Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Finnst þetta minna á valdníðslu Rannsóknarrétts kaþólsku kirkjunnar

Ragn­heiður Þor­gríms­dóttir, bóndi á Kúlu­dalsá í Hval­firði, höfð­aði mál gegn Norð­ur­áli vegna meng­un­ar­slyss sem varð í álver­inu árið 2006. Hún tap­aði því fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur á síð­asta ári og í síð­ustu viku stað­festi Lands­réttur dóm Hér­aðs­dóms og frí­aði Norðurál allri ábyrgð.

Finnst þetta minna á valdníðslu Rannsóknarrétts kaþólsku kirkjunnar
Ragn­heiður Þor­gríms­dóttir. Mynd/Unnur Magna

„Það er jú til eitt­hvað sem heitir Hæsti­réttur,“ segir Ragn­heiður þegar hún er spurð hvert næsta skref verði. „Ég veit ekki hvort hann vill taka þetta mál upp en mér finnst sjálf­sagt að reyna það. Vegna þess að mér finnst, eftir að hafa séð dóms­orð Lands­réttar og þar áður dóms­orð Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, að þessir dóm­stólar séu ekk­ert að dæma í þessu máli. Mér finnst eins og þeir hafi tekið ákvörðun um nið­ur­stöð­una fyrir fram og ég get alveg rök­stutt það.

Til dæmis með því hvernig þeir nota máls­gögnin sem koma frá mér. Þeir nota þau nefni­lega ekki og í allri orð­ræðu þeirra skín í gegn að það sem kemur frá Norð­ur­áli sé áreið­an­legt og hlut­laust. Þeir styðj­ast við rangar upp­lýs­ingar frá lög­manni Norð­ur­áls, meðal ann­ars um að ég hafi neitað að láta fara fram flú­or­mæl­ingar á jörð­inni, og nefna það í dóms­orðum. Nokkur vitni gáfu vitn­is­burð frá minni hlið og ég kom sjálf fyrir Hér­aðs­dóm Reykja­víkur, en þegar ég las dóms­orðin frá Hér­aðs­dómi var ekki á þeim að sjá að ég hefði verið þarna. Það lítur helst út fyrir að þau hafi ekk­ert hlustað á mig.

Núna fyrir Lands­rétti kom dýra­læknir, sem hefur verið dýra­læknir hérna í 37 ár og gjör­þekkir aðstæður, fram og lýsti því á mjög afger­andi hátt hvernig heilsa hross­anna hefði breyst eftir meng­un­ar­slysið. Hann tók einnig fyrir skýrslu Sigríðar Björns­dóttur sem hann sagði að væri hand­ó­nýt, það væri ekk­ert í henni sem gæfi til­efni til þess að halda því fram að hrossin væru með EMS. Enda þarf að greina hvert ein­asta hross með því að setja það í syk­ur­þols­próf til greina þann sjúk­dóm. Það var ekki gert og ég veit reyndar ekki til þess að eitt ein­asta hross á Íslandi hafi farið í slíkt próf. Samt heldur Sigríður Björns­dóttir því fram að þetta sé útbreiddur sjúk­dómur á Íslandi. Mér finnst þetta oft minna á Rann­sókn­ar­rétt kaþ­ólsku kirkj­unnar á mið­öldum og vald­níðslu hans.“

Ragn­heiður segir að það sem henni finn­ist eig­in­lega óhuggu­leg­ast í þessu máli sé hversu margir séu til­búnir til þess að sam­þykkja það sem Sigríður segir. „Dómarnir hafa svo líka auð­vitað áhrif,“ segir hún. „Fólk hefur til­hneig­ingu til að treysta þeim.“

Ítarlegt við­tal er við Ragn­heiði í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina