Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Íslenskir bræður gera það gott í Hollandi

Ný kvik­mynd, Nocturne, sem tveir hálf­ís­lenskir bræður koma að hefur hlotið frá­bærar við­tökur í Hollandi þar sem gagn­rýnendur lofa hana í hástert. Leik­stjórn er í höndum Viktors Bjarna van der Valk, sem hefur nú þegar fengið styrk til að gera aðra kvik­mynd í fullri lengd, en bróðir hans, Vincent Kári, fer með aðal­hlut­verkið. Segjast þeir ekki getað annað en verið þakk­látir fyrir þá jákvæðu dóma sem þeir hafa hlotið.

Íslenskir bræður gera það gott í Hollandi
Bræð­urnir Viktor Bjarni og Vincent Kári van der Valk hafa fengið afbragðs­dóma fyrir mynd­ina Nocturne. Myndin er fyrsta mynd Viktors Bjarna í fullri lengd

„Auðvitað er þetta mjög ánægju­legt,“ segir Viktor Bjarni, þakk­látur fyrir þá jákvæðu gagn­rýni sem hann hefur fengið fyrir mynd sína Nocturne. Gangrýnendur hafa verið ósparir á að ausa hana lofi og stjörnum og segja að leik­stjór­inn fari ekki þennan hefð­bundna „mainstr­eam“ veg, sem sé ánægju­legt að sjá í hol­lenskri kvik­mynda­gerð. Sjálfur tekur Viktor Bjarni undir að myndin sé ekki for­múlu­kennd, enda hafi hún í raun ekki eig­in­legan sögu­þráð. En um hvað fjallar hún? „Myndin ger­ist nótt­ina fyrir „dea­d­line“ hjá leik­stjór­anum Alex, aðal­per­sónu mynd­ar­innar, sem er nýhættur með kærust­unni sinni,“ svarar hann. „Hún lýsir örvænt­ingu Alex og því sem er að brjót­ast um í koll­inum á honum. Hann er að reyna að finna ball­ans milli þess­ara tveggja heima sem hann lifir í, ytri efn­is­lega heims­ins og þess sem ger­ist innra með honum. Myndin er því á mörkum hins raun­veru­lega og óraun­veru­lega.“

Viktor Bjarni bætir við að Nocturne sé í anda filme noir, eða rökk­ur­mynda, þar sem tón­list, klipp­ing og svart­hvítar myndir leika stórt hlut­verk. Myndin sé þó með gam­an­sömu ívafi. Heitið Nocturne sé fengið úr tón­list­ar­bók­menntum og merki næt­ur­ljóð, yfir­leitt með ang­ur­værum blæ og þó að ákveðin til­vísun sé í tit­il­inn þá hafi kvik­myndin margar hliðar. „Hún er kómísk, dýnamísk og þar er líka allt sem þarf, byssur og konur,“ segir hann og hlær og vísar þar í orð frægs leik­stjóra, Jean-Luc Godard, sem hann segir að hafi haft mikil áhrif á sig sem kvik­mynda­gerð­ar­mann og gert að verkum hann fór að líta kvik­myndir öðrum augum en áður. „Godard velti fyrir sér af hverju kvik­mynda­gerð­ar­list sé svo oft sett í sam­hengi við „að segja sögu“ og af hverju við viljum að kvik­myndin segi hluti sem við krefj­umst ekki af öðrum list­greinum eins og mynd­list, tón­list eða ljóð­list,“ bendir hann á og segir að Nocturne segi ekki ákveðna sögu heldur lýsi tveimur heimum aðal­per­són­unnar, því sem ger­ist í huga hans og því sem er fyrir utan, því áþreif­an­lega.

Þekktir í Hollandi
Nocturne er fyrsta kvik­mynd Viktors Bjarna í fullri lengd eftir útskrift úr námi í Hollandi, en hann lærði í Utrecht Uni­versity for the Arts og síðar í The Nether­lands Film Academy í Amster­dam. Áður hafði hann gert stutt­myndir, m.a. Stone (2013) og Onno the Oblivious (2014), sem fengu mjög góðar við­tökur á kvik­mynda­há­tíðum víða um heim. Onno hlaut einnig verð­laun meðal ann­ars sem fram­sækn­asta myndin og tvenn pen­inga­verð­laun, en fyrir þau ákvað Viktor Bjarni að hefj­ast handa við gerð Nocturne.

„Fólk seg­ist sjá elem­ent sem séu íslensk í Nocturne,“ segir leik­stjór­inn Viktor Bjarni um mynd sína. Hann seg­ist reyna að fylgj­ast með því sem er að ger­ast hér í kvik­myndun og nefnir bæði kvik­myndir og nöfn leik­stjóra í því sam­bandi. Hann langar til að kvik­mynda á Íslandi og seg­ist stefna að því.

Eldri bróðir hans, Vincent Kári, sem fer með aðal­hlut­verkið í mynd­inni, eins og fyrr segir, er þegar orð­inn þekktur leik­ari í Hollandi. En frá því að hann lauk námi frá hinum virta skóla Maastricht Theatre Academy árið 2010 hefur hann verið til­nefndur og unnið til nokk­urra verð­launa fyrir leik sinn bæði í kvik­myndum og á leik­sviði, og hefur auk þess samið leik­verk. Hlut­verkið í kvik­mynd­inni Nocturne var skrifað sér­stak­lega með hann í huga af Viktori Bjarna, og með­höf­undi hand­rits­ins að mynd­inni, Jeroen Scholten van Aschat. Vincent Kári seg­ist aðeins hafa komið að þeirri vinnu.

„Þegar ég var krakki tók pabbi mig oft með sér á tón­leika, en ég spil­aði fót­bolta lengi og lang­aði miklu frekar að vera á vell­inum en nú er ég feg­inn, klass­ísk tón­list veitir mér bæði inn­blástur, virkjar hug­mynda­flugið og þar með sköpun.“

„Ég fékk að vera með í ferl­inu og gat þannig haft ákveðin áhrif á verkið, sem var mjög gaman,“ segir hann hress í bragði, en hann hefur, ekki síður en Viktor Bjarni fengið góða gagn­rýni ytra fyrir frammi­stöðu sína í Nocturne. Sagður enn og aftur sanna hversu hæfi­leik­a­ríkur leik­ari hann sé sem sýni ástríðu, mikla næmni og fleiri hliðar í leik sínum.

Koma úr list­rænni fjöl­skyldu
Óhætt er að segja að bræð­urnir eigi ekki langt að sækja list­ræna hæfi­leika sína því báðir for­eldrar þeirra eru lista­menn. Hlíf Svav­ars­dóttir, móðir þeirra, dans­aði um langt ára­bil við Þjóð­ar­ball­ett­inn í Amster­dam, þá var hún list­dans­stjóri Íslenska dans­flokks­ins, auk þess sem hún var skóla­stjóri lista­skóla í Arnheim en hún hefur einnig samið dans­verk, m.a. fyrir Íslenska dans­flokk­inn og dansað víða um Evrópu. Faðir þeirra, Maarten van der Valk áslátt­ar­hljóð­færa­leik­ari, lék með Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands, hinni virtu Concertgebouw-hljóm­sveit í Amster­dam og hefur t.d. spilað með hljóm­sveit­inni Mezzoforte og djazzhljómsveitum. Hann starfar með Orchestra of the Eighteen Century en Maarten hefur komið fram um allan heim og hefur spilað inn á vel yfir 80 geisla­diska.

Viktor Bjarni segir að það hafi haft mikil áhrif á sig að alast upp við list og sem dæmi veiti klass­ísk tón­list honum mestan inn­blástur í kvik­mynda­gerð­inni. „Þegar ég var krakki tók pabbi mig oft með sér á tón­leika, en ég spil­aði fót­bolta lengi og lang­aði miklu frekar að vera á vell­inum en nú er ég feg­inn, klass­ísk tón­list veitir mér bæði inn­blástur, virkjar hug­mynda­flugið og þar með sköpun,“ segir hann og bætir við að sér finn­ist líka gaman að leika sér með tungu­málið, áherslur, hrynj­andi o.fl. í kvik­myndun.

„Fólk seg­ist sjá elem­ent sem séu íslensk í Nocturne.“

„Ég er rétt að byrja“
Nocturne hefur fengið góða dóma eins og áður sagði en þrátt fyrir það seg­ist Viktor Bjarni vera langt frá því að gera full­komið verk og það eigi heldur ekki að vera þannig. „Ég er rétt að byrja og vil gera ófull­komið verk í veru­leika þar sem allt þarf að vera full­komið. Það verður líka eitt­hvað að vera eftir fyrir mig að vinna með og þróa,“ útskýrir hann.

„Mér finnst oft að við mælum gæði kvik­mynda í því hversu vel sagan er upp­byggð með list­rænum hætti. En ég upp­lifi aldrei „lífið“ eins og þess háttar sögu og alls ekki eins og vel upp­byggða list­ræna sögu,“ segir hann og hlær. „Í hrein­skilni sagt þá er lífið ekki þannig, það getur verið óreiðu­kennt þegar æsk­unni sleppir og full­orð­ins­árin taka við og maður upp­götvar að það sem maður lærði er allt annað en það sem maður upp­lifir. Þetta eru tveir ólíkir heimar. Þannig er allt síbreyti­legt sem felur þá í sér að það að eitt­hvað sé full­komið stenst ekki, því þá væri allt staðnað og eng­inn hreyf­an­leiki, þess vegna er allt ófull­komið.“

Vincent Kári lærði í Kína og í The Circle in the Square Theatre School í New York. Hann sneri til Hollands aftur og lauk námi frá hinum virta skóla Maastricht Theatre Academy árið 2010. Hann er þegar orð­inn þekktur leik­ari í Hollandi. Hefur verið að leika, vinnur að sjón­varps­þáttum sem kall­ast Dit Zijn Wij (This Is Us).

Vincent Kári tekur undir með bróður sínum. „Allt er túlkun á raun­veru­leik­anum,“ segir hann. „Ég hef kom­ist að því að hlut­rænn veru­leiki er varla til, allt er háð því hvernig fólk túlkar veru­leik­ann og það er ekki hægt að aðskilja túlkand­ann frá því efni sem hann túlkar, þannig að þegar ein­hver túlkar veru­leik­ann er sá hinn sami að búa til eitt­hvað eða skapa í leið­inni.“

Ætla sér frekara sam­starf
Sú spurn­ing hefur vit­an­lega komið oft upp hvort sam­starf þeirra bræðra hafi gengið snurðu­laust fyrir sig og hvernig það sé að vera leik­stýrt af litla bróður. Þeir brosa báðir þegar blaða­maður spyr út í þetta og segja að þeir hafi ekk­ert krydd í þá sögu. Það hafi verið mjög gott að vinna saman og þeir eigi örugg­lega eftir að gera það ein­hvern tíma aftur. Það var óskrifað lof­orð þeirra beggja frá því að þeir voru guttar og Viktor Bjarni lék sér við stutt­mynda­gerð að þeir myndu gera fyrstu kvik­mynd­ina í fullri lengd saman.
„Þetta er ekki síð­asta myndin sem við vinnum saman,“ segir Vincent Kári og Viktor Bjarni tekur undir.

Hvort við Íslend­ingar fáum að berja mynd­ina augum ein­hvern tíma í náinni fram­tíð svarar Viktor Bjarni því til að auð­vitað væri það gaman og að ein­hverjir ein­stak­lingar á Íslandi hafi haft á orði við hann að það þyrfti að koma því í kring.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina