Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Formaður Neytendasamtakanna segir dæmi um að fólk missi húsnæði vegna smálánaskuldar

Í hverri viku fær Neyt­enda­sam­tökin tugi mála á borð til sín er varða smá­lána­fyr­ir­tæki. Almenn inn­heimta tekur að sér að inn­heimta fyrir þessi fyr­ir­tæki. Vextir lán­anna stand­ast ekki íslensk lög og hafa Neyt­enda­sam­tökin ítrekað sent fyr­ir­spurnir til inn­heimtu­fyr­ir­tæk­is­ins. Enn er þeim ósvarað.

Formaður Neytendasamtakanna segir dæmi um að fólk missi húsnæði vegna smálánaskuldar
Breki Karlsson, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna.

„Til okkar leita fjöldi fólks sem tekið hafa smá­lán,” segir Breki Karlsson, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna. „Almenn inn­heimta tekur að sér að inn­heimta fyrir þessi smálana­fyr­ir­tæki. Ólíkt öllum öðrum fyr­ir­tækjum þá hafa þeir ekki svarað okkar fyr­ir­spurnum. Sem er ótrú­lega magnað.” Þá segir hann að smálana­vextir sem þessi fyr­ir­tæki krefj­ast standa ekki íslensk lög.

Tekið útaf reikningum í leyfisleysi

„Þegar þú ert að taka að þér inn­heimtu fyrir aðila þá þarftu að vita hvað þú ert að inn­heimta. Skuld­arar hafa alltaf rétt á að vita hvernig skuldin þeirra er sam­an­sett,” segir Breki. „Þeir hafa ekki orðið við því að senda skjól­stæð­ingum okkar sund­ur­liðun á kröf­unni heldur hafa þeir í sumum til­vikum laum­ast inn á reikn­ing­anna þeirra og tekið út af þeim, að þeim for­spurðum.” Hann segir skýrt leyfi lán­tak­ans ekki liggja fyrir. „Það er háal­var­legt mál.”

„Þegar að fólk tekur smá­lán þá gengst það undir það að fyr­ir­tækin megi taka útaf reikn­ingnum þeirra fyrir upp­hæð­inni” segir hann og bætir við; „En upp­hæðin sem þeir taka út er ólög­lega há því hún ber ólög­lega vexti.”

„Þegar það er ólög­leg upp­hæð tekin útaf kort­inu þínu er ákveðið ferli sem bank­arnir og korta­fyr­ir­tækin eru með. Við hvetjum alla sem hafa orðið fyrir því að láta taka af reikn­ingnum sínum fyrir smá­lánum að kanna hvort þeir eigi ekki end­ur­kröfu­rétt.” Breki bendir lán­þegum á að kvarta við bank­ann sinn, korta­fyr­ir­tækið eða hvoru tveggja. Ferlið sé hið sama og þegar óprút­tnir aðilar stela korta­upp­lýs­ingum ein­stak­linga.

Segja starfsemina vera í Danmörku til að komast hjá íslenskum lögum

Breki segir smá­lána­fyr­ir­tækin hafa skýlt sig á bak við erlenda starf­semi og sagst vera dönsk. Neyt­enda­sam­tökin sendu erindi til Atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins í fyrra sem skip­aði starfs­hóp til að rann­saka málið. Hópurinn skil­aði skýrslu í febr­úar 2019. „ Í skýrsl­unni kemur ber­lega fram að íslensk lög séu nógu sterk. Þeir sem lána í íslenskum krónum á íslensku til íslenskra lán­taka ber að lúta íslenskum lögum.”

Breki segir sam­tökin hafa sent fyr­ir­spurn út til umboðs­manns neyt­enda í Danmörku og fjár­mála­eft­ir­lits­ins. „Við erum búnir að fá eitt svar til baka, frá fjár­mála­eft­ir­lit­inu, sem segir að þeir hafi ekk­ert með þetta fyr­ir­tæki að gera. Þetta starfi ekki í Danmörku.” segir hann og bætir við; „Þeir eru í sjálfu sér sam­mála nið­ur­stöðu þess­arar nefndar að danska fjár­mála­eft­ir­litið hafi ekk­ert vald eða umsjón með íslenskum lánum í íslenskum krónum.”

Dæmi um að lántakar missi íbúðir

Breki segir þessa ólög­legu starf­semi fái að grass­era þrátt fyrir allt. „Það er ekki nógu skýrt eft­ir­lit eða ekki nógu miklar vald­heim­ildir virð­ist vera.” Hann bætir við að ráð­herra hefur boðað að sett verði ný lög. „Við auð­vitað fögnum því en á meðan er fólk að missa íbúð­irnar sínar og í stök­ustu vand­ræðum.”

„Við teljum með hverjum deg­inum sem líður er verið að níð­ast á fólki sem oft er ekki í stakk búið til að bera hendur fyrir höfuð sér.” Breki segir Neyt­enda­sam­tökin fá hátt í tutt­ugu mál á borð til sín viku­lega. „Þetta er erfitt líka, í sumum til­vikum fylgir þessu skömm. Fólk gerir það ekki að ganni sínu að taka smá­lán. Þetta er gert út úr neyð. Sumir gera þetta útfrá fátækt. Fólk hefur ekki til hnífs og skeiðar. Í öðrum til­vikum eru veik­indi, sjúk­dómar á bak við. Í mörgum til­vikum fíkni­sjúk­dómar eða and­leg veik­indi.”

„Þeir með­bræður okkar í sam­fé­lag­inu sem við ættum helst að halda hlífi­skyldi yfir en erum að bregð­ast í þessum málum. Það er ótrú­legt af hvað miklu offorsi Almenn inn­heimta er að beita sér í inn­heimtu fyrir þessi fyr­ir­tæki.”

Samfélags ábyrgð að stöðva þessa starfsemi

Almenn inn­heimta sækir þjón­ustu til Spari­sjóðs stranda­manna. Sjóð­ur­inn útbýr greiðslu­seðla til inn­heimtu fyrir smá­lána­fyr­ir­tækin. „Við erum búnir að leita eftir skýrum svörum frá Spari­sjóði stranda­manna,” segir Breki og bætir við; „Hvort þeir ætli að heim­ila þetta áfram. Við höfum bara fengið loðin svör frá þeim um að þeir ætli ekki að heim­ila ólög­lega starf­semi en ekki hvort að þeir haldi áfram að þjón­usta þetta fyr­ir­tæki.”

Breki segir að með því að lýta undan, eru ýmis fyr­ir­tæki að aðstoða við þessi smá­lán. „Mér finnst það eitt­hvað sem sam­fé­lags­lega ábyrg fyr­ir­tækja ættu að skoða virki­lega vel, hvort þeir vilji standa að því að aðstoða þessa starf­semi sem er bara skað­leg og í raun­inni ólög­leg.”

„Við erum lang­flest sam­mála um að þessi starf­semi eigi ekki að líð­ast.” Hann segir allt vera til staðar til að stöðva þessa starf­semi. „Það eru komin for­dæmi, kom­inn dómur, kom­inn úrskurður neyt­enda­stofu. Vilji lög­ga­fans er skýr. Öll lán sem bera meira en 50% vexti eru ólög­leg. Samt fær þetta að við­gang­ast.”

„Við þurfum að hugsa það vel og vand­lega sem sam­fé­lag, hvar við erum stödd þegar við leyfum þessu að grass­er­ast, mánuð eftir mánuð, ár eftir ár án þess að sporna við.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við