Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Andlega þenkjandi Íslendingar sækja í ofskynjunarseyði úr Amazon

Áhuga­fólk um and­leg mál­efni hefur notað ofskynj­un­ar­seyðið ayahuasca til að kom­ast í sam­band við sjálft sig og nátt­úr­una. Við­mæl­endur Mannlífs segja vin­sældir seyð­is­ins fara vax­andi á Íslandi og dæmi séu um að það sé veipað.

Andlega þenkjandi Íslendingar sækja í ofskynjunarseyði úr Amazon

Ayahuasca er nátt­úr­seyði sem á upp­runa sinn í per­úska hluta Amazon-frum­skóg­ar­ins þar sem frum­byggjar hafa bruggað það til nátt­úru­lækn­inga. Neysla þess kallar fram kröftug ofskynj­un­ar­á­hrif og inni­heldur það efnið dimet­hyl­tryptamine (DMT) sem er á bann­lista á Íslandi og víðar. Það er hins vegar ekki ávana­bind­andi og alls óskylt LSD þótt áhrifin séu að ein­hverju leyti keim­lík. Lítið er vitað um lang­tíma­á­hrif seyð­is­ins en dæmi eru um að fólk hafi lát­ist eftir neyslu þess.

Þekkt er að áhuga­fólk um and­leg mál­efni hafi gert sér ferð til Amazon til að neyta seyð­is­ins en á und­an­förnum árum hefur neysla þess færst í auk­ana á Vest­ur­löndum. Í umfjöllun vest­rænna fjöl­miðla segir að áhuga­fólk um and­leg mál­efni sæki mikið í seyðið en einnig hafi fólk sem glímir við áfallastreituröskun, fíkni­vanda og þung­lyndi notað það.

Boðsferðir í einkaskilaboðum

Mannlíf hefur haft spurnir af því að vin­sældir ayahuasca fari vax­andi á Íslandi. „Fólk er farið að neyta þess í auknum mæli og með nýjum aðferðum. Til dæmis að veipa það,“ segir einn við­mæl­andi Mannlífs. Þá hefur hópur jóga­iðk­enda stundað að fara út á land í skipu­lagðar ferðir þar sem seyðið er haft með í för. „Þetta er að minnsta kosti einu sinni á ári. Þá kemur hingað maður sem býður upp á þetta en þetta stendur ekki öllum til boða. Fólk fær send einka­skila­boð á Facebook með boði um þátt­töku.“

„… þetta stendur ekki öllum til boða. Fólk fær send einka­skila­boð á Facebook með boði um þátt­töku.“

Annar við­mæl­andi Mannlífs stað­festir að hópur jóga­iðk­enda hafi safn­ast saman á sveitabæ nærri höf­uð­borg­ar­svæð­inu yfir helgi þar sem ayahuasca var neytt.

Perúskur seiðmaður og fjöllistahópur

Tak­mark­aðar upp­lýs­ingar er að finna um neyslu seyð­is­ins á Íslandi. Árið 2016 birt­ist við­tal í Frétta­tím­anum við tvo menn sem voru í 15 manna hópi sem hitt­ist úti í sveit til að drekka ayahuasca. Með í för var per­úskur seið­maður sem brugg­aði seyðið. Annar mann­anna var með krabba­mein en hinn hafði glímt við fíkni­vanda um ára­bil. „Það gerð­ist lítið í fyrsta sinn en í annað skiptið rann allt lífs­hlaup mitt fram hjá mér, alveg frá því ég var sex ára og fram á dag­inn í dag,“ lýsir annar þeirra áhrif­unum. Í þætt­inum Rapp í Reykja­vík sem sýndur var á Stöð 2 árið 2016 upp­lýstu með­limir fjöl­lista­hóps­ins Shades of Reykja­vík að þeir hafi stundað neyslu seyð­is­ins.

Á Youtube er einnig að finna 45 mín­útna langan fyr­ir­lestur þar sem maður að nafni Erling Ingason lýsir upp­lifun sinni af neyslu ayahuasca í Amazon-frum­skóg­inum árið 2012. Fer Erling lof­sam­legum orðum um upp­lifun­ina þótt seyðið hafi verið afskap­lega bragðvont og hann hafi kastað kröft­ug­lega upp eftir neyslu þess, sem mun vera algengt.

„Vestræn menn­ing hefur kallað þetta dóp og stór­hættu­legt. Ég get alveg full­vissað ykkur um það að ég hef aldrei verið ánægð­ari, hraust­ari og ákveðn­ari í líf­inu. Mín reynsla var end­ur­fæð­ing og skiln­ingur á líf­inu,“ ritar Erling undir mynd­bandið. „Þetta er það erf­ið­asta sem ég hef gert á ævinni en samt það besta sem hefur komið fyrir mig. Ég missti 9 kíló í þessu ferða­lagi og mér leið eins og ég hafi verið að hlaupa mara­þon alla daga. Hver athöfn á sér stað í myrkri og þú ert alveg einn á dýnu. Áhrifin koma inn eftir 30-40 mín. og vara í 5-8 tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina