Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Strax sem barn heltekin af dauðanum

Ljóða­bókin Líkn eftir prest­inn og rit­höf­und­inn Hildi Eir Bolla­dóttur, sem nýlega kom út, fjallar öðru fremur um dauð­ann og hvernig við mætum honum með til­finn­ingum okkar og atferli. Hún segir að bókin sé per­sónu­leg en líka mynd­ræn í þeim skiln­ingi að í henni sitji myndir sem Hildur hafi bara í hug­anum sem áhorf­andi en séu ekki bein per­sónu­leg reynsla.

Strax sem barn heltekin af dauðanum
|adsf

„Sum ljóðin eru gamlar æsku­myndir sem hafa fylgt mér alla tíð svo sterkt að ég get enn fundið lykt og bragð af deg­inum eða stund­inni sem þær áttu sér stað, þau ljóð skrif­uðu sig nán­ast sjálf, þau eru eig­in­lega bara eins og gamlar ljós­myndir í nokkrum orðum,“ segir Hildur.

„Ég hugsa að þessi ljóða­bók hafi gengið með mér frá allt frá bernsku. Strax sem barn var ég hel­tekin af dauð­anum, aldrei þannig að hann ylli mér ang­ist heldur fannst mér allt svo áhuga­vert sem tengd­ist dauð­anum. Ég er alin upp á kirkju­stað og faðir minn var prestur og þess vegna var dauð­inn mér nálægur frá fyrstu minn­ingu. Mér fannst svo for­vitni­legt að fylgj­ast með atferli fólks í kringum dauð­ann og öllum siðum og hefðum sem skap­ast í kringum hann en líka öllum vand­ræða­gang­inum og hátíð­leik­anum sem verður til vegna þess að okkur finnst óþægi­legt að lifa í sátt við dauð­ann, jafn­vel þótt hann sé það eina sem ekk­ert okkar getur flúið. Ljóðin eru þess vegna bæði kómísk en líka hug­hraust af því að í gegnum starfið mitt sem prestur hef ég lært að umgang­ast dauð­ann af fum­leysi en líka auð­vitað djúpri alvöru.“

Ljóða­bókin Líkn fjallar öðru fremur um dauð­ann, til­finn­ingum okkar og atferli þegar við mætum honum.

Hún segir að til­gangur bók­ar­innar sé fyrst og fremst að deila með umheim­inum myndum af þessum sammann­lega veru­leika sem dauð­inn er en líka að orða nokkrar æsku­myndir upp­hátt áður en yfir þær fennir.
„Nú lifum við bara í svo miklum hraða og áreiti að for­tíð hvers og eins okkar getur farið að skol­ast til ef við gefum henni ekki við­eig­andi gaum og þótt við eigum ekki að lifa í for­tíð­inni megum við heldur ekki gleyma henni því þá hættum við að þekkja okkur sjálf,“ segir Hildur.

„Ég hef alltaf verið hug­fangin af ljóð­form­inu, allt frá því að ég var þriggja ára gömul og pabbi kenndi mér ljóðið „En hvað það var skrýtið“ eftir Pál Árdal, upp frá því hef ég elskað ljóð og lært þau utan að eins og drekka vatn þótt ég gæti ekki fyrir mitt litla líf munað eina ein­ustu stærð­fræði­for­múlu alla mína grunn- og fram­halds­skóla­göngu. Ég get tár­ast við að lesa ljóð og líka hlegið og fáar bækur hafa veitt mér jafn­góðan spegil á lífið og sjálfa mig eins og ljóða­bækur. Ég hef alltaf hrif­ist af knöppum stíl og alltaf fund­ist miklu merki­legra að lesa stóra hugsun í fáum orðum í stað­inn fyrir litla hugsun í mörgum orðum, hið fyrr­nefnda getur kallað fram í mér gæsa­húð á meðan hitt virkjar enn frekar athygl­is­brest­inn sem ég lifi við.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina