Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Í hefndarhug gegn fyrrverandi

Í hefndarhug gegn fyrrverandi

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni 

Vinkona mín var um árabil gift virtum manni sem gegndi ábyrgðarmiklu embætti. Heima fyrir var hann svo stjórnsamur að það var nánast fyndið, ef það hefði ekki kostað vinkonu mína áratugi nánast í fangelsi … í gullbúri þó.

Ég hafði ekki hug­mynd um hversu kúguð Sonja vin­kona var á meðan hún var gift Stefáni, hún átt­aði sig kannski ekki almenni­lega á því sjálf lengst af. Hún var rétt tví­tug, feimin og ósjálf­stæð þegar þau Stefán fóru að vera saman og hann mót­aði hana í það form sem hann lang­aði að hafa hana í. Hann var sjö árum eldri en hún og þótti ein­stak­lega efni­legur ungur maður. Hafði verið virkur í stúd­entapóli­tík­inni og stefndi á glæsta fram­tíð. Allir sögðu Sonju að hún hefði dottið í lukku­pott­inn.

Þau giftu sig með pomp og prakt og dæt­urnar tvær komu í heim­inn á næstu árum. Stefán stjórn­aði heim­il­inu frá upp­hafi með styrkri hendi og hafði afskipti af hrein­lega öllu. Hann vildi ekki að Sonja væri á bíl, frekar ók hann henni þangað sem hún þurfti að fara … en aðeins ef honum fannst hún eiga þangað erindi. Hún fór til kaup­manns­ins á horn­inu á dag­inn en öll stórinn­kaup gerðu þau saman.

Fín frú

Stefán fór hratt upp met­orða­stig­ann og varð þekktur og virtur innan síns geira. Hann var vel tengdur í gegnum stjórn­mála­flokk­inn sem hann var með­limur í og gott ef hann var ekki frí­múr­ari líka, ekki skemmdi það fyrir honum.

Sonja hafði ætlað í háskóla­nám á sínum tíma en kynnt­ist Stefáni á meðan hún var á síð­asta árinu í mennta­skóla. Hann tal­aði hana ofan af því að fara í skóla og sagði meðal ann­ars að það væri nægur tími til þess síðar.

Þau hjónin voru þekkt fyrir stór og fín mat­ar­boð en þau voru skipu­lögð frá grunni af Stefáni. Hvað var í mat­inn, hvaða vín með, hverjum átti að bjóða og allt í þeim dúr. Þetta voru auð­vitað vinir hans og eig­in­konur þeirra, fínt fólk sem átti nóg af pen­ingum. Mér, sem ein­hleypri vin­konu Sonju, var aldrei boðið í róm­uðu mat­ar­boðin þeirra. Sonja var góður kokkur en í stærstu veisl­unum sá veislu­þjón­usta um mat­inn og þá fylgdi þjón­ustu­fólk.

Sonja sætti sig við þetta allt saman, ég varð að minnsta kosti ekki vör við annað. Hún var ein af fínu frúnum í bænum og klædd eftir því. Ég held að Stefán hafi yfir­leitt valið fötin á hana.

Hann var mjög gjaf­mildur við Sonju, gaf henni dýra og glæsi­lega skart­gripi og gráan pels sem mér fannst sjúk­lega fal­legur. Ég komst að því að Sonja hefði viljað pels í öðrum lit og þegar ég spurði hana hvort hún ætl­aði ekki að skipta honum sagði hún að hún gæti það ekki. Hún skil­aði aldrei gjöf­unum hans. Ég man að það hvarfl­aði að mér nokkrum sinnum í gegnum árin að hún væri kannski fangi í gull­búri en hún sagði samt aldrei neitt sem stað­festi það. Þetta var ein­hver til­finn­ing hjá mér sem ég reyndi að hrista af mér og hélt að væri röng.

Sonja lifði sann­köll­uðu yfir­stétt­ar­lífi, var með hús­hjálp, þurfti ekki að vinna og varði dög­unum meðal ann­ars í bók­lestur, jóga­tíma og heim­sóknir til vin­kvenna í svip­aðri stöðu. Þau hjónin ferð­uð­ust mikið og höfðu séð stóran hluta af heim­inum. Dvöldu á fínum hót­elum og flugu á milli með Saga Class. Þau voru fasta­gestir í leik­húsum og misstu ekki af við­burðum í sam­kvæmislíf­inu. Þau fóru mikið út að borða og umgeng­ust nán­ast ein­göngu fólk sem var á svip­uðum stað í líf­inu og þau. Sonja var trygg og vildi ekki missa mig, æsku­vin­kon­una, og við hitt­umst alltaf reglu­lega. Mér lík­aði vel við Stefán, hann lét mig aldrei finna að ég væri eitt­hvað ófínni en þau Sonja.

Örlagarík heimsókn

Sonja var að verða fimm­tug þegar systir hennar, búsett í Bret­landi, veikt­ist. Þær systur höfðu alltaf verið nánar en sam­bandið á milli þeirra allt of lítið, fannst mér á Sonju. Hún fór þó árlega í heim­sókn til systur sinnar og var þar í eina til tvær vikur. Stefán gat auð­vitað stjórnað þessu þar sem fang­inn í gull­búr­inu átti enga pen­inga og þurfti að leita á náðir hans með hverja krónu.

Hann tók vel í að Sonja dveldi hjá systur sinni um tíma, enda var hann að fara í lax­veiði­túr með „strák­unum“ á sama tíma. Sonja ætl­aði reyndar að vera lengur í þetta skiptið vegna veik­inda systur sinnar.

Önnur dóttirin var í fram­halds­námi í Banda­ríkj­unum, hin í háskóla­námi hér á Íslandi en komin í sam­búð með kærasta sínum.

Stefán keyrði Sonju út á flug­völl eldsnemma að morgni en þennan sama dag ætl­aði hann í lax­veið­ina.

Dvöl Sonju varð lengri en hún hafði ætlað, hálfur mán­uður varð að mán­uði sem varð að tveimur mán­uðum og Stefán varð sífellt arg­ari. Reyndar var mjög mikið að gera hjá honum þetta sumar og haust, svo ekki hafði hann tíma til að fljúga út og hrein­lega sækja Sonju, eins og hann var far­inn að tala um.

Sonju lík­aði ein­stak­lega vel úti og frestaði því í lengstu lög að fara heim. Hún átti löng sam­töl við systur sína þar sem augu hennar opn­uð­ust fyrir því að hún lifði ekki því lífi sem hún vildi sjálf. Hún lifði lífi sem Stefán hafði skapað henni. Einn dag­inn ákvað hún að fara ekki til baka. Hún til­kynnti Stefáni það og að hjóna­bandi þeirra væri hér með lokið. Stefán tók því ekki vel og hót­aði henni öllu illu en Sonja hafði breyst á þessum stutta tíma og lét hann ekki lengur kúga sig, hún sagði honum það líka.

Ljót hefnd

Sonja fékk arf og ákvað að nota hann til að mennta sig ytra. Einnig hafði hún ráðið sér lög­mann á Íslandi til að sjá um skiln­að­inn og skiptin. Án efa fór hún illa út úr skiln­að­inum fjár­hags­lega en henni var alveg sama. Ekki lang­aði hana í hús­gögn eða borð­búnað sem Stefán hafði hvort eð er valið, hún vissi að dæt­urnar fengju þetta fyrir rest. Eitthvað af föt­unum sínum vildi hún fá en komst að því að Stefán hafði fleygt þeim öllum eða gefið á nytja­markað. Yngri dóttirin hafði, að hennar beiðni, skellt per­sónu­legum munum hennar í kassa og tekið með sér. Stefán hafði skipt skart­gripum Sonju á milli dætr­anna en þær sáu til þess að hún fékk fyrir rest það sem hún hélt mest upp á af þeim, án vit­undar föður þeirra.

Sonja kynnt­ist Breta sem kenndi við skól­ann þar sem hún stund­aði nám sitt og með þeim tók­ust ástir. Þótt skiln­að­ur­inn væri geng­inn í gegn á þessum tíma komst Sonja að því að Stefán hefði orðið kol­brjál­aður þegar hann frétti það. Eins og hann hefði beðið eftir því að hún kæmi skríð­andi til baka til hans þegar London væri orðin leiði­gjörn.

Rúmum þremur árum eftir skiln­að­inn eign­að­ist önnur dóttirin barn og Sonja dreif sig af stað til Íslands til að sjá litla und­rið í eigin per­sónu.

Einhvern veg­inn komst Stefán að því að hún væri að koma og með hvaða flugi. Hann var áhrifa­mik­ill á Íslandi og auð­vitað var tekið mark á því þegar hann lét vita af því að Sonja ætl­aði að smygla inn eit­ur­lyfjum …

Hún vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar henni var kippt afsíðis og leit gerð í far­angri hennar. Þegar ekk­ert fannst tók við nið­ur­lægj­andi lík­ams­leit sem heldur engu skil­aði og þá var farið með hana til Reykja­víkur í gegn­um­lýs­ingu. Hún gat ekki látið tengda­son sinn vita en hann beið árang­urs­laust eftir henni á flug­vell­inum.

„Hvorki lög­regla né tollur vissi að þau voru aðeins verk­færi lít­ils karls sem vildi hefna sín á fyrr­ver­andi eig­in­konu.“

Auðvitað gat Sonja ekk­ert sannað og eflaust hefði kæra á hendur honum aldrei kom­ist langt. Þetta var and­styggi­leg reynsla og ekki mögu­leiki að þetta hafi verið til­vilj­ana­kennt úrtak hjá toll­inum. Toll­verð­irnir voru svo vissir í sinni sök þegar þeir leit­uðu að þeir ætl­uðu ekki að trúa eigin augum þegar ekk­ert fannst. Auðvitað verður að fara eftir ábend­ingum, ekki síst frá fólki eins og Stefáni. Hvorki lög­regla né tollur vissi að þau voru aðeins verk­færi lít­ils karls sem vildi hefna sín á fyrr­ver­andi eig­in­konu. Mér hefur verið sagt að þetta sé ekk­ert eins­dæmi.

Sonja gleymdi öllum óþæg­ind­unum þegar hún hitti barna­barnið sitt og heim­sóknin var ynd­is­leg.

Hún býr enn ytra en kemur nokkuð oft til lands­ins, enda hafa barna­börnin, nú fjögur, mikið aðdrátt­ar­afl. Hún býr með háskóla­kenn­ar­anum sínum og þau virð­ast yfir sig ánægð hvort með annað. Sonja talar ekki mikið um Stefán og vill meina að hann sé alls ekki alslæmur, hann hafi bara viljað móta hana í form sem pass­aði henni alls ekki. Nú gæti hún loks breitt út vængi sína sem hún hafði þráð svo lengi að gera en ekki fengið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu