Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Forsætisráðherra gegn frjálsari lögum um íslensk mannanöfn

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra lagð­ist gegn nýju frum­varpi um manna­nafna­lög sem var fellt á Alþingi í nótt og sagði að „það sé ekki rétt að taka breyt­ingar á manna­nafna­lögum úr sam­hengi við mál­stefnu.“

Forsætisráðherra gegn frjálsari lögum um íslensk mannanöfn

„Ég sé að þessi mál­flutn­ingur fer mjög fyrir brjóstið á hátt­virtum þing­mönnum Við­reisnar. Þeir geta bara ekki haldið í sér á meðan ég fæ að nýta mínar tvær mín­útur hér.“

Atkvæða­skýr­ing for­sæt­is­ráð­herra fer fyrir brjóstið á fleirum en þeim, bæði íslensku­fræð­ingum, borg­ar­full­trúa VG og þing­manni Sam­fylk­ing­ar­innar.

Eiríkur Rögn­valds­son íslensku­fræð­ingur harmar að frum­varpið hafi verið fellt á Alþingi, en segir það hafa verið við­búið þar sem VG lagð­ist gegn því. „Vissu­lega er það rétt að frum­varpið var ekki full­komið þótt breyt­ing­ar­til­lögur minni­hlut­ans bættu það veru­lega. Það kom mér hins vegar óþægi­lega á óvart að heyra for­sæt­is­ráð­herra í atkvæða­skýr­ingu segja það grund­vall­ar­at­riði að breyt­ingar á manna­nafna­lögum verði ekki teknar úr sam­hengi við íslenska mál­stefnu.“

Líf Magneu­dóttir, borg­ar­full­trúi VG, segir í athuga­semdum hjá Eiríki að hún hefði greitt með frum­varp­inu ef hún hefði verið á þingi og Helga Vala Helga­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar, segir: „Ég bara trúði ekki mínum eigin eyrum í gær­kvöldi þegar ég hlust­aði á rök­semda­færslur for­sæt­is­ràð­herra og fleiri stjórn­ar­liða.“

Eiríkur er ósam­mála túlkun for­sæt­is­ráð­herra á frum­varp­inu. „Í þessu felst sú túlkun að lög um manna­nöfn varði fyrst og fremst íslenskt mál. Það er að mínu mati grund­vall­armis­skiln­ingur. Þetta er fyrst og fremst mann­rétt­inda­mál og sem slíkt engu létt­væg­ara en önnur mik­il­væg mann­rétt­inda­mál sem hafa verið afgreidd und­an­farið – undir for­ystu VG. Það hafa engin rök verið færð fyrir því að breyt­ingar á manna­nafna­lögum komi íslensk­unni illa.“

Eiríkur talar um að þetta þýði að ekki verði hægt að end­ur­skoða manna­nafna­lög sam­kvæmt þessu í árs­lok 2021og því þurfi að bíða að lág­marki 3-4 ár eftir nýjum lögum.

„Á meðan sitjum við uppi með lög sem fela í sér skýr mann­rétt­inda­brot og megum búast við fjölda dóms­mála sem ríkið mun vænt­an­lega tapa eins og öllum málum út af lög­unum hingað til – málum sem valda þeim sem í hlut eiga ómældri fyr­ir­höfn og hug­ar­angri en rík­inu kostn­aði.“

Eiríkur skrif­aði grein á Hugrás árið 2016 þar sem hann útskýrir hvernig nafn­réttur manna sé ríkur og hafi það verið stað­fest í dómum frá Mann­rétt­inda­dóm­stóli Evrópu, Hér­aðs­dómi og með vísun í mann­rétt­inda­da­sátt­mála Evrópa og stjórn­ar­skrá Íslands. Þá sé rétt að athuga að sumt fólk sé hvorki full­kom­lega karl­kyns né kven­kyns né skil­greini sig þannig og því segir Eiríkur óeðli­legt að lög­gjaf­inn krefj­ist nafns sem opin­beri kyn fólks. „Kyn og kyn­vit­und ætti vita­skuld að falla í sama flokk – vera einka­mál fólks, sem það ætti ekki að vera skyldugt til að opin­bera með nafni sínu. Þetta er aug­ljóst mann­rétt­inda­mál og mjög nauð­syn­legt að afnema þessi skil og leyfa kyn­hlut­laus nöfn.“

Eins sé mis­rétti þegar kemur að því að sumum sé heim­ilt að bera eft­ir­nöfn en öðrum ekki, þrátt fyrir ákvæði stjórn­ar­skrár um að allir „skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mann­rétt­inda án til­lits til […] ætt­ernis […]“

Dæmi um nöfn sem manna­nafna­nefnd sam­þykkti ekki en dóm­stólar úrskurð­uðu rétt­mæt eru kven­mannsnöfnin Blær, Alex og Zoe og Reykdal sem skírn­ar­nafn.

Mynd / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina