Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Tekur slaginn fyrir náttúruna og dýrin í landinu

Ragn­heiður Þor­gríms­dóttir, bóndi á Kúlu­dalsá í Hval­firði, hefur þurft að láta fella nítján hross síðan sum­arið 2007 vegna veik­inda sem hún telur stafa af flú­or­mengun frá álver­inu á Grund­ar­tanga. Hún höfð­aði mál gegn Norð­ur­áli vegna meng­un­ar­slyss sem varð í álver­inu árið 2006, tap­aði því fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur á síð­asta ári og í síð­ustu viku stað­festi Lands­réttur dóm Hér­aðs­dóms og frí­aði Norðurál allri ábyrgð.

Tekur slaginn fyrir náttúruna og dýrin í landinu

Ragn­heiður hefur staðið í stríði við opin­berar stofn­anir síðan árið 2009, finnst henni ekki slít­andi að tala enda­laust fyrir daufum eyrum?
„Ég held það sé nú ekki hægt að tala um dauf eyru, því þeir vita örugg­lega alveg upp á sig skömm­ina,“ segir hún ákveðin. „Ég er ekki í nokkrum ein­asta vafa um það að menn vita að það er eitt­hvað að hérna sem ekki er hægt að skýra með mínum klaufa­skap eða EMS-sjúk­dómi. Þeir ætla bara ekki að taka undir það, vilja ekki sjá það.

Það gefur mér kraft til að halda áfram að ég veit að þetta er vegna meng­unar. Það kom greini­lega fram í nið­ur­stöðum sér­fræð­inga atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins að flú­or­mengun sé lík­leg orsök veik­inda hross­anna enda mælist fjór­falt flú­or­magn í bein­sýnum hross­anna hér miðað við hross á ómeng­uðum svæðum. Og þó hrossin hafi verið á aldr­inum 8 til 26 vetra þegar þau voru felld, er flú­or­magnið svipað í þeim öllum, sem merkir að þau urðu fyrir flú­or­á­lagi á sama tíma.

„Það kom greini­lega fram í nið­ur­stöðum sér­fræð­inga atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins að flú­or­mengun sé lík­leg orsök veik­inda hross­anna enda mælist fjór­falt flú­or­magn í bein­sýnum hross­anna hér miðað við hross á ómeng­uðum svæðum.“

Jakob og Sigurður eru auð­vitað traustir vís­inda­menn sem forð­ast upp­hróp­anir en þeir sögðu að það þyrfti frek­ari rann­sóknir, sem eðli­legt er. Eftir að skýrsla þeirra kom út vildi Umhverf­is­stofnun bæta Kúlu­dalsá inn á vökt­un­arplan vegna álvers­ins, en þeir gera aldrei neitt með þær nið­ur­stöður sem koma út úr vökt­un­inni, þannig að ég sá ekki ástæðu til þess að fara á byrj­un­ar­reit gagn­vart stofn­un­inni, heldur vildi ég að hún héldi áfram þar sem rann­sókn atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins hætti. Ég hef sjálf látið mæla flúor í grasi og heyi og þær tölur eru til og hægt að nýta þær.

Í fund­ar­gerð sem gerð var um þennan fund stóð hins vegar að ég hefði neitað Umhverf­is­stofnun um mæl­ingar á bænum. Ég skrif­aði þeim strax og bað þá vin­sam­leg­ast að segja satt, ég hefði ekki neitað þeim, heldur sagt að ég vildi að þeir héldu fyrr­nefndri rann­sókn áfram. Umhverf­is­stofnun tók þessa beiðni til greina.

Lögmanni Norð­ur­áls fannst samt bita­stætt að taka þessa klausu úr sam­hengi og leggja hana fyrir Lands­rétt og margend­urtók þetta atriði. Þannig að ég stend við það að þarna hafi ekki verið heið­ar­legur mál­flutn­ingur heldur reynt að láta minn mál­stað líta illa út. Þeir hafa ekki neitt á mig og fara þessa lúa­legu leið til að finna ein­hvern högg­stað á mér.“

Ragn­heiður seg­ist vera ósátt við dóm Lands­réttar, telur hann byggja á að máls­gögnin hafi ekki fengið hlut­læga með­ferð og nefnir annað dæmi. „Í starfs­leyfi Norð­ur­áls frá 2003 stendur skýrum stöfum að hreinsi­bún­aður eigi alltaf að vera í gangi, en í meng­un­ar­slys­inu lá bún­að­ur­inn niðri í einu hreinsi­virk­inu í allt að einn og hálfan sól­ar­hring. Þetta er mjög sér­kenni­leg nið­ur­staða hjá Lands­rétti.“

Þessi bar­átta hefur vænt­an­lega litað allt líf Ragn­heiðar síð­ustu árin, er hún ekk­ert nálægt því að gef­ast upp?
„Ég hef sem betur fer alltaf getað hlegið og tekið þátt í ein­hverju skemmti­legu,“ segir hún. „Ég læt þetta ekki draga mig niður í svart­nætti, alls ekki. Það sem kannski hefur verið erf­ið­ast er að upp­lifa að sumir kunn­ingjar, fólk sem þekkir mig, virð­ist trúa því sem stofn­an­irnar halda fram, að þetta sé mér að kenna. Það hef ég tekið nærri mér. En þú skalt ekki voga þér að reyna að láta mig líta út eins og eitt­hvert fórn­ar­lamb í þessu við­tali. Ég er ekki fórn­ar­lamb, ég er bar­áttu­kona og ég mun halda áfram að berj­ast.

„Í starfs­leyfi Norð­ur­áls frá 2003 stendur skýrum stöfum að hreinsi­bún­aður eigi alltaf að vera í gangi, en í meng­un­ar­slys­inu lá bún­að­ur­inn niðri í einu hreinsi­virk­inu í allt að einn og hálfan sól­ar­hring. Þetta er mjög sér­kenni­leg nið­ur­staða hjá Lands­rétti.“

Álverið hefur haft gríð­ar­legt oln­boga­rými hér, á kostnað umhverf­is­ins alls. Ég vil að það verði hægt að stunda búskap á þessu svæði í fram­tíð­inni. Náttúran og dýrin eru und­ir­staða búsetu í þessu landi og ég mun halda áfram að taka slag­inn fyrir þeirra hönd, svo lengi sem á þarf að halda.“

Sjá einnig: Í stríði við stofn­anir og stór­iðju

Mynd / Unnur Magna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina