Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vinkona mín gerir lítið úr mér

Vinkona mín gerir lítið úr mér

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni:

Ég tilheyri stórum vinahópi sem hefur haldið saman lengi. Fimm okkar kynntust fyrst í barnaskóla en svo bættust við kærastar, kærustur og vinir vina þar til hópurinn þéttist og varð að þeim kjarna sem nú myndar hópinn. Mér hefur alltaf liðið vel með þessu fólki eða þar til síðastliðið ár. Þá byrjaði ein úr hópnum að gera stöðugt lítið úr mér fyrir framan hina og nú finnst mér ég ekki vita hvar ég hef neinn.

Í raun byrj­aði þetta mun fyrr. Þegar ég hugsa til baka var hún alltaf að skjóta á mig en ég hló bara og svar­aði henni. Hin hlust­uðu ekki á hana og ég fann að ég hafði sterk­ari stöðu en hún innan hóps­ins. Mér hefur alltaf gengið vel bæði í skóla og vinnu en í fyrir um það bil einu og hálfu ári lenti ég í áfalli þegar mér var óvænt sagt upp vinn­unni. Þetta kom mér mjög á óvart en ástæðan sem gefin var upp var skipu­lags­breyt­ingar. Ég leit­aði mikið til minnar bestu vin­konu á þessum tíma en hún er nátengd þeirri sem hefur sýnt mér þessa leið­in­legu hegðun. Kannski var það kveikjan að þessum leið­indum.

Ég fékk aðra vinnu og náði mér smátt og smátt aftur á strik. Við hitt­umst oft og borðum saman þessi hópur minn og fljót­lega fór ég að taka eftir að í hvert skipti sem ég sagði eitt­hvað greip þessi vin­kona, Elsa, fram í ýmist til að bera á móti því sem ég sagði eða hrein­lega tal­aði yfir mig eins og ég hefði ekki sagt neitt. Ef hún sá nokkuð færi á því gerði hún grín að ein­hverju í mínu fari eða útliti mínu.

Ég svar­aði henni fáu til að byrja með en þegar þetta ágerð­ist fór ég að svara fullum hálsi. Sjaldn­ast nennti ég þó að elt­ast við leið­in­leg fram í grip hennar og barna­legar til­raunir til að gera lítið úr mér. Svo fór mér að finn­ast þau hin taka upp hennar siði.

Enginn vill taka afstöðu

Kannski verður umkvört­un­ar­efni mínu best lýst með því að segja frá mat­ar­boði fyrir tveimur vikum. Við komum saman heima hjá einum af strák­unum og ég fór að segja fyndna sögu af sam­starfs­manni mínum. Ég var ekki komin langt þegar Elsa byrj­aði skyndi­lega að tala. Hún fór að lýsa akst­urs­lagi ein­hvers bíl­stjóra sem hún hafði mætt á leið­inni og þegar ég reyndi að halda áfram hækk­aði hún róm­inn. Þeir sem næstir okkur stóðu sneru sér að henni, hlust­uðu á það sem hún sagði og hlógu með henni.

Ég gekk í burtu og sett­ist hjá nokkrum öðrum og við spjöll­uðum góða stund.

Rétt áður en við stóðum upp til að ganga að mat­ar­borð­inu nefndi ein af stelp­unum bók sem hún var að lesa og fannst góð. Ég hafði lesið hana líka og sagði að mér hefði þótt endir­inn óvenju­lega góður og rakti hvernig ég túlk­aði hann. Elsa kall­aði þá yfir stof­una: „Nei, þetta er ekki rétt. Það var alveg aug­ljóst að þetta fór á allt annan veg.“

Konurnar sem ég hafði verið að tala við ypptu öxlum og löbbuðu burtu. Ann­að­hvort hafa þær ekki nennt að standa í þrætum eða fund­ist ég hafa sagt eitt­hvað heimsku­legt.

Svona gekk þetta allt kvöldið og mér var farið að líða mjög illa. Ég fór snemma heim og hef ekki hitt hóp­inn minn síðan. Í raun var ég farin að velta fyrir mér hvort ég ætti heima í þessum hópi. Ég hringdi í bestu vin­kon­una eftir þetta kvöld og ræddi við hana um upp­lifun mína. Hún hafði ekki tekið eftir neinu, sagði hún en lof­aði að hafa augu og eyru opin næst þegar við kæmum saman. Ég tal­aði líka við aðra úr hópnum, sumir höfðu orðið varir við þessa tog­streitu milli mín og Elsu en sögðu að þeir vildu ekki blanda sér í málið vildu vera vinir okkar beggja. Þeir hvöttu mig til að ræða við Elsu og athuga hvort við gætum ekki fundið lausn. Ég gerði það en hún lést koma af fjöllum og alls ekki skilja hvað ég væri að fara. Skildi bara alls ekki hversu ofur­við­kvæm ég væri.

Þannig standa málin núna, í ein­hverri patt­stöðu og ég sé enga leið út. Í aðra rönd­ina finnst mér ósann­gjarnt að ég hrek­ist í burtu vegna leið­inda stæla í einni mann­eskju og finnst það ekki góðir vinir sem ekki eru til­búnir að taka á ein­elti í sínum hópi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu