Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Systurmissir kveikjan að tónlistarferlinum

Margrét Kristín Sig­urð­ar­dóttir prýðir for­síðu nýjasta tölu­blaðs Vikunnar. Margrét Kristín, sem er betur þekkt undir lista­manns­nafn­inu Fabúla, lét gamlan draum ræt­ast og skellti sér í leik­list­ar­nám í London þegar hún var fimm­tug. Hún hafði verið í slíku námi í Noregi þegar hún var ung en hætt þegar áfall í fjöl­skyld­unni varð til þess að tón­listar- og texta­sköpun hennar tók yfir­hönd­ina.

Systurmissir kveikjan að tónlistarferlinum

Margrét Kristín vinnur nú að sýn­ingu þar sem ljóð eftir Gerði Kristnýju verða túlkuð á sviði í dansi, söng og hreyf­ingum en hún bæði semur alla tón­list við verkið og tekur þátt í túlk­un­inni á svið­inu. Sýningin verður frum­sýnd í Þjóð­leik­hús­kjall­ar­anum þann 11. maí og það verður frumraun Mar­grétar sem tón­höf­undar í íslensku leik­húsi.

„Þetta eru ljóð sem Edda Þór­ar­ins­dóttir leik­kona og leik­stjóri valdi úr ýmsum ljóða­bókum Gerðar Kristnýjar og gerði úr heild­stætt hand­rit,“ segir Margrét beðin um að segja í stuttu máli frá sýn­ing­unni. „Ljóðin eru marg­slungin og  ólg­andi af sterkum til­finn­ingum og leik­hóp­ur­inn sem túlkar þau er jafn lit­ríkur og ljóðin sjálf.”

Í við­tal­inu ræðir Margrét Kristín einnig um áhrifin sem frá­fall systur hennar, sem svipti sig lífi í kjöl­far langvar­andi þung­lyndis, urðu til þess að hún hóf að semja og gefa út tón­list í eigin flutn­ingi.

„Systir mín lést 1990 úr þung­lyndi, eins og ég kýs að orða það,“ segir Margrét. „Og þessi plata var að ein­hverju leyti úrvinnsla úr því áfalli. Eitt lagið á plöt­unni er um hana og ég held að sú ákvörðun að fara frekar tón­list­ar­leið­ina en leik­list­ar­leið­ina á þessum tíma­punkti hafi verið afleið­ing af því að missa hana. Þörfin fyrir að tjá mínar eigin til­finn­ingar, segja mínar og okkar sögur varð sterk og tón­listin fossar auð­veld­lega úr hjart­anu.”

Margrét Kristín talar um að þekkja þær til­finn­ingar sem ljóðin í sýn­ing­unni Dansandi ljóð lýsa, meðal ann­ars kvíða og ang­ist, hefur þung­lyndið ein­hvern tím­ann náð tökum á henni?

„Nei, ég slapp við að erfa þetta þung­lyndi sem bæði pabbi og systir mín þurftu að glíma við, en svefn­leysið þekki ég, það glími ég við á erf­iðum tímum, eins og síð­ustu mán­uði, en pabbi veiktis alvar­lega fyrir um hálfu ári og lést í byrjun mars. Pabbi og systir mín fóru bæði að finna fyrir alvar­legu þung­lyndi á svip­uðum tíma, pabbi var þá á miðjum aldri en hún ung­lingur. Pabbi glímdi við það alla tíð síðan og þótt hann hafi lát­ist úr krabba­meini þá hafði hann verið á leið í raf­stuðs­með­ferð sem síð­ustu til­raun til að ná tökum á því, þar sem ekk­ert annað hafði hjálpað. Krabba­meinið dró hann hins vegar til dauða á nokkrum mán­uðum svo það kom aldrei til þess að hann færi í þá með­ferð.“

„Ég fann snemma sem lítil stelpa að systir mín glímdi oft við þungar hugs­anir.“

Þannig að skuggi þung­lynd­is­ins hefur fylgt þér mjög lengi?

„Já, hann hefur gert það,“ segir Margrét ein­læg. „Ég fann snemma sem lítil stelpa að systir mín glímdi oft við þungar hugs­anir og ég reyndi alltaf að létta henni þá byrði og varð mjög upp­tekin af því að hennar gleði væri óend­an­lega mik­il­væg og svo­lítið á mína ábyrgð. Ég varð ansi góð í því að taka ákvarð­anir út frá hennar þörfum en ekki mínum, sem framan af var lítið mál, en varð snún­ara með tím­anum og tók sinn toll án þess að ég kannski átt­aði mig á því fyrr en seinna. Við vorum mjög nánar syst­urnar, með sama húmor og önd­uðum í takt á nótt­unni. Ég fékk aðstoð við að vinna úr dauða hennar en svona áföll lifa auð­vitað alltaf með manni og í manni og sökn­uð­ur­inn er alltaf til staðar. “

Viðtalið í heild má lesa í nýjasta tölu­blaði Vikunnar sem kom í versl­anir í dag.

Margrét Kristín Sig­urð­ar­dóttir, tón­list­ar­kona, leik­kona og sér­kenn­ari, prýðir for­síðu nýjasta tölu­blaðs Vikunnar.

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una