Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Þetta er mín leið til mótmæla fitufordómum“

Íslenska fyr­ir­sætan Ísold Hall­dóru­dóttir hefur vakið tölu­verða athygli á sam­fé­lags­miðlum. Ísold er mik­ill tals­maður lík­ams­virð­ingar og berst gegn fitu­for­dómum.

„Þetta er mín leið til mótmæla fitufordómum“
Myndir / Halldóra Haf­dís­ar­dóttir |||

Ísold hefur lengi verið virk á Instagram og þar kemur hún boð­skap sínum til skila: að feitt fólk geti líka verið fal­legt. Einn dag þegar Instagram eyddi síð­unni hennar skyndi­lega og án útskýr­inga stofn­aði hún nýja síðu og virkj­aði myllu­merkið #fatgirloncam sem hefur náð tölu­verðri útbreiðslu.

„Ég fékk aldrei útskýr­ingu á því af hverju síð­unni minni var eytt. En ég get ímyndað mér að það hafi veri vegna lík­ama míns, feita lík­am­ans sem ég hef verið óhrædd við að deila myndum af,“ útskýrir Ísold.

„Ég hef aldrei verið hrædd við að sitja fyrir fáklædd en margt fólk á erfitt með að höndla það. Þetta kall­ast fitu­for­dómar. Þess vegna lang­aði mig að stofna myllu­merkið #fatgirloncam,“ útskýrir Ísold.

„Þetta er mín leið til mót­mæla fitu­for­dómum og ég vona að þetta verk­efni mitt veiti öðru fólki inn­blástur til að taka lík­ama sinn í sátt og vera stolt af vexti sínum.“

Sumir segja hana slæma fyrirmynd

Spurð út í hvaða við­brögð hún hefur fengið við skila­boðum sínum á sam­fé­lags­miðlum segir Ísold flest þeirra hafa verið jákvæð. „Flestir sýna mér stuðn­ing og hvetja mig áfram. En svo eru alltaf ein­hverjir sem neita að stíga út úr þæg­ind­ara­mm­anum sínum.“

„Það þarf eitt­hvað í sam­fé­lag­inu að breyt­ast þannig að feitt fólk njóti sömu virð­ingar og aðrir.“

Hún segir nokkra hafa mót­mælt því sem hún sé að gera með þeim rökum að hún sé að lof­sama offitu og sé slæm fyr­ir­mynd. „Fólk er hrætt við það sem það ekki skilur. En ég er að berj­ast fyrir breyttum við­horfum. Það þarf eitt­hvað í sam­fé­lag­inu að breyt­ast þannig að feitt fólk njóti sömu virð­ingar og aðrir.“

Ekki aftur snúið eftir fyrsta fyrirsætuverkefnið

Eins og áður sagði er Ísold fyr­ir­sæta og hefur tekið að sér fjöl­breytt verk­efni.

Spurð út í hvort hana hafi alltaf langað til að verða fyr­ir­sæta segir hún: „Hér áður fyrr hefði ég ekki trúað að ég ætti mögu­leika á að starfa sem fyr­ir­sæta. Í gegnum tíð­ina hef ég fengið ýmis ráð um hvernig ég ætti að grenn­ast, hvernig ég ætti að klæða af mér vöxt­inn og lín­urnar og fela „gall­ana“. Þannig að þegar fyrsta tæki­færið til að ger­ast fyr­ir­sæta kom þá þurfti ég að end­ur­hugsa hlut­ina upp á nýtt,“ útskýrir Ísold.

Fyrsta fyr­ir­sætu­verk­efnið var að sitja fyrir í mynda­þætti í LOVE Magazine en það var ofur­fyr­ir­sætan Kendall Jenner sem sá um að mynda Ísold.

„Eftir þessa lífs­reynslu var ekki aftur snúið. Ég fékk þetta tæki­færi og mér fannst ég verða að halda áfram að berj­ast fyrir breyttum við­horfum.“

https://www.instagram.com/p/BgRu-3LFdqk/

Ísold tekur fram að hún geti upp að vissu marki skilið fólk sem á erfitt með að höndla þau skila­boð sem hún sendir út með mynd­unum sínum. „Það fólk sem líkar illa við það sem ég stend fyrir má vita að ég áfellist það ekki. Við höfum verið for­rituð á vissan hátt,“ segir Ísold og á við að staðalí­myndin sé sú að til að vera fal­legur þurfi maður að vera grannur.

„Það voru við sem bjuggum þessar staðalí­myndir til þannig að það er okkar hlut­verk að breyta þeim.“
Mynd / Berglaug Garð­ars­dóttir

„En ef við getum ekki við­ur­kennt mis­tökin þá getum við ekki knúið fram breyt­ingar. Það voru við sem bjuggum þessar staðalí­myndir til þannig að það er okkar hlut­verk að breyta þeim og það er það sem ég er að gera. En mér finnst allt í lagi ef fólk fílar mig ekki, ég get elskað mig án sam­þykkis frá ókunn­ugum.“

Margar fyrirmyndir í bransanum

Aðspurð hvort að hún eigi sér ein­hverjar fyr­ir­myndir innan tísku­heims­ins svarar hún: „Já, auð­vitað. Það eru svo margar ótrú­lega flottar fyr­ir­myndir þarna úti sem eru að breyta sög­unni.“

Hún nefnir nokkur dæmi: „Tess Holliday, það var stórt skref þegar hún skrif­aði undir samn­ing við Milk-umboðs­skrif­stof­una. Svo hefur Beth Ditto alltaf verið sam­kvæm sjálfri sér. Hún var fyrsta mann­eskjan sem fékk mig til að trúa því að ég gæti gert hvað sem ég vildi, óháð því hvernig ég er vaxin,“ segir Ísold.

Hún bætir við: „La’Shaunae Steward er líka flott fyr­ir­mynd, hún leyfir sér að vera algjör­lega hún sjálf og er óhrædd við að tala um það sem hún hefur gengið í gegnum, eitt­hvað sem margir þora ekki að gera. Hún er hug­rökk og sterk og þorir að tala opin­skátt.

Það gleður mig líka að sjá hvað trans­sam­fé­lagið er að verða sýni­legt í tísku­heim­inum. Það eiga allir rétt á því að sjást og láta heyra í sér. Allir eiga skilið virð­ingu, óháð stærð, kyni, kyn­þætti og kyn­hneigð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina