífið, öll tíma­bilin, mót­byr og með­byr, með nýjum augum. Ég er svo sam­mála því sem Alda Karen segir, sum tíma­bil eru til að læra af og önnur til að njóta.

Guðrúnu Birnu tókst að byggja sig upp eftir and­legt hrun vegna álags og lét æsku­drauma ræt­ast. Mynd / Hallur Karlsson

En ef ég horfi yfir far­inn veg þá fann ég fyrir mestum sárs­auka þegar ég steig út  úr æsk­unni, varð sjálf­ráða og upp­götv­aði að ég væri frjáls til að gera mitt á minn hátt. En ég var með skökk við­horf, litla sjálfs­virð­ingu og kunni ekki að gera hluti fyrir sjálfa mig, né að sinna þörfum mínum og löng­unum og kunni hvorki að setja sjálfri mér né öðrum mörk.

Ég var aldrei nóg, að mínu mati. Eins og er svo dæmi­gert fyrir upp­komið alka­barn.

Ég var með full­komn­un­ar­áráttu og „allt eða ekk­ert“-hugs­un­ar­hátt, upp­full af skömm yfir því að vera ekki betri en ég var – ég var aldrei nóg, að mínu mati. Eins og er svo dæmi­gert fyrir upp­komið alka­barn. En líka dæmi­gert fyrir marga af minni kyn­slóð, þar sem stelpum var kennt að vera hlýðnar og góðar, hlýða skip­unum og standa undir vænt­ingum, og það var ausið yfir þær hrósi fyrir að gera það sem þeim var sagt. Svo kemur maður út í lífið og á að vita hvað maður sjálfur vill? Allt í einu á maður að að vera í tengslum við sjálfan sig, óháður kröfum ann­arra og standa sig áfram í öllu upp á tíu. En lífið er kannski orðið flókn­ara og áhuga­sviðið stærra, svo reikn­ings­dæmið gengur hrein­lega ekki upp.

Það var hrein­lega ósjálf­ráður kækur að sparka í mig liggj­andi og hafna sjálfri mér öllum stundum.
Viðtalið við Guðrúnu má lesa í heild sinni í nýjasta tölu­blaði Vikunnar.

Á þessum tíma var ég föst í þrá­hyggju hug­ans, var í stans­lausu sjálfs­nið­ur­rifi og upp­lifði mik­inn kvíða og þung­lyndi. Það var hrein­lega ósjálf­ráður kækur að sparka í mig liggj­andi og hafna sjálfri mér öllum stundum. Á sama tíma var ég að hætta í fim­leikum og hafði ekki þá lík­am­legu og and­legu útrás sem íþróttir og hreyf­ing eru.

Ég leit­aði mér samt hjálpar, var hjá sál­fræð­ingi, lærði hug­ræna atferl­is­með­ferð og fleiri tól – en það var bara ekki nóg, það vant­aði þessa alls­herjar hug­ar­fars­breyt­ingu að vilja sig og beina athygl­inni að því sem ég vildi í stað þess að stara á það sem ég vildi ekki. Því lög­mál lög­mál­anna, orsök og afleið­ing, virkar þannig að það sem þú veitir athygli vex og dafnar. Í dag vel ég að telja bless­anir en ekki böl.“

Frábært við­tal við Guðrúnu Birnu er að finna í nýjasta tölu­blaði Vikunnar sem er í versl­unum núna.

Mynd / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una