Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Næsti forsætisráðherra Bretlands? Skipulagði barsmíðar, skáldaði fréttir og hefur móðgað næstum alla

Boris Johnson, þing­maður breska Íhalds­flokks­ins og fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, er tal­inn sig­ur­strang­leg­astur í for­manns­kjöri flokks­ins. Fari svo er Boris næsti for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Hann er afar umdeildur stjórn­mála­maður og þekktur fyrir klaufa­lega fram­komu, niðr­andi ummæli og ósann­sögli.

Næsti forsætisráðherra Bretlands? Skipulagði barsmíðar, skáldaði fréttir og hefur móðgað næstum alla

Valkvætt sam­band Boris við sann­leik­ann hefur oftar en einu sinni kostað hann vinn­una. Boris hóf blaða­manna­feril sinn á The Times en var lát­inn fara þaðan þegar upp komst að hann hafði skáldað til­vitnun í for­síðu­frétt sem hann skrif­aði. Til­vitn­unin sem um ræðir átti að koma frá Colin Lucas, sagn­fræð­ingi og guð­föður Boris. Fréttin fræga fjall­aði um að stað­setn­ing Rós­ar­hallar Eðvalds II væri fundin á bakka Thames. Boris var rek­inn þegar upp um málið komst. Stuttu síðar hóf hann störf á The Tel­egraph sem frétta­rit­ari frá Brussel.

Boris maðurinn á bak við goðsögnina um ESB-banana

Nei­kvæðar og oft fjar­stæðu­kenndar fréttir Boris frá Evr­ópu­sam­band­inu urðu til þess að Boris varð frægur blaða­maður meðal hægri­manna með efa­semdir um Evr­ópu­sam­bandið. Fréttir Boris höfðu gríð­ar­leg áhrif á hvernig almenn­ingur sér Evr­ópu­sam­bandið, ekki bara í Bret­landi heldur víða um heim. The Tel­egraph er eitt af heims­blöð­unum og breskir fjöl­miðlar hafa mikil áhrif um allan heim. Skrif Boris bera rauna ábyrgð á nokkrum af fræg­ari goð­sögnum og villum um gang­verk sam­bands­ins. Boris skrif­aði meðal ann­ars frétt þar sem hann hélt því fram að Evr­ópu­sam­bandið hefði sett á fót vinnu­hóp sem setja á reglur um bogna ban­ana. Í annarri grein vildi hann meina að Brussel ætl­aði sér að setja reglur um stærð lík­kista í Evrópu sem og að til stæði að banna rækju­flögur.

Skipulagði barsmíðar á blaðamanni

Upptökur af sam­tali Boris við afbrota­mann­inn Darius Guppy fóru í dreyf­ingu árið 2009. Á þeim heyr­ast þeir félagar skipu­leggja bar­smíðar á frétta­manni. Guppy ætl­aði sér að við­beins­brjóta mann­inn og átti Boris að verða út um heim­il­is­fang hans. Í við­tali við the Independent segir Boris að und­ir­tekt­irnar hafi verið góð­lát­legt grín. Það hafi heldur ekk­ert orðið að þessu.

Ritstjóri The Spectator gegn því að leggja ekki fyrir sig stjórnmálin

Árið 1999 var Boris gerður að rit­stjóra hægri­blaðs­ins The Spectator. Blaðið sem er eins­konar Þjóðmál þeirra Breta er eitt allra elsta stjórn­mála­tíma­rit í Evrópu. Boris beið ekki lengi með að svíkja lof­orð sitt við eig­anda Spectator því árið 2001 varð hann þing­maður Henley í Oxfor­skíri á Englandi. Árið 2012 baðst Boris afsök­unar á grein sem birt­ist í blað­inu rit­stjóra­tíð hans. Þar sem ölv­uðum Liverpool aðdá­endum var gert að hafa valdið Hilborough hörm­ung­unum árið 1989 þar sem rúm­lega 96 manns lét­ust og 766 slös­uð­ust þegar áhorf­endur á fót­bolta­leik krömd­ust. Árið 2012 kom út rann­sókn­ar­skýrsla um málið sem leiddi í ljós að van­hæfni lög­reglu olli slys­inu.

Framhjáhald var til þess að hann missti skuggaráðherrastöðu

Árið 2003 fjöll­uðu breskir fjöl­miðlar um sam­band Boris og Petr­on­ella Wyatt, pistla­höf­und Spectator. Boris var þá giftur en í breskum stjórn­málum þykir skortur á tryggð við maka ekki gott vega­nesti né sterk rök fyrir tryggð manna við trún­að­ar­stöður. Boris þver­neit­aði fyrir fram­hjá­haldið á fundi með Michael Howard, þáver­andi for­manni Íhalds­flokks­ins. Þegar for­mað­ur­inn komst að því að Boris hefði sagt honum ósatt um málið lét hann Boris fara.

Kallaður fyrir dóm vegna Brexit

Breskur kjós­andi kærði Boris vegna full­yrð­inga um að aðild Bret­lands að Evr­ópu­sam­band­inu kosti breskan almenn­ing 350 millj­ónir punda í viku hverri. Upphæðin er um 55 millj­arðar íslenskra króna. Lög­mennir Boris sögðu kæruna til­hæfu­lausa til­raun til að grafa undan nið­ur­stöðu kosn­ing­anna. Stefnan þýðir þó aðeins að Boris er kall­aður fyrir rétt­inn vegna mats um hvort sækja skuli málið áfram. And­stæð­ingar veru Bret­lands í Evr­ópu­sam­band­inu vöktu athygli vegna rútu með áprentun sem sagði kostn­að­inn við sam­bands­að­ild £350 millj­ónir á viku. Boris er sagður mað­ur­inn að baki yfir­lýs­ing­ar­innar. Ekki hefur tek­ist að stað­festa rétt­mæti upp­hæð­ar­innar.

Vanvirti þjóðarleiðtoga Tyrklands og sagði Obama mengaðan

Boris samdi nið­ur­lægj­andi ljóð í maí 2016 um for­seta Tyrk­lands, Recep Tayyip Erdoğan. Þar ýjar hann að því að Erdoğan stundi kyn­mök við geitur. Boris neit­aði þá að biðja for­set­ann afsök­unar á ljóð­inu.

Í apríl 2016 gerði hann lítið úr þáver­andi for­seta Banda­ríkj­anna, Barrack Obama. Hann var þá ósam­mála Obama um Brexit og sagði skoðun hans „meng­aða“ af Kenýskum upp­runa hans. Boris vildi þá meina að kenýu­búum væru illa við breska heims­veldið og studdu Evr­ópu­sam­bandið. Þá hefur hann borið til­gang og mark­mið Evr­ópu­sam­bands­ins saman við stefnur Hitlers.

Ítrekað gert lítið úr samkynhneigðum

Business Insider rifj­aði upp grein Boris þar sem hann lýsti sam­kyn­hneigðum karl­mönnum sem „vælandi rassa­strákum í maga­bol.” Greinin birt­ist í Tel­ep­graph árið 1998. Boris gaf út bók­ina Friends, Voters, Countrymen árið 2001. Þar kemur hann inn á hjóna­band sam­kyn­hneigðra og ber það saman við kyn­mök manns við dýr. „Ef að hjóna­band sam­kyn­hneigðra er í lagi þá sé ég enga ástæðu fyrir því að sam­ein­ing milli þriggja karl­manna eigi ekki rétt á sér. Jafnvel þriggja karl­manna og hunds.”

Árið 2000 skrif­aði Boris grein í Spectator þar sem hann réðst á þáver­andi rík­is­stjórn Verka­lýðs­flokks­ins. Hann sagði fund­ar­efni rík­is­stjórn­ar­innar um fræðslu sam­kyn­hneigðar í skólum vera „ógeðs­legt”.

Fordómafullur í garð ólíkra þjóðernisflokka

Síðast liðið sumar upp­nefndi hann íslamskar konur sem klæð­ast búrkum „póst­kassa” (e. „Letter boxes”). Þá kall­aði hann þær einnig banka­ræn­ingja. Í kjöl­far ummæl­anna mátti sjá aukn­ingu í árásum á múslima í Bret­landi. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann gerir lítið úr öðrum þjóð­flokkum. Árið 2006 lýsti hann Papúa Nýja-Gíneu sem stað fyrir „Mann­áts­veislur og dráp á þjóð­höfð­ingjum.“ Þá lét Boris rasísk ummæli falla í grein Tel­egraph árið 2002 í garð þjóð­fé­lags­þegna Kongó. Þar líkti hann munn­svipum þeirra við vatnsmelónur.

Boris tal­aði háðs­lega um fórn­ar­lömbum borg­ar­styrj­ald­ar­innar í Libýu. „Það eina sem þeir þurfa að gera er að fjar­lægja líkin og þá mætum við á stað­inn,“ sagði hann í gríni á ráð­stefnu Íhalds­flokks­ins árið 2017. Breskir fjár­festar höfðu áður lýst áhuga á fjár­fest­inu í Libýu. Á ráð­stefnu flokks­ins 2016 vakti Boris athygli þegar hann kall­aði Afríku land. Afríka er heims­álfa sem sam­anstendur af 54 löndum. Hann var þá utan­rík­is­ráð­herra Bret­lands.

Háskólanám gott fyrir konur í karlmannsleit

Þegar Boris tók á móti Najib Razak, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra Malasíu, í London 2013 gerði hann lítið úr háskóla­göngu kvenna í þar í landi. Razak benti á að 68% sam­þykktra umsækj­enda væru konur. „Það er góð leið til að finna sér mann,“ svar­aði Boris.

Theresa May steig til hliðar sem for­maður Íhalds­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands 7. júní síð­ast lið­inn. Kosn­ingar á nýjum for­manni fara fram í mán­uð­inum. Fyrsta umferð kosn­ing­ar­innar fór fram síð­ast lið­inn fimmtu­dag. Boris fékk 114 atkvæði, sem var langstærsti hlut­inn. Næst á eftir var Jeremy Hunt með 43 atkvæði.

Í upp­hafi voru fram­bjóð­end­urnir tíu og fækk­aði þeim um þrjá í fyrstu umferð. Í næstu viku verður kosið á milli þeirra sjö sem eftir eru. Þá verða nokkrar umferðir þar til tveir fram­bjóð­endur standa eftir. Atkvæða­greiðsla fer fram dag­ana 18-20. júní og mun nið­ur­staða liggja fyrir 22. júní. Nýr for­maður flokks­ins tekur þá lík­leg­ast við emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra en talið er að með­limir Íhalds­flokks­ins muni kjósa Boris.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina