Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Rjóminn í tævanskri kvikmyndagerð

Tævanskir kvik­mynda­dagar verða haldnir í Reykja­vík dag­ana 8.-24. mars. Boðið verður upp á úrval spenn­andi mynda þar sem storma­söm saga Tævan og fjöl­breytt menn­ing­ar­arf­leifð verða í for­grunni.

Rjóminn í tævanskri kvikmyndagerð
||

Stjórn­mál og spill­ing, ólík trú­ar­brögð, umhverf­is­mál og kynusli eru á meðal við­fangs­efna mynda sem verða sýndar á Tævönskum kvik­mynda­dögum sem fara fram í Reykja­vík dag­ana 8.-24. mars.

Stofn­andi og list­rænn stjórn­andi kvik­mynda­dag­anna, Aephie Chen, segir að öllu verði tjaldað til á hátíð­inni en hún er haldin á Íslandi og Bret­landi í fyrsta sinn. „Þetta eru í raun alls konar myndir, allt frá grá­glettnum gam­an­myndum upp í hug­ljúfar fjöl­skyldu­myndir sem taka á ýmsum umfjöll­un­ar­efnum. Sum hafa verið sér­stak­lega í deigl­unni í Tævan, á meðan önnur hafa alþjóð­legri skír­skot­anir. Þrátt fyrir breidd­ina má segja að rauði þráð­ur­inn í gegnum alla hátíð­ina sé sá að þarna er verið að gefa gleymdum stöðum og yfir­gefnu fólk rödd.“

Sum hafa verið sér­stak­lega í deigl­unni í Tævan, á meðan önnur hafa alþjóð­legri skír­skot­anir.

Tævanskir kvik­mynda­dagar eru sam­starfs­verk­efni FilmTaiwan og Menn­ing­ar­deildar Umboðs­skrifs­stofu Tævan, en þeir eru haldnir hér á landi í sam­starfi við StockFish Film Festival, Bíó Paradís og Iðnó menn­ing­ar­hús við Reykja­vík­ur­tjörn. Aephie segir að mark­miðið sé meðal ann­ars að koma hæfi­leika­fólki í tævanskri kvik­mynda­gerð á fram­færi með dag­skrá sem inni­heldur bæði klass­ískar og nýjar óháðar kvik­myndir.

Aephie Chen er bresk kvik­mynda­gerð­ar­kona sem fædd­ist í Tævan en býr nú í London og er stofn­andi og list­rænn stjórn­andi fyrstu Tævönsku kvik­mynda­dag­anna í Bret­landi og á Norð­ur­lönd­unum. Ljós­mynd­ari / Ingvar Haukur Guð­munds­son.

Frum­kvöðlum sé gert hátt undir höfði og sömu­leiðis kven­kyns­leik­stjórum en meira en helm­ingi mynd­anna er leik­stýrt af konum. Þá munu nokkrir leik­stjór­anna gera sér ferð til lands­ins til að vera við­staddir hátíð­ina, stýra mál­stofum eða sitja fyrir svörum að loknum sýn­ingum á myndum sínum.

Kolféll fyrir íslenskum húmor

En af hverju að halda hátíð­ina hér? „Við völdum Ísland, og reyndar Bretland líka, af ein­faldri ástæðu. Báðar þjóðir státa af ríkri sagna­hefð og óháðri kvik­mynda­gerð, rétt eins og Tævan sem er eina mandar­ínsku­mæl­andi ríki heims þar sem kvik­mynda­gerð og listir eru ekki rit­skoð­aðar. Fyrir utan það þá teng­ist ég sjálf Íslandi per­sónu­legum böndum þar sem ég er gift íslenskum manni og hef verið mikið hér síð­ustu ár og átta mig á hvað Tævan og Ísland eiga margt sam­eig­in­legt, til dæmis þegar kemur að kvik­mynda­gerð.“

Aephie seg­ist reyndar vera yfir sig hrifin af íslenskum myndum og noti hvert tæki­færi til að horfa á þær þegar hún er á land­inu

Ég kol­féll bara alveg fyrir hinni íslensku svörtu kómedíu sem þið mynduð kannski flokka sem drama.

„Ég kol­féll bara alveg fyrir hinni íslensku svörtu kómedíu sem þið mynduð kannski flokka sem drama og mér finnst oft eins og ein­hver hlýja ein­kenni mynd­irnar ykkar. Til dæmis fannst mér Englar alheims­ins ótrú­lega fal­leg og áhrifa­rík mynd. Sömu­leiðis Mamma Gógó, en það er svo­lítið fyndið að þegar ég sá hana í kvik­mynda­húsi í Tævan grun­aði mig ekki að þremur árum síðar ætti ég eftir að taka þátt í skipu­lagn­ingu tævanskrar kvik­mynda­há­tíðar á Íslandi og Bret­landi,“ segir hún og hlær.

Meira en bara bíó

Boðið verður upp á úrval spenn­andi mynda á hátíð­inni.

Nú kveðst Aephie hlakka mikið til að sjá hvernig íslenskir áhorf­endur og gagn­rýnendur munu taka tævönskum myndum. Hún bendir á að fyrir utan sýn­ing­arnar á hátíð­inni verði svo auð­vitað margt fleira í boði, meðal ann­ars kok­teilar og te, en tævönskum tegerð­ar­manni hafi verið flogið séstak­lega hingað til að útbúa fyrsta flokks te og te-koteila fyrir lands­menn. Hún hvetur alla áhuga­sama til að kynna sér dag­skrá hátíð­ar­innar betur, en hana megi nálg­ast á vef­síð­unum www.bioparadis.is og www.filmtaiwan.or

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina