Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kvendansari Hatara skrifar um dansinn og hina kvenlegu og valdeflandi konu

Sólbjört Sig­urð­ar­dóttir er dans­höf­undur sem og einn dansar­anna sem fylgdu hljóm­sveit­inni Hatara til Tel Aviv, en hún er líka nem­andi á sam­tíma­dans­braut á Sviðs­lista­deild Lista­há­skóla Íslands og var nýlega að skila inn BA-rit­gerð sinni þar um hlut­verk sitt sem dans­ari Hatara.

Kvendansari Hatara skrifar um dansinn og hina kvenlegu og valdeflandi konu

Rit­gerðin kall­ast „Kvend­ans­arar í Hatara og hlut­verk þeirra: hin kven­lega og vald­efl­andi kona.“ Sólbjört er einn tveggja kvend­ans­ara Hatara, en þriðji dans­ar­inn er karl­kyns. Oftast eru slíkir dans­arar kall­aðir bak­dans­arar en Sólbjört leggur til orðið stuðn­ings­dans­ari sem hún segir lýsa hlut­verki þeirra betur.

Hug­mynda­fræði þeirra kemur að ein­hverju leiti til þess hluta þriðju bylgju femín­isma sem kall­ast „lipstick fem­in­ism,“ eða vara­lits­femín­ismi, þar sem konan eignar sér sinn eigin kyn­þokka.

Í rit­gerð­inni lýsir hún því að þetta snú­ist um „að við­ur­kenna það að konur geti verið femínistar án þess að afneita eða hunsa kven­leik­ann. Að konan geti t.d. talað opin­skátt um kyn­hneigð og kyn­líf án þess að vera kölluð drusla. Þessi til­tekni femínisti trúir því, í mjög bók­staf­legum skiln­ingi, að það sé hægt að ganga með vara­lit og kalla sig femínista, þar sem femín­ism­inn snýst um svo miklu meira en það hvernig hver og einn er útlít­andi, hvort sem við­kom­andi notar farða eða ekki.“

Bannorðið kynþokki

Hún ræðir það einnig hvernig kyn­þokki hafi orðið ákveðið tabú í hinum ólík­ustu kreðsum sam­fé­lags­ins.

„Af hverju er svona við­kvæmt, tabú og stundum nei­kvætt að vera sexý? Af hverju er það stundum bannað? Erum við að særa blygð­un­ar­kennd fólks með því að vera eins og við erum? Megum við ekki vera sexý þegar við dönsum því við erum konur? Erum við þá sjálf­krafa orðnar druslur? Megum við það ekki því konur hafa barist fyrir auknum almennum rétt­indum kvenna svo og rétt­indum þeim að eiga sig sjálfar? Eigum við þá kyn­þokk­ann okkar ekki sjálfar?“

Í grein Nínu Hjálms­dóttur í Stund­inni var fram­lag Hatara gagn­rýnt harð­lega og þar voru dans­ar­arnir ekki und­an­skildir.

„Ég átti erfitt með að leiða það hjá mér þegar þeir síðar bættu við tveimur kven­kyns dönsurum á sviðið, sem hafa það eina hlut­verk að skreyta og magna upp­lifun­ina. Nú voru strák­arnir búnir að taka á sig birt­ing­ar­mynd valds­ins, á meðan kon­urnar voru sýndar sem und­ir­gefnar, vél­rænar og radd­lausar.“

Þessu er Sólbjört ósam­mála. „Kvend­ans­ar­inn er hvorki að gefa sig á vald Matth­í­asar né Klem­ensar þó svo að dans­inn leiki ekki endi­lega aðal­hlut­verk sviðs­fram­kom­unnar.“

Hún bætir við að hjá þeim hafi verið „mik­il­vægt að konan á svið­inu væri sterk og vald­efl­andi, örugg með sjálfa sig, kyn­þokka og kven­lega eig­in­leika. Kvend­ans­ar­inn á svið­inu á alls ekki að vera bara til skreyt­ingar.“

Raunar virð­ist það miklu frekar vera karld­ans­ar­inn eini sem sé und­ir­gef­inn. „Klemens syngur með fal­legri hárri röddu og er und­ir­gef­inn Matth­í­asi sem öskrar text­ana. Einar er trommugimp sem fær aldrei að tala, þar sem hann er klæddur í grímu með göddum á. Kvend­ans­ar­arnir eru vald­efl­andi konur. Þriðji dans­ar­inn, eða Andrean, sem er karl­kyns, er sá sem er und­ir­gef­inn, sem er með­vituð ákvörðun allra í Hatara. Ef við skoðum and­stæður og núansa í svið­setn­ingu, á lag­inu Hatrið mun sigra, eru þær nokkrar. Andrean túlkar bælda sál Matth­í­asar og er sem hundur hans í bandi.“

Blankir dansarar með súperstjörnum

Það er þó ekki sæld­ar­líf að vera stuðn­ings­dans­ari. Sólbjört ræðir tölu­vert dans­ara og dans­höf­undana sem vinna með Beyonce – en þurfa að finna sér nýja vinnu á milli tón­leika­ferða­laga.

„Á hverjum degi fer þetta fólk í neð­an­jarð­ar­lest­irnar á leið sinni í kalt og afskekkt dans­stúdíó eða inn um bak­hurðir á leik­hús­unum. Þú myndir ekki endi­lega þekkja and­litin þó þessi and­lit taki þátt í flestum af vin­sæl­ustu söng­leikj­unum sem oftar en ekki er upp­selt á, þó þessi and­lit komi fram í stærstu sjón­varps­þáttum lands­ins. Þessir dans­arar eiga oft­ast engan pen­ing þó þau dansi með fræg­ustu söngv­ur­unum á tón­leika­ferða­lagi um heim­inn.“

En hvernig lýsir hún dans­inum með Hatara?

„Hreyf­ing­arnar hafa ekki bók­staf­legan kyn­þokka­fullan útgangs­punkt en þær eru sumar hverjar kven­legar, lík­lega þar sem kven­lík­amar eru að fram­kvæma hreyf­ing­una. Bún­ing­arnir eru kven­legir og kyn­þokka­fullir a.m.m., á meðan sumar hreyf­ing­anna eru ein­föld skref, ýmist áfram eða aft­urá­bak, sem er ekki bók­staf­lega kven­leg eða kyn­þokka­full hreyf­ing. Á svið­inu er því sam­spil á milli margra þátta, tón­listar, bún­inga, hreyf­inga o.fl. sem vekur upp til­finn­inga­leg hug­hrif hjá áhorf­endum sem kunna að vera (sem dæmi) kven­leg, kyn­þokka­full, vald­efl­andi, und­ir­gefin o.s.frv. Við sjáum í mynd­bandi ákveðna þver­sögn á milli bún­inga og hreyf­inga þar sem hreyf­ing­arnar eru ekk­ert sér­stak­lega kyn­þokka­fullar en dans­aðar í bún­ingum sem eru, að mínu og ann­arra mati, ber­sýni­lega kven­legir og kyn­þokka­fullir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við